Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 2
2 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
Sigríður, eru ekki allir við
hestaheilsu?
„Nei, því miður er því ekki að
heilsa.“
Hóstapest í hrossum breiðist út um
landið. Sigríður Björnsdóttir er dýralæknir
hrossasjúkdóma.
MIÐBÆJARSKÓLINN Tryggja á stöðu
Kvennaskólans í miðborginni með því
að ríkið kaupi Miðbæjarskólann.
REYKJAVÍK Miðbæjarskólinn í
Reykjavík verður brátt seldur rík-
inu undir starfsemi Kvennaskólans
semjist um verð. Að því er fram
kemur í greinargerð Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur borgarstjóra með
tillögu um að borgin selji skóla-
bygginguna hafa verið óformlegar
viðræður um málið. Samhliða hafi
verið rætt um fjárhagslegt upp-
gjör milli ríkis og borgar vegna
Vesturhlíðarskóla og stöðu samn-
ings um viðhald framhaldsskóla í
Reykjavík. Forsenda borgarráðs
fyrir sölu Miðbæjarskólans er það
að miðað verði að lágmarki við
fyrirliggjandi verðmat embættis-
manna borgarinnar. - gar
Uppgjör milli ríkis og borgar:
Borgin vill selja
Miðbæjarskóla
VIÐSKIPTI Bakkavararbræður, þeir
Lýður og Ágúst Guðmundssynir,
hættu í stjórn Existu á fram-
haldsaðalfundi félagsins sem
haldinn var í gær. Þá hættu for-
stjórar félagsins, þeir Erlendur
Hjaltason og Sigurður Valtýsson,
störfum fyrir félagið auk þess
sem þeir sögðu sig úr stjórnum
dótturfélaga Existu.
Nýja stjórn Existu skipa eftir-
taldir aðilar; H. Ágúst Jóhann-
esson, Halldór Bjarkar Lúðvígs-
son, Magnús Magnússon, Sesselja
Árnadóttir og Þórarinn V. Þórar-
insson. -jhh
Ný stjórn kjörin hjá Existu:
Bakkavarar-
bræður víkja
ÞÝSKALAND Berlínarbúar óttast
að átök og ólæti á 1. maí, sem
hafa verið árviss viðburður ára-
tugum saman, verði harkalegri í
ár vegna þátttöku nýnasista.
Búast má við að nýnasistum
lendi saman við óháða róttæk-
lingahópa, sem vanir eru því að
láta til sín taka með grjótkasti
og íkveikjum, auk þess sem
hvorir tveggja taka væntanlega
afskipti lögreglu óstinnt upp.
Alls verða rúmlega sex þús-
und lögreglumenn á vaktinni.
- gb
Búist við árvissum átökum:
Nýnasistar hafa
boðað þátttöku
ELDGOS „Það kom í góðar þarfir að
gamall síldarháfur var til hérna
við höfnina. Við notuðum hann
til að moka öskunni á land,“ segir
Kristján Eggertsson, hafnarvörð-
ur í Vestmannaeyjum. Unnið var að
því í gærdag að hreinsa höfnina af
Eyjafjallaösku sem flotið hefur þar
inn undanfarna daga.
Eins og alþjóð veit hefur askan
úr gosinu í Eyjafjallajökli vald-
ið þeim miklum vandræðum sem
næstir eru eldstöðinni. Vestmanna-
eyjar hafa sloppið tiltölulega vel
hingað til, en mikið af ösku hefur
fallið í sjóinn við Eyjarnar. Svo létt
er askan að hún flýtur ofan á haf-
fletinum og rekur nú inn í höfnina.
Þetta veldur stærri skipum vand-
ræðum þar sem askan blandast við
kælivatn skipanna.
„Þetta fer inn á vélarnar og stífl-
ar síur. Þær geta þá ofhitnað og má
nefna að Þorsteinn ÞH hefur í tví-
gang lent í því að þurfa að drepa á
og ekki komist að bryggju,“ segir
hafnarvörðurinn.
Kristján segir að borið hafi á
þessum vanda undanfarna daga. Í
gær hafi legið fyrir að eitthvað yrði
að gera svo að starfsemi hafnarinn-
ar raskaðist ekki. Kristján, ásamt
þrem öðrum starfsmönnum hafnar-
innar, gerði þá tiltækar flotgirðing-
ar, sem hugsaðar eru til að bregðast
við olíumengun, til að þétta öskuna
við bryggju.
„Síðan tókum við gamlan síldar-
háf, sem ekki hefur verið notaður í
einhverja áratugi, og háfuðum ösk-
una upp á vörubíla. Úr þessu urðu
þrjú bílhlöss,“ segir Kristján sem
bætir því við að enn sé nokkurt
magn eftir í höfninni og ekki útséð
með að enn meira reki inn í höfnina
á næstu dögum. „Við höfum fengið
þær fréttir að stórir öskuflákar séu
á reki hérna úti fyrir.“
Fyrirhuguð var skipulögð hreins-
unarferð frá Vestmannaeyjum í
dag. Áttu þeir sem ætluðu að rétta
bændum undir Eyjafjöllum hjálp-
arhönd að fá ferðina með Herjólfi
að kostnaðarlausu.
Almannavarnir sendu hins vegar
frá sér tilkynningu í gær um að
vegna fyrirsjáanlegs öskufalls um
helgina væri hreinsunarstarfi sjálf-
boðaliða frestað þar til betur hent-
aði til slíkra starfa.
Gosið undir jöklinum er annars
stöðugt, segir í stöðuskýrslu eftir
eftirlitsflug jarðvísindamanna í
gær. Hraun rennur í norðurátt að
Gígjökli en gosórói er svipaður
og síðustu sjö daga. Enginn jarð-
skjálfti hefur mælst síðan í gær.
Ekki sjást nein merki þess að gosi
sé að ljúka. svavar@frettabladid.is
Mokuðu gosösku úr
höfninni með háfi
Hafnarstarfsmenn þurftu að hreinsa ösku úr Vestmannaeyjahöfn þar sem hún
olli stærri skipum vandræðum. Olíuhreinsunarbúnaður og áratuga gamall síld-
arháfur var nýttur til verksins. Stórir öskuflákar eru á floti úti fyrir Eyjum.
VESTMANNAEYJAHÖFN Í GÆR Hafnsögubáturinn Léttir, undir styrkri stjórn Sveins Valgeirssonar skipstjóra, var nýttur til ösku-
hreinsunar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
KÖNNUN Besti flokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn mælast með
svipað fylgi í borginni og fengju
fjóra borgarfulltrúa kjörna, hvor
flokkur, ef gengið yrði til kosn-
inga nú. Þetta er niðurstaða þjóð-
arpúls Gallup sem fréttastofa
RÚV sagði frá í gær.
Samfylkingin mælist með 28
prósenta fylgi í Reykjavík og
Sjálfstæðisflokkurinn 27 prósent.
Besti flokkurinn fengi 24 pró-
sent atkvæða, Vinstri grænir 16
prósent og Framsókn 4 prósent.
Framboð Ólafs F. Magnússonar
mælist með um 1 prósents fylgi.
Þjóðarpúls Gallup:
Besti flokkur-
inn fengi fjóra
SKATTAMÁL Skattrannsóknarstjóri hefur farið fram
á kyrrsetningu á 650 milljónum í eigu Stoða, áður
FL Group. Þá hefur einnig verið farið fram á kyrr-
setningu á eigum Jóns Sigurðssonar, framkvæmda-
stjóra Stoða.
Í yfirlýsingu frá stjórn Stoða kemur fram að
stjórnin telji aðgerðir skattayfirvalda harkalegar.
Afstaða skattrannsóknarstjóra sé byggð á röng-
um forsendum. Það sé skoðun stjórnarinnar að
ekki hafi átt að greiða íslenskan virðisaukaskatt
af kostnaði vegna þjónustu erlendra dótturfélaga,
ólíkt því sem skattrannsóknarstjóri telur.
Jón Sigurðsson sendi einnig frá sér yfirlýsingu
vegna málsins í gær. Hann fullyrðir að hann hafi
engin lög brotið í starfi sínu hjá Stoðum. Hann hafi
aðeins verið stjórnandi félagsins síðustu 27 dag-
ana af þeim þremur árum sem hin meintu brot eiga
að hafa átt sér stað. Hann hafi enga beina aðkomu
haft af virðisaukaskattskilum félagsins og enga
persónulega hagsmuni af því hvernig að þeim var
staðið.
Sagt hefur verið frá því í fjölmiðlum að skatt-
rannsóknarstjóri hyggist einnig kyrrsetja eignir
Hannesar Smárasonar, Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar og Skarphéðins Bergs Steinarssonar vegna rann-
sóknarinnar. Hannes var stjórnarformaður félags-
ins og síðar forstjóri. Jón Ásgeir og Skarphéðinn
sátu í stjórn. - sh
Fulltrúar Stoða þvertaka fyrir það að hafa svikið undan skatti:
Kyrrsett hjá Jóni og Stoðum
KÖNNUN Íslenskir karlmenn lifa
lengst allra karla í heiminum og
konur frá Kýpur lifa lengst kyn-
systra sinna, samkvæmt niður-
stöðum nýrrar rannsóknar sem
birt var í tímaritinu The Lancet.
Rannsakendur könnuðu hversu
margir létust hlutfallslega á
hverju ári áður en þeir ná sex-
tugsaldri. Á meðal karla var
talan lægst á Íslandi, en þar lát-
ast 65 karlmenn af þúsund fyrir
sextugt, 71 í Svíþjóð og 73 á
Möltu og í Hollandi.
Kýpverskar konur lifa lengst
kvenna en þar látast 38 konur
af hverjum þúsund áður en þær
verða sextugar. Um 40 látast í
Suður-Kóreu og 41 í Japan, Ítalíu
og á Grikklandi.
Ný rannsókn um lífaldur:
Íslenskir karl-
menn lifa lengst
Jafntefli í fimmtu skákinni
Veselin Topalov og Viswanathan
Anand gerðu jafntefli í 5. viðureign
heimsmeistaraeinvígisins í skák.
Anand beitti Slavneskri vörn, fékk
þrönga en trausta stöðu og náði að
jafna taflið fljótlega. Hann hefur því
enn forystu í einvíginu, 3-2.
SKÁK
RANNSAKAÐIR Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson fara
yfir ársuppgjör FL Group frá 2007. FRÉTTABLAÐIÐ / ANTON
SLYS Sá þremenninganna sem slas-
aðist mest eftir slys í stöðvarhúsi
Hellisheiðarvirkjunar í fyrrinótt
er á góðum batavegi, að sögn vakt-
hafandi læknis á Landspítalanum
í Fossvogi. Hann liggur ennþá á
gjörgæsludeild en góðar vonir eru
til þess að hann losni fljótlega, jafn-
vel í dag.
Fjölmennt lögreglu- og slökkvilið
ásamt sjúkrabílum og læknum voru
send að Hellisheiðarvirkjun aðfara-
nótt föstudags, eftir að þaðan barst
beiðni um bráðaaðstoð. Tveir starfs-
menn Orkuveitu Reykjavíkur höfðu
þá misst meðvitund við vinnu sína
vegna gasleka. Þeir urðu fyrir eitr-
un sem varð þess valdandi að þeir
misstu meðvitund og féllu af vinnu-
palli ofan á heit rör í vélasalnum og
brenndust. Sá er enn liggur á gjör-
gæsludeild brann sýnu verr en hinn.
Þriðji maðurinn komst út í tíma
og hafði samband við Neyðarlín-
una. Honum tókst að bjarga öðrum
félaga sinna út. Þeir sem ekki kom-
ust út af sjálfsdáðum voru fluttir
á sjúkrahús. Snarræði og rétt við-
brögð við slysinu ráða því að betur
fór en á horfðist, segir í tilkynningu
frá OR.
Orkuveitan fer nú yfir öryggismál
í vélasalnum. Vinnueftirlitið og lög-
regla fara með rannsókn slyssins.
- shá
Betur fór en á horfðist eftir vinnuslys í stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar:
Féllu af vinnupalli og brenndust
HELLISHEIÐARVIRKJUN Ekkert bendir til
þess að öryggisreglur hafi verið brotnar
og viðbrögð starfsmanna hafi verið til
fyrirmyndar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPURNING DAGSINS
Nýr Nicorette plástur
fæst nú 25 mg
og hálfgagnsær
Nýt
t!
Nicorette® nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð til að auðvelda reykingafólki að venja sig af tóbaki með því
að draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt. Nota má
forðaplásturinn einan og sér eða samtímis 2mg Nicorette lyfjatyggigúmmíi eða Nicorette innsogslyfi. Hámarksdagskammtur
er 1 stk forðaplástur og annað hvort 24 stk lyfjatyggigúmm eða 12 hylki af innsogslyfi.Til að ná sem bestum árangri skal fylgja
leiðbeiningum í fylgiseðli. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir
nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarlegar hjartsláttartruflanir, ómeðhöndlaðan
háþrýsting eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Nicorette. Þungaðar konur og konur með
barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicorette í samráði við heilbrigðisstarfsfólk. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatún 2, 210 Garðabæ.
Nicorette Invisi 25 mg
Er að hærri styrkleika en fyrri
forðaplástrar frá Nicorette