Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 18
18 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
ALÞINGI „Við teljum að það sé traust-
ur lagalegur grundvöllur til að taka
á þessu máli,“ segir Árni Páll Árna-
son félagsmálaráðherra og vísar
til frumvarps til laga um skyldu
lánveitenda til þess að færa niður
höfuðstól bílalána.
Ráðherrann greindi frá því í gær
að Alþingi hefði heimilað honum að
leggja frumvarpið fyrir þingflokka
stjórnarflokkanna.
Ólöf Nordal, Sjálfstæðisflokki,
spurði Árna Pál hvernig hann ætl-
aði að bregðast við kröfuhöfum ef
til þess kemur að lög verði sett um
niðurfærslu lánanna. „Þetta hvílur
mjög þungt á mörgum heimilum,“
sagði Ólöf og spurði um stöðu máls-
ins og sagði að ráðherrann hefði
talað „ansi fjálglega“ um það.
Árni Páll sagðist hafa verið í
sambandi við eignaleigufyrirtæk-
in „um eðlilega umbreytingu lán-
anna“. Fyrirtæki og skuldarar þurfi
að skipta með réttlátum hætti milli
sín því tjóni sem varð vegna hruns
krónunnar. Íslandsbanki hafi tekið
vel í hugmyndirnar og Lýsing kanni
nú svigrúm sitt til afskrifta hjá
Fjármálaeftirliti og Seðlabanka.
Ólöf sagði að aðgerðum stjórn-
valda fylgdi hætta á gjaldþroti
ákveðinna fjármögnunarfyrir-
tækja. Best væri að ná samkomu-
lagi, lög gætu leitt til hárra skað-
bótakrafna á íslenska ríkið.
Árni Páll sagði það flækja málið
að lánafyrirtækin eru veikburða og
standa ekki undir afskriftum nema
þeirra kröfuhafar taki tillit til þess
og slái af sínum kröfum. Hann
tók undir að veruleg hætta væri
á skaðabótakröfum yrði ekki rétt
gengið frá málinu í upphafi. Lána-
fyrirtækin þyrftu þó að sanna tjón
og óvíst væri að þeim tækist það
ef þau ætli að halda því til streitu
að hafa kröfur sínar upp í topp og
gangast ekki við eigin áhættu.
„Það er auðvitað ekki þannig
að við getum byggt endurreisnina
á fjármálafyrirtækjum og eigna-
leigufyrirtækjum sem eru með
svo veikan eiginfjárgrunn að þau
eigi ekki val á nokkurri annarri
markaðshegðun en að mergsjúga
viðskiptavini sína,“ sagði ráðherr-
ann. „Þau verða að geta tekið á sig
eðlilegan kostnað af umbreytingu
skulda.“
Gangi hugmyndir félagsmálaráð-
herra eftir gætu bílalán lækkað um
allt að þriðjung.
peturg@frettabladid.is
Traustur lagagrunnur
fyrir afskriftum lána
Ólöf Nordal telur lög um afskriftir bílalána geta kallað háar skaðabætur yfir
ríkið. Byggjum ekki endurreisn á fyrirtækjum sem þurfa að mergsjúga við-
skiptavini, segir félagsráðherra og segir traustan lagagrunn fyrir afskriftum.
BÍLALÁN Tæplega 50.000 heimili tóku bílalán í erlendri mynt. Lánin gætu lækkað
um þriðjung verði hugmyndir félagsmálaráðherra að veruleika.