Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 100

Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 100
68 1. maí 2010 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI Haukar unnu upp þriggja marka forskot Vals- manna á síðustu 7 mínútum leiks- ins og tryggðu sér 23-22 sigur fimm sekúndum fyrir leikslok í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíg- inu um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild karla. Valsmenn lok- uðu vörninni stóran hluta leiks- ins og náðu tvisvar fimm marka forskoti en Haukarnir gáfust aldrei upp og eru komnir 1-0 yfir í úrslitaeinvíginu. Björgvin Þór Hólmgeirsson skoraði markið mikilvæga undir lokin en markvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson var ekki síður hetja liðsins þegar hann varði frá Valsmönnum úr algjöru dauða- færi á síðustu sekúndunni. Birk- ir Ívar hélt Haukum á floti fram eftir leik og lokaði síðan markinu á lokasprettinum. „Leikurinn er 60 mínútur,“ var það fyrsta sem fékkst upp úr Björgvini í leikslok. „Við spiluð- um skelfilega sóknarlega og ég tek fyrri hálfleikinn alveg á mig. Ég var alveg út úr kortinu og ég skuldaði bara strákunum að skora þarna í lokin,“ sagði Björgvin í leikslok. „Þetta er bara einn leikur og það þarf að vinna þrjá. Miðað við það hvernig Valsmennirnir spiluðu þá ætla þeir ekki að gefa neitt. Þeir voru mjög góðir í dag, skipulagðir og agaðir. Þetta verður hörkuein- vígi og allir leikirnir verða svona,“ sagði Björgvin. Það voru fleiri hetjur í Haukalið- inu en Björgvin og Birkir því ekki má gleyma innkomu línumannsins Péturs Pálssonar sem var lausn- in á frábærri vörn Valsmanna í seinni hálfleik þar sem hann skor- aði 5 mörk. Valsmenn spiluðu frábæra vörn fram eftir leik en misstu móðinn í lokin. „Við vorum miklu sterkari en þeir en svo gáfum við aðeins eftir í lokin. Birkir fór að verja frá okkur og þeir fóru að skora einföld mörk af línu,“ sagði Óskar Bjarni Ósk- arsson, svekktur þjálfari Vals- liðins, í leikslok. „Mér fannst við aðeins vera búnir á því í endann en það vantaði aðeins orku og kraft til þess að klára þetta,“ sagði Óskar og það er ljóst að hans menn eru til alls líklegir með spilamennsku sinni fyrstu 50 mínútur leiksins. „Fólk er búið að gefa það í skyn að við eigum ekki möguleika í þetta einvígi en við áttum að vinna þennan leik og allavega ná í fram- lengingu. Þetta er bara grátlegt og engan veginn sanngjarnt,“ sagði Óskar Bjarni. Fannar Þór Friðgeirsson átti frá- bæran leik hjá Val en var kannski aðeins of æstur á stundum. Hlynur Morthens varði líka mjög vel í markinu allan leikinn. ooj@frettabladid.is Emil Hallfreðsson er nú að jafna sig á meiðslum sem hann varð fyrir í leik með Barnsley í ensku B-deildinni í mars síðastliðnum. Emil ristarbrotnaði og er því í gifsi þessar vikurnar. Hann ætti að geta byrjað aftur að æfa í upphafi næsta mánaðar. Emil var í láni hjá Barnsley frá ítalska B-deildarliðinu Reggina þar sem hann er enn samningsbundinn í tvö ár til viðbótar. Hann er þegar búinn að ganga frá öllum sínum málum í Englandi og er því kominn heim í frí. „Mér leið mjög vel í Barnsley og þetta var góð reynsla. Hins vegar setti Reggina verðmiða á mig sem var ekki raunhæfur fyrir Barnsley. Þetta varð því niðurstaðan,“ sagði Emil í samtali við Fréttablaðið. „En ég spilaði meira en 30 leiki í vetur og var allt- af í liðinu þegar ég var heill. Ég náði að skora fjögur mörk og leggja upp einhver til viðbótar. Það gekk því mjög vel.“ Hann neitar því þó ekki að hann hafi verið feginn að hafa losnað frá Reggina um stundarsakir en liðið er nú um miðja deild og á ekki möguleika á að endurheimta sæti sitt í úrvalsdeildinni. „Þetta virðist vera sama sagan á þessu tímabili. Liðið er búið að skipta þrisvar um þjálfara og ég held að það hafi alls tíu þjálfarar verið hjá félaginu síðan ég kom þangað fyrir þremur árum. Þess vegna vildi ég losna úr þessu umhverfi í bili.“ Hann segir að forráðamenn Reggina vilji halda honum. „Ég bað um að fá að fara í sumar en forseti félagsins var ekki hrif- inn af því. Ég held því að þeir yrðu glaðir að fá mig aftur. En ég mun engu að síður skoða hvaða möguleikar verða í boði fyrir mig í sumar. Það myndi þó aldrei gerast neitt fyrr en í sumar.“ Emil segist vera tilbúinn að skoða hvað sem er. „Það er ekki bara spilaður fótbolti á Englandi og Ítalíu og það er smá ævintýraþrá í manni. England er samt mjög góður kostur en ég er opinn fyrir öllu. Það yrði þó alls ekki það versta í heimi að fara aftur til Reggina. Þar er ég með mjög fínan samning og gott að vera þar.“ EMIL HALLFREÐSSON: FER EKKI AFTUR TIL BARNSLEY OG ER MÖGULEGA Á LEIÐ AFTUR TIL REGGINA Ekki það versta í heimi að fara aftur til Ítalíu HANDBOLTI Sigurbergur Sveinsson og Árni Þór Sig- tryggsson hafa báðir samið við þýska úrvalsdeildar- liðið Dormagen og fara til liðsins í sumar. Sigurberg- ur er uppalinn Haukamaður en Árni Þór kemur frá Akureyri. „Ég er búinn að skrifa undir tveggja ára samning og á bara eftir að fara í læknisskoðun,“ sagði Sigur- bergur í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann sagði að aðdragandinn hafi ekki verið langur. „Tilboðið kom fyrir einni og hálfri viku og þetta gekk svo allt mjög fljótt fyrir sig.“ Fyrr í vetur fór hann til reynslu hjá stórliði Flensburg en ekkert meira kom út úr því. „Það gekk vel hjá mér þegar ég æfði með liðinu en svo bara rann það út í sandinn. Mér finnst þó mjög jákvætt að fara til Dorma- gen og það verður gaman að fá að tak- ast á við nýja áskorun. Þarna fæ ég að spila mikið og mér finnst þetta jákvætt og eðlilegt skref á mínum ferli.“ Hann segist hafa stefnt að því lengi að komast í atvinnumennskuna og fékk tæki- færi til þess í fyrra. „Ég ákvað að bíða þá því ég vildi taka eitt ár til viðbótar hér heima. En nú finn ég að ég er tilbúinn.“ Honum líst einnig vel að fá Árna Þór með sér en þeir þekkjast vel frá því að Árni lék með Haukum. „Við höfum verið í góðu sambandi og leist báðum vel á félagið. Það verður líka frábært að fá annan Íslending með sér á meðan maður er að læra nýtt tungumál og koma sér fyrir á nýjum stað.“ Dormagen er sem stendur í sextánda og þriðja neðsta sæti deildarinnar. Það á enn góða mögu- leika á að bjarga sér frá falli en mun að óbreyttu þurfa að taka þátt í umspili um sæti í deildinni. „Ef liðið fellur þá tek ég bara eitt ár í 2. deildinni. Mér þætti það allt í lagi enda hafa margir byrjað sinn feril í Þýskalandi í þeirri deild. Það væri þó óneitanlega skemmtilegt ef þeim tæk- ist að halda sér uppi.“ - esá Sigurbergur Sveinsson og Árni Þór Sigtryggsson á leið til Dormagen í Þýskalandi: Jákvætt og eðlilegt skref hjá mér Á LEIÐ TIL ÞÝSKALANDS Sigurbergur Sveinsson í leik með Haukum í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM N1-deild karla: Haukar-Valur 23-22 (8-11) Mörk Hauka (Skot): Sigurbergur Sveinsson 7/4 (17/4), Björgvin Þór Hólmgeirsson 6(13), Pétur Pálsson 5 (5), Elías Már Halldórsson 2 (3), Einar Örn Jónsson 2 (3), Stefán Rafn Sigurmannsson 1 (1), Freyr Brynjarsson (1), Guðmundur Árni Ólafsson (1), Gísli Jón Þórisson (1). Varin skot: Birkir Guðmundsson 18 (40/3) 45% Mörk Vals (Skot): Fannar Þór Friðgeirsson 7 (17), Arnór Þór Gunnarsson 7 /3 (15/3), Sigurður Eggertsson 3 (9), Jón Björgvin Pétursson 2 (2), Baldvin Þorsteinsson 2(3), Ingvar Árnason 1(1), Orri Freyr Gíslason (1), Sigfús Páll Sigfússon (1). Varin skot: Hlynur Morthens 16 (38/3) 42%, Ingvar Kristinn Guðmundsson 0 (1/1) > Valur lánar uppalda leikmenn Pepsi-deildarlið Vals lánaði í gær þá Guðmund Stein Hafsteinsson og Einar Marteinsson til 1. deildarliðs HK. Hefur þessi gjörningur vakið furðu margra enda eru þessir tveir á meðal örfárra uppaldra leikmanna félagsins sem hafa náð að brjóta sér leið inn í meistaraflokkshóp félagsins á síð- ustu árum. Nýliðinn Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Vals, virðist þó ekki hafa mikla trú á leikmönnunum þar sem hann lánar þá frá félaginu. N1 Deildin KARLAR - ÚRSLIT - LEIKUR 2 Sunnudagur Vodafone höll Valur - Haukar 16:00 2009 - 2010 KARLAR - UMSPIL - LEIKUR 1 Laugardagur Seltjarnarnes Grótta - Afturelding 16:00 Ótrúleg endurkoma Hauka Björgvin Þór Hólmgeirsson tryggði Haukum 23-22 sigur á Val fimm sekúndum fyrir leikslok í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. SKRAUTLEGIR Þjálfararnir Aron Kristjánsson og Óskar Bjarni Óskarsson tóku virkan þátt í leiknum af hliðarlínunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÁTÖK Valsarinn Fannar Friðgeirsson fær hér óblíðar móttökur hjá varnarmönnum Hauka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.