Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 1. maí 2010 SAMKEPPNISMÁL Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest þá niðurstöðu Samkeppniseftirlits- ins (SE) að Síminn hafi brotið sam- keppnislög gagnvart fjarskipta- fyrirtækinu TSC. Hins vegar lækkar áfrýjunarnefndin sektina sem Samkeppniseftirlitið gerði Sím- anum upphaflega að greiða úr 150 milljónum í 50 milljónir. Fyrirtækin starfa bæði á mark- aði fyrir sölu á internettengingum og internetþjónustu. TSC kvartaði til Samkeppniseftirlitsins í byrj- un maí 2007 og taldi að fyrirtækið hefði misst viðskiptavini í kjölfar samruna Símans og Íslenska sjón- varpsfélagsins sem rekur Skjá einn. Taldi TSC að Síminn hefði boðið þeim sem keyptu tengingu hjá fyrirtækinu sjónvarp um internetið án endurgjalds. Samkeppniseftirlitið komst upp- haflega að þeirri niðurstöðu að Sím- inn hefði ekki farið eftir skilyrðum sem sett voru við samruna fyrir- tækisins og Íslenska sjónvarpsfé- lagsins árið 2005. Áfrýjunarnefnd- in tekur undir þá afstöðu og telur það hafa verið neytendum til tjóns. Rök áfrýjunarnefndarinnar fyrir því að lækka sektina er versnandi fjárhagsafkoma Símans og að hugs- anlegir tæknilegir annmarkar hafi átt þátt í hluta brotsins. - shá SÍMINN Forsvarsmenn Símans meta hvort tilefni er til frekari málarekstrar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Staðfest að Síminn braut samkeppnislög á fjarskiptafyrirtækinu TSC hf.: Brot staðfest en sekt lækkuð VIÐSKIPTI Stjórn Landsbanka Íslands væntir þess að nýr banka- stjóri Landsbankans verði ráðinn um miðjan næsta mánuð. Þetta kom fram á aðalfundi Lands- bankans í gærmorgun. Umsóknar- frestur um stöðu bankastjóra rann út 18. apríl en ekki er búist við því að gefið verði upp hversu margir sóttu um starfið. Ásmundur Stefánsson, núver- andi bankastjóri, gerir ráð fyrir að hann láti af störfum í lok maí- mánaðar. Hann tók við stöðunni eftir að Elín Sigfúsdóttir lét af því starfi í fyrra. - jhh Breytingar hjá Landsbanka: Nýr bankastjóri í næsta mánuði SUÐUR-KÓREA Stjórnvöld í Suður- Kóreu munu væntanlega leita til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir gagnvart Norð- ur-Kóreu vegna herskips sem talið er víst að norðanmenn hafi sökkt í síðasta mánuði. Yfir fjörutíu manns fórust með skipinu Chenonan sem brotnaði í tvennt og sökk eftir að hafa orðið fyrir tundurskeyti. Búið er að ná flakinu af hafsbotni og eng- inn vafi talinn leika á að tundur- skeyti hafi grandað skipinu. Suður-Kórea hefur ekki form- lega sakað Norður-Kóreu um verknaðinn en menn þar í landi eru ekki í nokkrum vafa um að norðanmenn hafi staðið þar að baki. -ót Stjórnvöld í Suður-Kóreu: Vilja aðgerðir frá öryggisráði FÉLAGSLÍF Á síðasta umræðufundi UNIFEM í vetur verður sýnd heimildarmyndin Börn til sölu eftir Maríu Sigrúnu Hilmarsdótt- ur fréttakonu. Myndin fjallar um þær tugþúsundir kambódískra stúlkna sem seldar eru mansali á hverju ári. Að sýningu lokinni svarar María Sigrún spurningum, en að því búnu segir Steinunn Gyðu- og Guðjóns- dóttir, framkvæmdastýra UNI- FEM, frá starfi UNIFEM í Kamb- ódíu og nýlegri ferð sinni þangað. Fundurinn hefst klukkan 12 á morgun í húsnæði UNIFEM að Laugavegi 42. - gb UNIFEM býður í bíó: Rætt um man- sal í Kambódíu Í KAMBÓDÍU María Sigrún ásamt kamb- ódískum stúlkum. STEF býður til opins fundar um starfsemi samtakanna, megináherslur og verkefnin framundan. Hvar þá? Nk. mánudagskvöld 3. maí kl. 21.00 á Korn hlöðu- loftinu við Bankastræti (aftan við Lækjarbrekku). Hverjir mæta? Eiríkur Tómasson framkvæmdastjóri, Jenný Davíðsdóttir skrifstofustjóri og Jakob Frímann Magnússon formaður ávarpa fundinn og svara spurningum. Hvað svo? Léttar veitingar og lifandi tónlist. Hvað kostar inn? Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. STEF, who? F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Virðing Réttlæti Við berum mikla ábyrgð. Í dag fögnum við 1. maí Í dag fögnum við þeim árangri sem samstaða og barátta launþega hefur skilað undanfarna áratugi. Látum 1. maí einnig minna okkur á að standa áfram vörð um réttindi okkar svo komandi kynslóðir fái þeirra einnig notið. Það er okkar ábyrgð. Um leið og við óskum landsmönnum til hamingju með daginn, hvetjum við VR félaga til að sýna samstöðu og mæta í kröfugönguna. Safnast verður saman á Hlemmi kl. 13.00 og gengið niður Laugaveg sem leið liggur á Austurvöll þar sem úti- fundurinn hefst kl. 14.10. Flutt verða ávörp og skemmtiatriði í tilefni dagsins. Að útifundinum loknum verða kaffiveitingar á Broadway. Hlökkum til að sjá ykkur!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.