Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 42
2 matur BÍLALÚGUÁST Júlía Margrét Alexandersdóttir SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM: Þar sem ég hef alist upp í úthverfi og svo kynnst börnunum sem ólust upp í 101 og nágrenni síðar á ævinni tel ég mig nokkurn veginn vita að stuð- ið var meira í úthverfinu þar sem var hægt að kveikja í rusli. Annað sem ég þykist fullviss um að 101-börn- in hafi farið á mis við er það stórkostlega fyrirbæri að kaupa sælgæti og mat í gegnum bílalúgu. Tíðar ökuferðir tilheyra því að búa í útnára borgarinnar og maður þekkti nokkurra ára gamall leiðakerfi borgar- innar. Ég tel það hollt og nauðsynlegt að vita sitthvað um ökutæki og finnst bíllaus lífsstíll hljóma dauflega. Ekki síst þegar ég hugsa til Aktu taktu, Nestis og Bláa turnsins. Nesti, Ártúnshöfða, var ein fyrsta bíla- lúgan á Íslandi og þaðan eru fyrstu lúguminningar mínar frá árinu 1984. Mér fannst matur vondur fram- an af en samloku með skinku og osti, úr örbylgjuofni í Ártúnsbrekku, borðaði ég. Verandi grönn og matvönd var því ósjaldan stoppað í lúgunni í brekkunni og mér boðin samloka. Krakkarnir í bekknum mínum í Ísaks- skóla áttu foreldra sem stoppuðu aldrei í lúgusjopp- um og þegar það spurðist út að mamma mín gæfi mér samlokur úr lúgu vildu bekkjarfélagarnir ólmir koma heim með mér. Þegar ég fékk bílpróf upplifði ég svipað frelsi og þegar ég mátti í fyrsta skipti fara ein út í búð. Allt í einu gat ég hvenær sem var farið sjálf í bílalúgur og ég söðlaði um á matseðlinum og prófaði alls kyns lúgurétti, nagga, báta, ostborgara og franskar. Enn í dag veit ég fátt betra en að keyra að næstu lúgu og snæða við miðstöðina í friði og þótt það hljómi þung- lynt og offitusjúklingalegt er það slökun á við besta jógatíma. Útieldun er Guðmundi Finn-bogasyni eðlislæg enda uppalinn í skátunum. Hann starfar sem matreiðslukennari í Laugarnesskóla og fer stór hluti kennslunnar fram undir berum himni. Þá heldur hann námskeið fyrir kennara og aðra áhugasama á vegum Náttúruskóla Íslands ásamt því að halda úti heimasíðunni uti- eldhus.is. Guðmundur segir fólk ekki mega vanmeta gildi matar og matreiðslu á ferðalögum enda sé matur gríðarlega stór hluti af lífi og tilveru allra. „Þess vegna hvet ég fólk til að gefa sér tíma í nestið hvort sem það er eldað heima eða þar sem er áð, en þannig verður ferðalagið eftirminnilegri en ella. Það mætti jafnvel stytta það með hliðsjón af tímanum sem fer í að elda því þó það sé gaman að geta státað af kílómetrafjölda þá er enn skemmtilegra að segja frá því að hafa eldað þrírétta máltíð undir berum himni. “ Að sögn Guðmundar er það mikil upplifun fyrir börn og full- orðna að elda á prímus úti í nátt- úrunni. Hann segir möguleikana marga og sáraeinfalda ef fólk veit hvernig á að bera sig að. „Ef und- irbúningurinn er góður og upp- skriftirnar vel valdar er framhald- ið leikur einn. Svo er líka hægt að skipuleggja ferðina þannig að fólk hafi betra og örara aðgengi að vist- um.“ En hvaða áhöld þarf að hafa við höndina? „Prímus og potta en mér finnst líka gott að nota létta teflonpönnu. Ef farið er vel með hana og passað að hún hitni ekki um of er hægt að gera ótrúlegustu hluti og er ekki langt síðan ég bak- aði brownie á slíkri pönnu.“ Guðmundur gefur uppskriftir að lummum og heimsins besta kakói sem nemendur hans í Laugarnes- skóla hafa flestir spreytt sig á gera úti á skólalóðinni„Þetta má auðvit- að líka útbúa heima og taka með í nesti,“ segir Guðmundur. Næsta útieldunarnámskeið hans fer fram 13. maí en nánari upplýsingar er að finna á utieldun.is - ve ELDAÐ Í NÁTTÚRUNNI Því eru lítil takmörk sett hvað matreiðslumaðurinn Guðmundur Finnbogason getur eldað undir berum himni en hann kennir börnum og fullorðnum réttu tökin og töfrar fram dýrindis rétti. Guðmundur segir það ekkert launungarmál að maturinn bragðast betur undir berum himni og að ekki spilli fyrir að spretta úr spori áður en sest er að snæðingi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LUMMUR 4-6 stykki 1 dl heilhveiti 1 dl haframjöl ½ tsk. lyftiduft 1/8 tsk. salt 2 tsk. púðursykur 1 dl + 1 msk. mjólk 1 msk. matarolía 1 egg ½ dl rúsínur (má sleppa) Blandið þurrefnum saman í skál eða poka. Bætið öðru hráefni út í og blandið vel saman. Steikið á pönnu. Þynnið deigið með mjólk ef þarf. Borið fram með hverju sem hugurinn girnist eins og osti, sultu, reyktum laxi, sykri eða rjóma. KAKÓ 2 bollar 2 msk. sykur 1 msk. kakóduft 1 dl vatn ½ lítri mjólk 4-6 sykurpúðar Setjið sykur, kakó og vatn í pott og hitið að suðu. Bætið mjólk- inni út í. Það þarf ekki að sjóða mjólkina bara að hita hana vel. Setjið sykurpúðana í bolla og hellið heitu kakó yfir. Púðarnir bráðna og búa til ljúffenga froðu. LUMMUR OG BESTA KAKÓ Í HEIMI matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Stefán Karlsson Pennar: Gunnþóra Gunnarsdóttir, Júlía Margrét Alexandersdóttir, Sunna Valgerðar- dóttir, Vera Einarsdóttir og Þórdís Lilja Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is KJÖTHÖLLIN Kjöthöllin er rótgróið fjölskyldufyrirtæki stofnað af Christian H. Christensen árið 1944, með það fyrir augum að bjóða upp á úrvalskjöt. Afkomendur hans hafa rekið fyrirtækið frá árinu 1974. Kjöthöllin er með verslanir í Skipholti og við Háaleitis- braut og hafa starfsmennirnir nú í nógu að snúast þar sem grilltíminn er að ganga í garð. „Við höfum ekki undan,“ viðurkennir Sigríður Björnsdóttir og bætir við að einna vinsælastir séu hamborgararnir, gerðir eins og annað úr fersku og góðu hráefni.“ Hún getur þess að Kjöthöllin bjóði upp á nokkrar gerðir matarboxa á tilboði, grill- kassa, sparkassa og fleira. Nánari upplýs- ingar megi finna á www.kjothollin.is. Ferskt og gott hráefni FRÉTTA B LA Ð IÐ /STEFÁ N MATREIÐSLUBÓKIN Með veislu í far- angrinum, mat- reiðslukver ferða- mannsins, er upp skriftakver sem var gefið út fyrir nokkrum árum og er tilvalið fyrir þá sem vilja nýta það sem hendi er næst áður en lagt er af stað í ferðalög, hvort sem til stendur að fara í sumarbústað, útilegu eða styttri ferðir. Bókin er uppfull af uppskriftum, meðal ann- ars fyrir prímusa og inniheldur útbúnaðarlista, sem er tilvalinn til að hjálpa fólki að skipuleggja sig, sögur og skemmtilegan fróðleik, sem þær Ingi- björg G. Guðjónsdóttir og Ragnheiður I. Ágústs- dóttir hafa sett saman en þær eru þaulvanir leið- sögumenn. Nánari upplýsingar á www.salka.is. Hvunndags A Aðalréttur Fuglakjöt Hollt GrænmetiFiskur Hvunndags/til hátíðabrigða Annað kjöt en fuglakjöt S Smáréttir E n d um rúntinn he ima !
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.