Fréttablaðið - 30.03.2010, Síða 12
30. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
24 þúsund kr.
inneign fylgir
þessum síma.
Alvöru GSM símar
á frábæru tilboði á ring.is.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
15
8
5
LG Viewty
Eftirstöðvum dreift
á 12 mánuði.*
2.000 kr. inneign á
mán. í 12 mán. fylgir.
Staðgreiðsluverð: 29.900 kr.
Útborgun
0 kr.
Athugið að inneign í símatilboðum virkjar ekki vinaafslátt Ring.
*Greiðsludreifingargjald
250 kr. á mánuði.
KAUPA
UKI
2x bíó
2x Dom
ino's
2x Ser
rano
SJÁVARÚTVEGUR Áframhaldandi
hvalveiðar eru þjóðhagslega hag-
kvæmar en þær þarf að endurmeta
ef síðar kemur í ljós að þær hafi
verulega neikvæð áhrif á ferða-
þjónustu, virði umhverfisgæða og
ímynd Íslands. Þetta er niðurstaða
nýrrar skýrslu Hagfræðistofnun-
ar Háskóla Íslands um þjóðhags-
leg áhrif hvalveiða, sem var kynnt
í gær.
Skýrslan var unnin fyrir land-
búnaðar- og sjávarútvegsráðu-
neytið. Í henni er rakið umfang
og þróun hvalveiða við Ísland,
efnahagslegt gildi þeirra, áhrif á
helstu nytjastofna og á ferðaþjón-
ustu, umhverfisgæði og ímynd
landsins.
Opinberar upplýsingar liggja
ekki fyrir um þýðingu hvalveiða
fyrir þjóðarbúið á liðnum árum en
samkvæmt upplýsingum frá Hval
hf. og hrefnuveiðimönnum gætu
80 til 90 ársverk fallið til við veið-
ar og vinnslu á 150 langreyðum
og jafnmörgum hrefnum. Launa-
kostnaður við veiðar á 150 lang-
reyðum er áætlaður 750 milljón-
ir króna og telja skýrsluhöfundar
að virðisauki þeirra gæti orðið að
minnsta kosti jafnmikill.
Tap var á hrefnuveiðum í fyrra
að teknu tilliti til afskrifta og fjár-
magnsliða og allar afurðir voru
seldar innanlands. Ef gert er ráð
fyrir að hægt sé að selja hluta
afurðanna utanlands telja skýrslu-
höfundar að virðisauki af veiðum á
150 hrefnum gæti numið 270 millj-
ónum króna. Samanlagður virðis-
auki af veiðum á 150 langreyðum
og 150 hrefnum gæti því orðið um
einn milljarður króna.
Í skýrslunni er einnig lagt mat
á áhrif hvalveiða á helstu nytja-
stofna. Niðurstaðan er sú að ef
veiddar væru 150 hrefnur og 150
langreyðar væri hægt að auka afla
á þorski, ýsu og loðnu umtalsvert.
Verðmæti þess umframafla gæti
numið 12,1 milljarði króna á verð-
lagi dagsins í dag.
Tölur yfir fjölda ferðamanna
gefa ekki til kynna að hvalveið-
ar síðustu ára hafi haft marktæk
áhrif á komur þeirra til landsins.
Ekki var þó hægt að meta til fjár
áhrif hvalveiða á virði umhverfis-
gæða eða á ímynd Íslands í öðrum
löndum. Mikilvægt sé að kanna
þau frekar, segir í skýrslunni.
bergsteinn@frettabladid.is
Hagkvæmt að halda
hvalveiðum áfram
Hvalveiðar eru þjóðhagslega hagkvæmar þótt tap hafi verið á hrefnuveiðum í
fyrra, segir í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar. Veiðar hafa ekki haft mælanleg
áhrif á ferðaþjónustu en gæta þarf að hugsanlegum áhrifum á ímynd landsins.
Í HVALSTÖÐINNI Ef veiddar væru 150 hrefnur og 150 langreyðar mætti auka afla á
þorski, ýsu og loðnu, segir í nýrri skýrslu um hvalveiðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM