Fréttablaðið - 27.04.2010, Qupperneq 4
4 27. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 26.04.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
215,9715
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,15 128,77
197,86 198,82
170,69 171,65
22,933 23,067
21,732 21,86
17,821 17,925
1,3603 1,3683
193,8 194,96
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Nýr Nicorette plástur
fæst nú 25 mg
og hálfgagnsær
Nýt
t!
Nicorette® nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð til að auðvelda reykingafólki að venja sig af tóbaki með því
að draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt. Nota má
forðaplásturinn einan og sér eða samtímis 2mg Nicorette lyfjatyggigúmmíi eða Nicorette innsogslyfi. Hámarksdagskammtur
er 1 stk forðaplástur og annað hvort 24 stk lyfjatyggigúmm eða 12 hylki af innsogslyfi.Til að ná sem bestum árangri skal fylgja
leiðbeiningum í fylgiseðli. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir
nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarlegar hjartsláttartruflanir, ómeðhöndlaðan
háþrýsting eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Nicorette. Þungaðar konur og konur með
barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicorette í samráði við heilbrigðisstarfsfólk. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatún 2, 210 Garðabæ.
Nicorette Invisi 25 mg
Er að hærri styrkleika en fyrri
forðaplástrar frá Nicorette
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
21°
16°
13°
19°
18°
11°
11°
21°
19°
20°
15°
29°
12°
20°
16°
9°
Á MORGUN
5-13 m/s.
FIMMTUDAGUR
3-8 m/s.
6
7
7
6
5
5
5
5
3
4
4
9
11
17
7
6
6
3
6
5
8
5
8
8
2
34 2 0
0
8
8
MILT Á LANDINU
Í DAG en snýst
smám saman í
norðaustlæga átt á
morgun með kóln-
andi veðri norðan
til en áfram verður
nokkuð milt syðra
og léttir smám
saman til. Svipuð
staða á fi mmtudag
en dregur heldur úr
úrkomu.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
DÓMSMÁL Fyrirtaka var í riftun-
armáli þrotabús Baugs Group
gegn Högum í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Málið varðar
riftun á víkjandi láni upp á um
milljarð króna frá Baugi Group
til Haga sem var á gjalddaga
2011 en var gjaldfellt í fyrra.
Þrotabúið telur að Baugur hafi
orðið af vaxtagreiðslum vegna
gjaldfellingarinnar og vill rifta
gjörningnum.
Þetta er eitt af fimm riftun-
armálum þrotabús Baugs. Um
miðjan febrúar gaf það út stefnu
vegna sölu á Högum úr búi Baugs
Group um mitt ár 2008. Búist er
við að hinir stefndu skili greinar-
gerð um málið fljótlega. - jab
Fimm riftunarmál hjá Baugi:
Þrotabúið
vill fá vextina
GÖMLU BAUGSSTÖÐVAR Þrotabú Baugs
Group rekur fimm riftunarmál fyrir
dómi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
REYKJAVÍK Brýnt er að fram-
kvæmdir verði ekki skornar niður
í kreppunni heldur þeim haldið
áfram, segir í atvinnustefnu Sam-
fylkingarinnar sem samþykkt var
á Reykjavíkurþingi flokksins um
helgina. Lagt er til að tekin verði
lán til þess að halda framkvæmda-
stiginu uppi. Borgarsjóður ráði við
lántökur sem forðað gætu fram-
kvæmda- og byggingariðnaði frá
algjöru hruni.
Þá er lagt til að viðhaldi fast-
eigna borgarinnar verði flýtt og að
lögð verði fram heildstæð áætlun
um endurnýjun eldri hverfa, borg-
arumhverfis og útisvæða. Lagt er
til að þessar framkvæmdir hefjist í
Breiðholti. Verklegar framkvæmd-
ir verði einnig tryggðar með því
að skikka eigendur niðurníddra
húsa til að lagfæra þau auk þess
sem atvinnutækifærum hönnuða,
arkitekta og iðnaðarmanna verði
fjölgað með því að auðvelda breyt-
ingar á íbúðarhúsnæði sem geri
eldri borgurum kleift að búa leng-
ur heima og auðveldi aðgengi fatl-
aðra.
Til þess að lífskjör og velferð
verði óbreytt í Reykjavík þarf að
tryggja 3,5 prósenta meðalhagvöxt
í borginni næsta kjörtímabil, segir
í stefnuskránni, og að stefna eigi
að 5 prósenta hagvexti árið 2014.
Samfylkingin setur fram tillögur í atvinnumálum í höfuðborginni:
Vilja taka lán fyrir framkvæmdum
BREIÐHOLT Sinna þarf viðhaldi húsa og
borgarumhverfis, segir í atvinnustefnu
Samfylkingarinnar sem vill hefja fram-
kvæmdir í Breiðholti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur lagt
fyrir Héraðsdóm Reykjavík-
ur að taka mál sem Lögreglu-
stjórinn á höfuðborgarsvæðinu
sækir til efnislegrar meðferðar.
Sonur varðstjóra hjá LRH kærði
annan pilt fyrir að skalla sig í
andlitið.
Dómari héraðsdóms vísaði
málinu frá, því lögreglustjór-
inn væri vanhæfur í því vegna
tengsla við varðstjóra.
Þessi dómur Hæstaréttar nú
er í samræmi við nýgenginn
dóm hans þess efnis að Héraðs-
dómur Suðurlands skyldi taka
brot gegn lögreglumanni á Sel-
fossi til efnislegrar meðferðar.
Dómurinn hafði vísað því frá
þar sem það hefði verið rann-
sakað í umdæminu þar sem lög-
reglumaðurinn starfaði.
- jss
Hæstiréttur leggur línur:
Héraðsdómur
skal dæma
SAMFÉLAG Rætt verður um end-
urnýjaðar kröfur Hagsmuna-
samtaka heimilanna um réttlæti
fyrir lántaka á aðalfundi þeirra
í kvöld.
Í tilkynningu frá samtökun-
um segir að einnig verði kynntar
hugmyndir samtakanna að lausn
húsnæðisvanda heimilanna, auk
annarra aðalfundarstarfa. Fund-
urinn verður í gamla Sjómanna-
skólanum við Háteigsveg. - kóþ
Hagsmunasamtök heimila:
Ræða réttlæti
fyrir lántaka
ENGLAND Nick Clegg, formaður
Frjálslynda demókrataflokks-
ins, segir að næsta ríkisstjórn
Bretlands þurfi að breyta kosn-
ingakerfi landsins.
Núverandi kerfi sé svo ósann-
gjarnt að breytingar á því ættu
að vera fyrsta verkefni hvaða
ríkisstjórnar sem tekur við
völdum eftir kosningarnar 6.
maí. Breyta eigi kosningakerf-
inu í hlutfallskosningar í stað
þeirra einmenningskjördæma
sem þingmenn eru nú fulltrú-
ar fyrir.
Kannanir benda til að enginn
flokkur fái hreinan meirihluta
á þinginu og því verði að mynda
samsteypustjórn.
Nick Clegg:
Breytingar á
kosningakerfi
fyrsta verk
EFNAHAGSMÁL Miklu skiptir að fara
strax af stað með markaðsátak til
að koma í veg fyrir mikinn sam-
drátt í fjölda ferðamanna sem
koma hingað til lands, segir Erna
Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar.
Farið var í slíkt átak eftir banka-
hrunið haustið 2008, en Erna segir
þörf á enn stærra átaki nú. Að því
verði íslensk stjórnvöld að koma,
ásamt hagsmunaaðilum í ferða-
þjónustu.
Ómögulegt er að segja til um
hversu mikill samdráttur í tekj-
um af komu ferðamanna verð-
ur vegna eldgossins í Eyjafjalla-
jökli, segir Erna. Gjaldeyristekjur
af komu ferðamanna hingað til
lands í fyrra voru um 155 millj-
arðar króna.
Margir hafa þegar afpantað
ferðir hingað til lands, en Erna
segir þrátt fyrir allt ákveðin tæki-
færi í gosinu. Þegar stöðugleiki
komist á flugferðir til og frá land-
inu sé ekkert því til fyrirstöðu að
ferðaþjónustan komist á flug.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra segir þegar unnið að kynn-
ingaráætlun til að draga úr afbók-
unum. Hún segir að starfshópur
hafi raunar verið starfandi frá því
fljótlega eftir að gos hófst í Eyja-
fjallajökli til að reyna að koma
réttum upplýsingum á framfæri
við erlenda fjölmiðla.
„Við erum líka að horfa inn á
við. Það er verið að teikna upp
sviðsmyndir svo við getum verið
tilbúin við öllu í sumar. Ein sviðs-
myndin er stórt gos, stærra eða
sambærilegt en núverandi gos.
Við viljum vita nákvæmlega til
hvaða ráða skal gripið við slíkar
aðstæður,“ segir Katrín.
„Það er engin leið að segja til
um á þessari stundu hvort eða
hversu mikil fækkun verður á
ferðamönnum hér í sumar,“ segir
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamála-
stjóri. „Þrátt fyrir að ástandið sé
ekki gott í augnablikinu trúi ég
því að okkur takist í sameiningu
að tryggja að ferðaþjónustan beri
ekki skaða af í sumar.“
Ólöf bendir á að eldgosið hafi
vakið gríðarlega athygli og augu
heimsins hafi beinst að Íslandi.
Gosið gefi því líka tækifæri á því
að kynna landið betur. Ótamið eðli
landsins laði að sér ferðamenn, og
svo lengi sem eldgos trufli ekki
flugsamgöngur eigi áframhald-
andi hraungos í Eyjafjallajökli
ekki að þurfa að hafa slæm áhrif á
komu ferðamanna hingað til lands.
brjann@frettabladid.is
klemens@frettabladid.is
Þarf stærra átak en
eftir bankahrunið
Bregðast verður við vísbendingum um fækkun ferðamanna með öflugu mark-
aðsátaki að mati Samtaka ferðaþjónustunnar. Þegar unnið að kynningaráætl-
un segir ráðherra. Einnig gerðar áætlanir um viðbrögð við stærra eldgosi.
FERÐAMENN Gjaldeyristekjur af ferðamönnum voru um 155 milljarðar króna á
síðasta ári. Óttast er að eldgosið í Eyjafjallajökli hafi slæm áhrif á fjölda ferðamanna
sem koma til Íslands í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Applicon A/S, dóttur-
félag Nýherja hf. í Danmörku,
hefur sem undirverktaki þýska
fyrirtækisins Siemens IT Sol ut-
ions undirritað samning um að
annast innleiðingu á SAP-við-
skiptakerfum fyrir sjúkrahús og
aðrar heilbrigðisstofnanir í Kaup-
mannahöfn og á Norður-Sjálandi.
Í tilkynningu segir að heildar-
samningurinn sé að fjárhæð um
4 milljarðar króna, þar af er hlut-
ur Applicon A/S um 1,8 milljarð-
ar króna. Vinnan við uppsetningu
kerfisins tekur um þrjú ár.
Dótturfélag Nýherja:
Gerir 1,8 millj-
arða samning