Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 6
6 1. maí 2010 LAUGARDAGUR ALÞINGI „Viðbrögðin koma ekki á óvart,“ sagði Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráð- herra, á Alþingi í gær um afgreiðslu Presta- stefnu á frumvarpi til hjúskaparlaga. Presta- stefna vísaði frumvarpinu til frekari umræðu biskups og kenningarnefndar kirkjunnar eftir harðar deilur. Ragna sagði að hún hefði „kannski vænst þess að Þjóðkirkjan, sem hefur samfélagsleg- um skyldum að gegna, hefði tekið jákvæðar í málið“. Frumvarpið heimilar kirkjunni að vígja samkynhneigð pör í hjónaband. Auður Lilja Erlingsdóttir, varaþingmaður VG, gerði afgreiðslu Prestastefnu að umtalsefni og sagði það misbjóða réttlætiskennd sinni að kirkja studd af rík- inu fái að mismuna þjóðfé- lagshópum eftir kynhneigð. Hún spurði hvort ráðherr- ann teldi rétt að svipta þjóð- kirkjuna heimild til að vígja hjón? Ragna áréttaði að hún teldi að með því væri of langt gengið. „Það er ekki tilefni til þess,“ sagði Ragna og sagð- ist ekki hafa trú á að beita ætti kirkjuna þvingun í þessu máli: „Ég tel að umræða og rökhyggja leiði til þess að það verði almennt þannig að samkynhneigð pör geti farið í kirkju, þjóðkirkju eða aðra kirkju, og fengið þar hjónavígslu,“ sagði hún. - pg Ragna Árnadóttir telur að umræða leiði til þess að samkynhneigðir fái að gifta sig í kirkju: Viðbrögð prestastefnu komu ekki á óvart RAGNA ÁRNADÓTTIR SKÝRSLAN Óefnislegar eignir átt- földuðust að verðmæti í bókhaldi íslenskra fyrirtækja frá árunum 2003 til 2007. Þær námu samtals 40 milljörðum árið 2003 en voru orðn- ar 232 milljarðar árið 2007. Þetta kemur fram í skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis. Til óefnis- legra eigna teljast helst viðskipta- vild og aflaheimildir. Úr skýrslunni má lesa að aukn- ingin undanfarin ár skýrist að stærstum hluta af verðmæti kvóta í bókum sjávarútvegsfyrirtækja annars vegar en viðskiptavild eign- arhaldsfélaga hins vegar. Óefnislegar eignir í sjávarútvegi voru 92 milljarðar króna árið 2007 og höfðu tvöfaldast úr 46 milljörð- um árið 2005. Þar er um að ræða breytingar á verðmati kvótans, segir í skýrslunni. Bókfærðar óefn- islegar eignir eignarhaldsfélaga eins og Baugs, Existu, Samsonar og FL Group höfðu tæplega fjórfaldast á sama tímabili, úr 22 milljörðum króna í 85 milljarða. Bókfærð viðskiptavild kom fyrst fram sem umtalsverð stærð í bókum fjármálafyrirtækja árið 2005 þegar hún var 17 milljarðar og jókst í 25 milljarða árið 2007. Þró- unin sést á myndum hér til hliðar. - pg Bókhald íslenskra fyrirtækja tekið fyrir í skýrslu rannsóknarnefndar: Óefnislegar eignir áttfölduðust Á árunum 2003 til 2008 greiddu Hagar samtals út 1.732 milljónir króna í arð þótt eigið fé fyrirtækisins væri ávallt neikvætt þessi ár, að frádregnum óefnislegum eignum. Af þessu voru 1.332 milljónir greiddar út 2006. Hæsta einstaka greiðslan umfram eigið fé í bókum íslensks félags var árið 2004 þegar 2.200 milljóna arður var tekinn út úr Skeljungi þótt eigið fé væri þá neikvætt um 1.799 milljónir, ef litið var fram hjá viðskiptavild. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum greiddi út samtals 1.490 milljóna arð á tímabilinu og Toyota á Íslandi greiddi út 1.417 milljónir í þremur greiðslum á árunum 2005 til 2007 þótt jákvæð eiginfjárstaða hvíldi þá á viðskiptavild. HB Grandi greidd út meira en 100 milljónir í arð á fjórum af þeim sex árum sem skoðuð eru í skýrslunni. Í öll skiptin var eigið fé neikvætt að frádregnu verðmæti kvóta. Arðgreiðslurnar námu samtals 843 milljónum króna. Arður af engu FJÁRMÁLAHRUN Fjölmenni mætti í gær á málstofu félaga lögfræð- inga, lögmanna og dómara um það hvað taki við í íslensku samfélagi eftir að skýrsla rannsóknarnefnd- ar Alþingis hefur verið gefin út. Páll Hreinsson, hæstaréttar- dómari og formaður rannsóknar- nefndarinnar, sagði í framsögu á málstofunni að orsakanna fyrir bankahruninu væri aðallega að leita í áhættu sem bankarnir tóku á árunum 2004 til 2006. „Í þess- um hraða vexti sprengdu bankarn- ir innra eftirlit og gæðakerfi sín,“ sagði Páll sem kvað engan vafa á því að bankarnir hefðu farið allt- of geyst í skuldabréfaútgáfu á erlendum mörkuðum. Páll sagði að þegar ljóst hafi verið hvert stefndi hafi stjórn- kerfið ekki brugðist við til að lágmarka tjónið í óumflýjanlegu hruni heldur hafi Seðlabankinn og stjórnarráðið bent hvort á annað. „Þetta endaði því í þrátefli aðgerð- arleysis,“ lýsti Páll stöðunni. Bæði Páll Hreinsson og Helgi I. Jónsson, dómstjóri í Héraðs- dómi Reykjavíkur, sögðust telja að koma þyrfti á sérstöku millidóms- tigi til að létta sívaxandi álagi af núverandi dómskerfi. Líkti Páll komandi málafjölda við hamfara- hlaup. „Ef það á að geta náðst sátt í samfélag okkar verður nauðsyn- legt uppgjör að geta farið fram fyrir dómstólum,“ sagði hann. Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og einn höfunda siðakafla skýrslu rannsóknarnefndarinnar, sagði þætti lögmanna ekki hafa verið gerð sérstök skil í skýrslunni. Hún minnti hins vegar á að í siða- reglum Lögmannafélags Íslands sé tekin fram ótvíræð skylda lögmanna gagnvart réttvísi og réttlæti. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, kallaði eftir opnari og málefnalegri umræðu en hér hefði tíðkast. Reynt hafi verið að þagga niður í fólki, hlaupið hafi verið eftir „pólitískum dillum“ og skort hafi á virðingu fyrir áliti sérfræðinga. Páll tók undir með Ólafi um að verulega skorti á eðlilega rökræðu hér. Til dæmis hafi lögmenn ekki verið nógu duglegir að taka til máls. „Það er alveg ljóst að háskóla- samfélagið var beitt hótunum um að fá ekki kostun ef óróasegg- ir þar hættu ekki að tala illa um bankana,“ sagði Páll. „Á endan- um held ég að þetta hafi verið eins og í nýju fötunum keisarans – að keisarinn hafi gengið ber alllengi þegar loksins var á það bent.“ gar@frettabladid.is Þrátefli aðgerðarleysis varð Íslandi dýrkeypt Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis, og Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, vilja efla rökræðu í kjölfar hrunsins. Páll segir að nauðsynlegt uppgjör þurfi að fara fram fyrir dómstólum og að þá verði að efla. PALLBORÐ Á MÁLSTOFU LÖGMANNA Páll Hreinson, Salvör Nordal, Ólafur Þ. Harð- arson og Helgi I. Jónsson héldu erindi og sátu fyrir svörum í gær á málstofu um eftirmál hrunsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ég tel að umræða og rökhyggja leiði til þess að það verði almennt þannig að samkynhneigð pör geti farið í kirkju, þjóðkirkju eða aðra kirkju, og fengið þar hjónavígslu. RAGNA ÁRNADÓTTIR DÓMSMÁLARÁÐHERRA Dalshrauni 13, Hafnarfi rði - sími 578 9700 GLEÐILEGT SUMAR Opið 1. maí, 10:00 – 16:00 Er grillvertíðin hafin á þínu heimili? JÁ 43,1% NEI 56,9% SPURNING DAGSINS Í DAG: Viltu að giftingar samkyn- hneigðra verði leyfðar innan þjóðkirkjunnar? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.