Fréttablaðið - 30.03.2010, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
ÞRIÐJUDAGUR
30. mars 2010 — 75. tölublað — 10. árgangur
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
ROKKHÁTÍÐ ALÞÝÐUNNAR, Aldrei fór ég suður, verður haldin á
Ísafirði um páskana eins og undanfarin ár. KNH verktakar hafa lánað hús-
næði sitt undir hátíðina líkt og í fyrra. Ekki er komið á hreint hvaða hljóm-
sveitir spila á hvaða degi en það verður ljóst á næstu dögum. Hægt er að
fylgjast með á www.aldrei.is.
Davíð Jónsson, 22 ára, greindist með beinkrabbamein í hægra sköfl-ungsbeini fyrir nokkrum árum. Í kjölfarið fór hann í átta mánaða lyfjameðferð en í henni miðri varð að fjarlægja fótinn fyrir ofan hné vegna útbreiðslu meinsins. Davíð segir aflimunina hafa verið mikið áfall og hafi lyfjameðferðin og sjúkraþjálfunin reynt á.„Ég var þarna á þriðja ári í Kvennó og þurfti að sleppa h ilmiklu ú k
Hann segist hafa beitt sig miklum aga til að ná sér á strik á skömmum tíma. „Ég varð stað-ráðinn í að komast í betra form en ég hafði verið í á tveimur fótum. Ég fór því að prófa hitt og þetta til að sjá hvað mér þætti gaman
að gera, meðal annars lyftingar, frjálsar íþróttir og hlaup og hafði við höndina viðeigandi stoðtækifrá Össuri “ út k
á einum fæti, þar sem álagið er miklu meira á bakið og mjöðm-ina. Eins má maður ekki sveifl-ast í þyngd þar sem hætt er við
að hulsan sem er sérhönnuð utan um fót hvers og eins passi þá verr á hann. Þess vegna hreyfi ég mig mikið og huga vel að kílóunum.“Davíð er nú á fyrst ák
Lærði að ganga á nýDavíð Jónsson greindist með beinkrabbamein í hægri sköflungi sem lauk með því að fjarlæga þurfti
fótinn fyrir ofan hné. Með mikilli eljusemi náði hann sér á strik og hefur aldrei verið í betra formi.
„Ég heyrði eitt sinn að menn sem missa annan fótinn fyrir ofan hné eyði allt að 70 prósentum meiri orku en þeir sem eru með
báða fætur í lagi,“ segir Davíð, sem lætur það ekki slá sig út af laginu og stundar ræktina af kappi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tímapantanir 534 9600
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur www.heyrn.is
* Tal fólks í margmenni* Hjal smábarns * Marr í snjónum
Ertu að fara á mis við hljóð sem skipta miklu máli?
GRÍPTU TIL ÞINNA RÁÐALáttu sérmenntaðan heyrnarfræðing mæla heyrnina og fáðu faglega ráðgjöf.
páskarÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2010
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Útivist og afþreyingMargt er í boði fyrir þá sem vilja bregða undir sig betri fætinum um páskana.
SÍÐA 6
Besta farartækið
Samtök um bíllausan
lífsstíl standa fyrir
opnum fundi um
reiðhjólanotkun
í kvöld.
TÍMAMÓT 24
FÓLK Starfsfólki Regnbogans
hefur verið sagt upp störfum og
unnið er að því að endurskipu-
leggja reksturinn. Loki Regnbog-
inn verður ekkert kvikmyndahús
í miðborg Reykjavíkur.
„Þetta er eina miðbæjarbíóið
en eins og staðan er nú getur allt
eins verið að við lokum í sumar,
hreinsum út það sem við eigum
og skilum húsinu um áramót,”
segir Jón Eiríkur Jóhannsson,
rekstrarstjóri kvikmyndahúsa
Senu. - afb / sjá síðu 38
Starfsfólki kvikmyndahúss sagt upp störfum:
Óvissa um framtíð Regnbogans
Í viðtali á nektarstöð
Mugison var í fötunum á Naked
News.
FÓLK 38
Pappírsflóðið tefur
Stúlkurnar í The Charlies sjá glitta
í Ameríku.
FÓLK 38
Útivistarleikur
Homeblest & Maryland
Leynist vinningur í
pakkanum þínum!
DAVÍÐ JÓNSSON
Missti fót, en aldrei
verið í betra formi
• heilsa • akureyri
Í MIÐJU BLAÐSINS
PÁSKAR
Ferðir, borðskraut og
óvenjulegur ratleikur
Sérblað um páska
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
VIRKJANIR Takist ekki að fjármagna
kísilverksmiðju í Ölfusi rennur
út forgangur sveitarfélagsins til
kaupa á orku úr áformaðri Hvera-
hlíðarvirkjun.
„Það fær bara annar orkuna.
Ölfus hefur forgang fram í maí,
en ef sveitarfélagið hefur ekki
klárað sitt fyrir þann tíma þá verð-
ur það fyrstur kemur fyrstur fær
hvað orkuna varðar,“ segir Hjör-
leifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur (OR). Hann segir að
ef ekki hefði staðið á fjármögn-
un álvers í Helguvík og byggingu
orkuvera, væri löngu búið að ráð-
stafa orkunni úr Hverahlíðarvirkj-
un.
Orð Hjörleifs eru viðbrögð við
ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra, en hún sagði í
ræðu sinni á flokksstjórnarfundi
Samfylkingarinnar á laugardag:
„Stærsta hindrunin í vegi áforma
um byggingu álvers í Helguvík
um þessar mundir er sú ákvörð-
un Orkuveitu Reykjavíkur að ráð-
stafa, að minnsta kosti tímabundið,
orku frá ráðgerðri Hverahlíðar-
virkjun til annars verkefnis.“
„Ég lít svo á að ef búið væri að
fjármagna framkvæmdirnar og
komnir væru bindandi orkusölu-
samningar væru menn komnir
lengra,“ segir Hjörleifur. „Stærsta
hindrunin í veginum hefur verið
fjármögnun.“ Þetta hafi því ekk-
ert með ákvörðun OR að gera.
„Við byggjum enga virkjun nema
hafa bindandi orkusölusamning
sem er fyrirvaralaus. Hann er
ekki kominn enn þá.“
Hjörleifur bendir á að samning-
urinn við Norðurál hafi gert ráð
fyrir að fjármögnun yrði lokið í
árslok 2008. Þá hafi verið samið
um mitt ár 2009 og loks árslok
2009. „Og við erum enn að bíða.“
Hann segir að ef Norðurál hefði
lokið við fjármögnunina hefði ekki
komið til þess.
Hverahlíðarvirkjun mun fram-
leiða 90 megavött og ljóst er að þau
eru ekki til skiptanna á milli álvers
í Helguvík og kísilverksmiðju í Ölf-
usi. Hjörleifur staðfestir það. - kóp
Keppast um
orkuna úr
Hverahlíð
Sveitarfélagið Ölfus hefur frest fram í maí til að
fjármagna orkukaup úr Hverahlíð. Annars gildir
reglan fyrstur kemur, fyrstur fær segir forstjóri OR.
HEILSA Frumvarp sem gerir einhleypum konum
með skerta frjósemi heimilt að nota gjafaegg við
glasafrjóvgun bíður afgreiðslu á Alþingi. Guð-
mundur Arason, kvensjúkdóma- og fæðingarlækn-
ir í tæknifrjóvgunarstofunni Art Medica, fagnar
því verði frumvarpið samþykkt. Til þess að mæta
þeirri þörf sem þá myndist þurfi þó fleiri íslensk-
ar konur að gefa egg enda er nú þegar skortur á
eggjum.
„Biðlistinn er langur og okkur bráðvantar egg
fyrir konur sem ekki hafa allar tímann fyrir sér,“
segir Guðmundur.
Þær konur sem geta gefið egg þurfa að vera á
aldrinum 22ja til 35 ára. Þær þurfa að vera hraust-
ar, lausar við vímugjafa og ekki með ættgenga
sjúkdóma sem erfast beint.
Fyrir þau óþægindi sem hljótast af egggjöf eru
greiddar 75 til 100 þúsund krónur. „En við viljum
ekki að fólk komi til með að hagnast,“ tekur Guð-
mundur fram. - þlg, sg / sjá ALLT
Læknir hjá Art Medica mælist til þess að fleiri íslenskar konur gefi egg:
Langur biðlisti eftir eggjum
ÉL NORÐAUSTANLANDS Í dag
verða norðan 8-13 m/s, hvassast
við A-ströndina. Víða bjartviðri
en dálítil snjókoma eða él NA-til.
Frost 0-7 stig.
VEÐUR 4
-5
-2
-6
-3
-1
Í LOFTKÖSTUM Parkour er ekki fyrir hvern sem er, en Heiðar Smári Birgisson hefur
augljóslega náð talsverðri færni í þessari framandi íþrótt, eins og sjá má af þessu
heljarstökki sem hann tók í Bankastræti í gær. Heiðar segir að íþróttin gangi út á
ýmis stökk, en hann hefur æft með Fimleikafélaginu Björk í rúmt ár. Hann viður-
kennir að parkour sé ekki hættulaust, en hann hefur þó ekki slasað sig á heljarstökk-
unum, jafnvel þótt grjóthörð gangstéttin bíði takist honum illa upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Snæfell sló út
Grindavík
Snæfell komst í und-
anúrslitin í Iceland
Express-deild karla en
Stjarnan tryggði
sér oddaleik.
ÍÞRÓTTIR 34