Fréttablaðið - 27.04.2010, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
27. apríl 2010 — 97. tölublað — 10. árgangur
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Guðbjörg Jónsdóttir hefur ásamt
Margréti Knútsdóttur staðið fyrir
hlaupanámskeiðum í Reykjanes-
bæ frá árinu 2007, þar sem þátt
takendur læra m ðhl
inu, hefur gert það nánast árlega
eftir það og hleypur nú allan á
ins hring 200 man
Eins og að borða nammi
Guðbjörg Jónsdóttir kennari hefur verið haldin ólæknandi hlaupabakteríu um nokkurra ára skeið og seg-
ir hlaup nánast ávanabindandi sökum þeirrar einstöku vellíðunartilfinningar sem íþróttin veiti.
Guðbjörg til hægri, Margrét fyrir miðju og Eygló Anna Tómasdóttir í Reykjavíkurmaraþoninu 2008. Guðbjörg hefur tekið þátt í
maraþoninu nánast árlega síðan 1995 og stefnir ótrauð á þátttöku í ár.
MYND/ÚR EINKASAFNI
VÍSINDI Á VORDÖGUM er árleg kynning á vís-
indastarfi Landspítala. Hún hefst föstudaginn 4. maí.
Haldnir verða fyrirlestrar, tilkynnt um heiðursvísinda-
mann ársins, ungan vísindamann ársins og úthlutað
styrkjum úr Vísindasjóði Landspítala.
Viltu breyta mataræðinutil batnaðar? ....en veist ekki hvar þú átt að byrja?
INGA KRISTJÁNSDÓTTIR næringarþerapisti D.E.T.
leiðir ykkur í allan sannleikann um hversu auðvelt
það er í raun að breyta mataræðinu til batnaðar.
Farið verður með einföldum hætti yfir:
• Hvaða óæskilegum mat við getum skipt út.
• Hvaða fita er óholl og hver er lífsnauðsynleg.
• Hvernig við getum komið jafnvægi á blóðsykurinn
og öðlast meiri orku vellíðan og heilbrigði.
Þriðjudaginn 4. maí í Heilsuhú i
Patti.isLandsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
Kynningart
ilboð
Hornsófi 2
H2
man-8183 sett 3+1+1
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
299.900 kr
veljum íslensktÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2010
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Veljum íslenskt
ÞRIÐJUDAGUR
skoðun 14
FÓLK Íslenska heimildarmynd-
in Feathered Cocaine hefur vakið
óskipta athygli á Tribeca-kvik-
myndahátíðinni í New York. Mynd-
in var frumsýnd á föstudaginn og
hefur verið uppselt á allar sýning-
ar. Þótt myndin fjalli um umfangs-
mikið smygl á fálkum til Evr-
ópu þá er því einnig haldið fram
í henni að hryðjuverkaleiðtoginn
Osama Bin-Laden sé ekki jafnmik-
ið í felum og vestræn yfirvöld hafi
haldið fram. - fgg/ sjá síðu 30
Þorkell Harðarson:
Fálkamynd vin-
sæl á Tribeca
ANDLIT GARÐABÆJAR Börn í leik- og grunnskólum í Garðabæ brugðu á leik í gær og fóru í skrúðgöngu,
sem er liður í listadögum barna og ungmenna. Margir báru grímur, þar sem skjaldarmerki bæjarins fékk nýja ásjónu.
STJÓRNSÝSLA Embætti forseta
Íslands verða settar siðaregl-
ur. Undirbúningur verksins er
hafinn í stjórnarráðinu þar sem
meðal annars hefur verið skoðað
með hvaða hætti reglurnar verða
festar í sessi. Kemur til álita að
færa þær í lög um laun forsetans
eða gefa þær út með forsetabréfi.
Forsetabréf eru ein tegund stjórn-
sýslufyrirmæla en aðrar eru for-
setaúrskurðir og reglugerðir ráð-
herra.
Ákvörðun um setningu siða-
reglna forseta kemur í kjölfar
útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis. Vinnuhópur um siðferði
komst að þeirri niðurstöðu að æski-
legt væri að forsetaembættið setti
sér slíkar reglur.
Á flokksstjórnarfundi Samfylk-
ingarinnar í Garðabæ fyrir tíu
dögum sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra að í ljósi
skýrslunnar þyrfti að endurskoða
stöðu forsetans og setja embætti
hans siðareglur. Hefur hún nú sett
undirbúning þess af stað.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er siðareglunum ætlað
að ramma inn starfshætti forseta-
embættisins. Um leið er horft til
þess að fjallað verði með víðtæk-
ari hætti um eðli og hlutverk for-
setaembættisins á stjórnlagaþingi
en frumvarp um það liggur fyrir
Alþingi.
Í ráði er að siðareglurnar verði
unnar í samvinnu stjórnarráðsins
og forsetaembættisins. Ljóst er að
forsetinn hefur aðkomu að gildis-
töku siðareglnanna enda þarf hann
að staðfesta breytingar á lögum
um laun sín, verði sú leið farin, eða
gefa út forsetabréfið, verði sá hátt-
ur ofan á.
Í kjölfar útgáfu skýrslu rann-
sóknarnefndarinnar lýsti Ólafur
Ragnar Grímsson þeirri skoðun
sinni að óþarft væri að setja emb-
ættinu sérstakar siðareglur.
- bþs/sjá síðu 6
Forseta settar siðareglur
Hafin er vinna við setningu siðareglna fyrir embætti forseta Íslands. Líklegt er að þær verði annaðhvort í
lögum um laun forseta eða gefnar út í forsetabréfi. Reglurnar á að smíða í samráði við forsetaembættið.
Met í fjölda rekkjunauta
Fjöldi rekkju-
nauta og rakst-
ur umhverfi s
kynfæri eykur
líkur á smiti
HPV-veirunnar.
allt 4
Það vantar vestfi rsk lög
Sönglagakeppni
Vestfjarða haldin
í fyrsta sinn.
tímamót 18
VÆTA SYÐRA Í dag verða austan
eða suðaustan 10-18 m/s með
vætu síðdegis S-lands, annars
hægari og víða bjart einkum N-
lands. Hiti 4-10 stig.
veður 4
6
7
5
5
4
SMÁ FLIPP Á SUNNUDEGI
Katrín Brynja Hermannsdóttir
kynnti dagskrá Sjónvarpsins með
tveggja mánaða son sinn í fang-
inu.
fólk 30
SAMGÖNGUR Bæði Icelandair og
Iceland Express flýttu flugferðum
frá Keflavíkurflugvelli í morgun
til að þotur félaganna komist á
loft áður en aska frá eldstöðinni
á Eyjafjallajökli lokar flugvellin-
um.
Veðurspá bendir til þess að
umtalsverðar truflanir verði á
flugi um völlinn næstu daga.
„Miðað við öskufallsspá lítur
ekki út fyrir að það verði flog-
ið um Keflavíkurflugvöll [í dag]
eftir að morgunflugin eru farin,“
segir Hjördís Guðmundsdóttir,
upplýsingafulltrúi Flugstoða. Hún
segir þó bót í máli að allt bendi til
þess að Akureyrarflugvöllur hald-
ist opinn.
Veðurstofa Íslands spáir aust-
lægum áttum næstu daga. Rætist
þær spár má búast við truflun-
um á flugi um Keflavíkurflugvöll
áfram fram eftir vikunni. - bj
Útlit fyrir að öskufall hindri flug um Keflavík eftir að morgunflugið tekur á loft:
Keflavíkurflugvöllur að lokast
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ÍTALÍA Vísindamenn ætla að gera
rannsóknir á ítölskum hana sem
virðist hafa skipt um kyn eftir
að refur drap allar hænurnar í
hænsnakofanum hans.
Nokkrum dögum eftir að ref-
urinn komst í hænsnakofann var
haninn farinn að verpa eggjum og
liggja á. Gerðar verða rannsóknir
á erfðaefni þessa kynlega hana til
að komast að því hvernig og hvers
vegna hann varð að hænu. - kh
Vísindamenn frá SÞ gáttaðir:
Ítalskur hani
skipti um kyn
Börðu fram oddaleik
Kefl avík og Snæfell mætast
í hreinum úrslitaleik um
Íslandsmeistaratitilinn í
körfubolta á fi mmtudags-
kvöldið.
íþróttir 26