Fréttablaðið - 30.03.2010, Page 46
30 30. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
Söngkonan Kylie Minogue er fremst
í flokki í nýrri herferð gegn brjósta-
krabbameini sem hefur verið hleypt
af stokkunum undir yfirskriftinni
Tíska gegn brjóstakrabbameini.
Leikkonan Sienna Miller og fyrir-
sætan Claudia Schiffer taka einnig
þátt í herferðinni. Nýverið sátu þær
fyrir með silkidúka vafða um sig
til að vekja athygli á málefninu og
vonast þær til að safna peningum
fyrir bresku krabbameinssamtökin
Breakthrough Breast Cancer. Síðan
þau voru stofnuð árið 1996 hafa
þau safnað um tveimur milljörðum
króna.
Kylie, sem er 41 árs, greindist
með brjóstakrabbamein árið 2005
meðan á Showgirl-tónleikaferðinni
stóð. Eftir að hafa gengist undir
geislameðferð læknaðist hún af
meininu og gat haldið tónleikaferð-
inni áfram árið eftir. „Það skiptir
mig miklu máli að fá að taka þátt í
þessari herferð. Ég styð heils hugar
mikilvægar aðgerðir þeirra til að
safna peningum fyrir Breakthrough
Breast Cancer,“ sagði söngkonan.
Hún ásamt Schiffer og Miller hefur
hvatt konur til að styðja baráttuna
og kaupa tískuvörur tengdar henni.
Þannig styðja þær við bakið á þeim
46 þúsund konum sem greinast með
sjúkdóminn í Bretlandi á hverju ári.
Kylie í herferð gegn krabbameini
KYLIE MINOGUE Söngkonan er fremst í flokki í nýrri
herferð gegn brjóstakrabbameini.
Söngkonan Cheryl Cole úr
stúlknasveitinni Girls Aloud
ætlar að gefa út bókina My World
í haust þar sem lífshlaup henn-
ar verður rakið í ljósmyndum.
Í bókinni verða margar myndir
sem hafa aldrei birst áður, þar
á meðal af henni og eiginmanni
hennar Ashley Cole sem varð
nýverið uppvís að framhjáhaldi.
„Að horfa á ljósmyndir er dálít-
ið eins og að hlusta á tónlist.
Þær minna þig á liðna atburði og
hvernig þér leið á þeim tíma,“
sagði Cheryl. „Mig langaði að
velja myndir sem hafa sérstaka
þýðingu fyrir mig og segja sög-
urnar sem fylgja þeim.“
Cheryl með
ljósmyndabók
CHERYL COLE Söngkonan ætlar að gefa
út nýja bók með ljósmyndum úr lífi
sínu.
Tökum á kvikmyndinni Hobbitan-
um sem áttu að hefjast í júlí hefur
verið frestað þangað til í lok árs-
ins. Framleiðslufyrirtækið MGM
á í miklum fjárhagserfiðleikum
og hefur að undanförnu leitað að
nýjum hluthöfum til að koma sér
upp úr öldudalnum. Tökurnar
hafa frestast af þeim sökum.
Myndirnar um Hobbitann verða
tvær og var upphaflega stefnt á að
þær kæmu í bíó fyrir jólin 2011 og
2012. Miðað við frestunina gætu
þau áform verið í uppnámi.
Hobbitinn í
vandræðum
GANDÁLFUR Gandálfur verður á sínum
stað í tveimum nýjum myndum byggð-
um á bókinni Hobbitinn.
> EKKI ÓLÉTT ENN
Talsmaður söngkonunnar Beyoncé
Knowles segir ekkert hæft í fregn-
um um að hún eigi von á sínu
fyrsta barni. Tímaritið Rolling
Stone fékk senda yfirlýsingu
vegna málsins þar sem sagði að
fréttir af óléttunni væru úr lausu lofti
gripnar. Beyoncé er sem kunnugt er
gift rapparanum Jay-Z og var fréttum af
meintri fjölgun fagnað víða um heim af
aðdáendum þeirra.
Sálin hans Jóns míns er að undir-
búa nýja plötu með dyggri aðstoð
Stórsveitar Reykjavíkur. Þessa
dagana eru Sálverjar að skoða
prufuupptökur á nýjum lögum og
á fundi á næstunni verður kosið á
milli þeirra. Nýjar prufuupptökur
af þeim verða síðan teknar upp í
hljóðveri. Að því loknu verða end-
anleg lög valin á plötuna, sem er
væntanleg í haust.
Sálin verður dugleg við spila-
mennsku um páskana eins og svo
oft áður. Sveitin mun troða upp í
fjórum sveitarfélögum, Selfossi,
Kópavogi, Akureyri og Keflavík,
þar sem stemningin verður vafa-
lítið gríðarlega góð.
Plata með Stórsveit
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS Sálin verður á
fullri ferð um páskana.
Leikkonan Drew Barrymore segir
að ástarsambandið í nýjustu mynd
hennar Whip It endurspegli eigin
tilfinningar þegar hún varð fyrst
ástfangin. Barrymore giftist bar-
þjóninum Jeremy Thomas frá
Wales þegar hún var nítján ára. Sjö
árum síðar giftist hún grínistanum
Tom Green og það hjónaband ent-
ist ekki lengi. „Ég held við þurf-
um allar að ganga í gegnum tíma-
bil þar sem við hittum listamenn
sem virðast svalari en þeir eru.
Við reynum að verða eins og þeir
og verðum spenntar þegar einhver
kynnir okkur fyrir nýrri tónlist
og nýjum lífsstíl,“ sagði hún. „Það
sem þú áttar þig á seinna er að þú
þarft ekki á öðrum að halda til að
uppgötva þetta.“
Tjáir sig um ástina
DREW BARRYMORE Barrymore segir að
ástarsambandið í nýjustu mynd hennar
endurspegli hennar eigin tilfinningar.
SÁLIN UM PÁSKANA:
31. mars: 800 Bar – Selfossi
2. apríl: Spot – Kópavogi
3. apríl: Sjallinn – Akureyri
4. apríl : Of ficeraklúbburinn
– Keflavík
Vandræðagemlingurinn
Lindsay Lohan er enn og
aftur komin í kastljós fjöl-
miðla. Lögreglumenn í
Los Angeles hafa lýst yfir
áhyggjum sínum af leikkon-
unni og nánir vinir Lohan
óttast um líf hennar.
Lindsay Lohan var lengi vel eitt
vinsælasta umfjöllunarefnið á
síðum slúðurblaðanna. Enda þykir
villt líferni stjarnanna nokkuð
söluvænt efni. Eftir að hafa haldið
sig nokkurn veginn réttum megin
línunnar virðist leikkonan enn og
aftur fallin sem þýðir að hún sækir
nú skemmtistaði af miklum móð og
bæði djammar og drekkur langt
fram á nótt.
Lindsay var nýverið mynduð
með hvítt púður á háhæluðu skón-
um sínum og bandaríska slúð-
urpressan var ekki lengi að full-
yrða að þarna væri komin haldbær
sönnun þess að leikkonan væri
farin að neyta ólöglegra vímuefna
að nýju. Sjálf lýsti Lindsay því hins
vegar yfir í gær að allar áhyggjur
væru óþarfar. „Mér líður vel og
ég er mjög heilbrigð,“ sagði í yfir-
lýsingu frá Lohan sem var mynduð
af heilum her paparazza þegar hún
datt á leið út úr teiti í Los Angel-
es. Í yfirlýsingunni kenndi Linds-
ay hælunum háu um fallið
En það eru ekki allir jafn
ginnkeyptir fyrir þess-
um afsökunum. Áfeng-
isráðgjafi í vinahópi
Lindsay segist hrein-
lega óttast um líf
leikkonunnar og ef
hún láti ekki af hegð-
un sinni bíði hennar
ekkert nema glötun.
Hinn skapvondi
faðir hennar,
Michael Lohan,
sagði í samtali
við vefsíðuna
X17online.
com að hann
hygðist koma
dóttur sinni
til bjargar.
Michael segir
dóttur sína
vera háða
verkjalyfjum
og hann hafi
lengi reynt
að sannfæra
bæði dóm-
ara og lög-
regluyfir-
völd um að
koma henni
til bjargar
með dóms-
úrskurðum
en talað fyrir
daufum eyrum.
„Enginn getur
hjálpað Lindsay
eins og ég,“ sagði Michael við vef-
síðuna en þau feðgin hafa lengi
eldað saman grátt silfur.
Og pabbi Lindsay og vinir
eru ekki þeir einu sem hafa
lýst því yfir að þeir óttist
um heilsufar Lindsay Lohan
því lögreglumenn hafa einnig
rætt áhyggjur sínar við fjöl-
miðla. „Við höfum stund-
um velt því fyrir okkur
hvort við ættum ekki
að taka hana með
okkur niður á stöð.
Stundum virðist
hún vera svo mikið
út úr heiminum að
hún veit ekki hvað
hún er að gera,“
sagði einn laganna
varða í samtali við
slúðurvefinn TZM.
com. Líf Lindsay
verður því enn um
sinn undir stöðugu
kastljósi fjölmiðla í
Bandaríkjunum.
freyrgigja@frettabladid.is
Löggur vilja bjarga Lindsay
Í VONDUM MÁLUM
Lindsay Lohan er sögð
vera háð sterkum verkjalyfj-
um, hún djammi og drekki allar
nætur og vinir hennar og pabbi
óttast um líf hennar.