Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 1. maí 2010 19
ALÞINGI „Ég hef ekki skipt um skoð-
un en áskil mér rétt til að gera það
að framkomnum tillögum stjórn-
lagaþings,“ sagði Össur Skarphéð-
insson utanríkisráðherra.
Sigurður Kári Kristjánsson,
Sjálfstæðisflokki, spurði á Alþingi
í gær hvort Össur væri sömu skoð-
unar og árið 2004 þegar deilt
var um fjölmiðlalög. Þá hefði
Össur gengið manna lengst í að
verja óbreyttan málskotsrétt for-
seta Íslands samkvæmt 26. grein
stjórnarskrárinnar.
Tilefni fyrirspurnarinnar var
að Jóhanna Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra hefur lýst þeirri skoðun
að afnema eigi málskotsréttinn.
Sigurður Kári sagði mikilvægt að
ríkisstjórnin leysi þennan ágrein-
ing ráðherranna og móti stefnu til
framtíðar. „Ég er ekki sammála
því,“ sagði Össur. Frumkvæði að
stjórnarskrárbreytingum eigi að
koma frá stjórnlagaþingi, sem von-
andi taki til starfa á þessu ári.
„Ef stjórnlagaþing kemst að nið-
urstöðu, skal ég íhuga að breyta
minni afstöðu,“ sagði Össur. Hægt
sé að skoða aðrar leiðir en mál-
skotsrétt forseta til að bera mál
undir þjóðina, til dæmis að minni-
hluti þingmanna geti skotið málum
í þjóðaratkvæði. -pg
Össur Skarphéðinsson segist enn andvígur breytingum á málskotsrétti forseta:
Bíður eftir tilllögu stjórnlagaþings
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Hann er
enn þeirrar skoðunar að málskotsréttur
forseta sé nauðsynlegur neyðarhemill til
að skjóta málum til þjóðarinnar „þegar
ríkisstjórnin keyrir út af“.
ALÞINGI Einar K. Guðfinnsson,
Sjálfstæðisflokki, hefur beint til
viðskiptaráðherra fyrirspurn um
hverjir séu 50 stærstu kröfuhaf-
ar og þar með 50 stærstu eigend-
ur Arion banka og Íslandsbanka.
Einar spyr ráðherrann jafn-
framt hvort fyrir liggi mat á hæfi
þessara hluthafa til þess að fara
með ráðandi hlut í bönkunum
tveimur.
Samkvæmt þingskaparlögum
hefur ráðherra tíu virka daga til
þess að svara skriflegri fyrir-
spurn þingmannsins. -pg
Einar K. Guðfinnsson:
Spyr um mat á
hæfi eigenda
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/PJETU
R
GRIKKLAND Danskir hagfræðingar hafa reikn-
að út að heildarkostnaður evruríkjanna við að
koma evrunni til bjargar gæti farið upp í 600
milljarða evra, ef Grikkland tekur Portúgal,
Spán og Írland með sér í fallinu.
Frá þessu er meðal annars skýrt í þýska
dagblaðinu Die Welt og rætt við Allan von
Mehren, sérfræðing hjá Danske bank í Dan-
mörku.
Talið er að aðstoðin við Grikki eina kosti
120 milljarða evra, eða jafnvel enn meira,
og þó er ekki víst að það dugi til að bjarga
Grikklandi út úr skuldavandanum.
Stutt er talið í að evruríkin komi sér saman
um björgunaraðgerðir til handa Grikklandi.
Þjóðverjar hafa þar verið einna tregast-
ir í taumi, enda óttast þeir áhrifin á eigin
efnahag ef aðgerðirnar duga ekki og Grikk-
ir reynast ekki borgunarmenn þessara nýju
lána.
Þýska stjórnin er raunar sökuð um að hafa
gert vanda Grikkja enn verri með tregðu
sinni til að koma þeim til bjargar. Þar með
væru Þjóðverjar jafnframt að grafa undan
evrunni.
Fjármálaráðherrar evruríkjanna sextán
ætla að hittast í Brussel á morgun, að öllum
líkindum til þess að afgreiða málið. Aðstoð-
inni fylgja ströng skilyrði um niðurskurð og
aðhald í fjármálum. - gb
Fjármálaráðherrar evrulandanna sextán hittast í Brussel á morgun:
Telja aðstoðina við evruna dýrkeypta
EVRUMERKIÐ Í FRANKFURT Ungmenni að leik fyrir utan
seðlabanka Evrópu. NORDICPHOTOS/AFP
FERÐAÞJÓNUSTA Icelandair leggur
125 milljónir króna til sérstakr-
ar markaðsherferðar einkaaðila
og hins opinbera til að verja þá
miklu hagsmuni í ferðaþjónustu
sem eru í uppnámi vegna áhrifa
eldgossins í Eyjafjallajökli.
Reykjavíkurborg leggur fram
100 milljónir og er unnið að
öflun frekara fjár. Ríkið mun
tvöfalda þá fjárhæð sem safn-
ast.
Unnið er að hugmyndum og
útfærslu herferðarinnar sem
fram fer beggja vegna Atlants-
hafsins.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðar-
ráðherra mun gera grein fyrir
átakinu á ferðamálaþingi á
þriðjudag. - bþs
Markaðsátak vegna eldgoss:
125 milljónir
frá Icelandair
Hafðu samband
Talaðu við okkur
fyrir 1. júlí.
Arion banki vill hvetja viðskiptavini sína til að kynna
sér lausnir bankans í lánamálum en þær verða í boði
til 1. júlí nk.
-
Yfir tvö þúsund viðskiptavina okkar hafa nú þegar nýtt sér þetta tækifæri.