Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 94
62 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
Baywatch-stjarnan fyrrverandi,
Pamela Anderson, segir að Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseti sé
ótrúlega kynæsandi. Hin 42 ára
Pamela tekur þessa dagana þátt í
raunveruleikaþættinum Dancing
With The Stars. Hún segir
Obama kjörinn dansfé-
laga fyrir sig. „Ég hrein-
lega elska hann. Hann er
ótrúlega kynæsandi. Allt
sem hann gerir er tær
snilld,“ sagði Pamela.
„Hann er uppáhalds-
stjórnmálamaðurinn
minn. Það gengur mikið á
í heiminum og mér finnst hann
halda mjög vel á spöðunum.“
Obama er kynæsandi
Læknastarfið er sveipað
virðuleika og löngu námi
en þó hafa ekki allir lækn-
ar legið yfir námsbókum
alla sína hunds- og kattartíð
því þeir eru þónokkrir sem
hafa getið sér gott orð á tón-
listarsviðinu.
Haukur Heiðar Hauksson, söngv-
ari einnar vinsælustu hljómsveit-
ar Íslands um þessar mundir,
Diktu, er læknir og útskrifað-
ist sem slíkur 2008. Hann á ekki
langt að sækja áhugann á lækn-
ingum og tónlist því faðir hans,
Haukur Heiðar Ingólfsson, er líka
læknir og tónlistarmaður, spilaði
mikið með Ómari Ragnarssyni á
árum áður og inn á fjölda hljóm-
platna. „Það hefur gerst að ég hafi
hitt sjúkling sem kvöldið áður var
að horfa á mig á tónleikum. Það
er kannski svolítið skrýtið,“ sagði
Haukur í viðtali við Læknablaðið
fyrir skemmstu.
En þeir feðgar eru ekki einu
læknarnir sem hafa lagt stund
á tónlistina. Heimir Sindrason
hefur samið ófá lög í Eurovision-
keppnir, gefið út plötur og var
meðal annars liðsmaður dúetts-
ins Heimir og Jónas. Hans þekkt-
asta lag er sennilega hinn sígildi
slagari Hótel Jörð sem Heimir
samdi við samnefnt ljóð Tómas-
ar Gðmundssonar. Ragnar Dani-
elsen, einn fremsti hjartalæknir
þjóðarinnar, var í Frummönnum
með þeim Valgeiri Guðjónssyni
og Jakobi Frímanni en sú sveit
breytti síðar um nafn og varð
að Stuðmönnum. Ragnar er enn
mikill áhugamaður um tónlist
og hefur að sögn vina og vanda-
manna ekki sungið sitt síðasta á
því sviði.
Hljómsveitin Tatarar sló eftir-
minnilega í gegn á hátindi blóma-
tímabilsins á Íslandi. Tveir liðs-
manna sveitarinnar hafa frá því
að tónlistarferlinum lauk snúið
sér að störfum innan heilbrigðis-
geirans en trommari sveitarinnar,
Magnús Magnússon, er sálfræð-
ingur. Söngvari Tatara var hins
vegar Stefán Eggertsson læknir.
Hann er þó eflaust þekktastur í
dag meðal handboltakappa fyrir
að vera faðir Ólafs Stefánsson-
ar, fyrirliða íslenska landsliðs-
ins í handbolta. Þá er ónefnd Eva
Ásrún Albertsdóttir, sem gerði
það gott á árum áður í poppinu
og margir Íslendingar þekkja úr
Eurovision-keppnum, en hún er
ljósmóðir.
Lýður Árnason var lengi vel
læknir á Flateyri en hann er einn-
ig einn af stofnendum hljómsveit-
arinnar Grjóthruns ásamt Grími
Atlasyni, fráfarandi sveitar-
stjóra í Dalabyggð. Ekki má held-
ur gleyma Páli Torfa Önundar-
syni lækni, sem hefur spilað á
gítar með Diabolus in Musica og
Six-pack Latino. Þá er ónefnd-
ur í þessari upptalningu nýj-
asti popp-læknirinn, Helgi Júlí-
us Óskarsson, sem sendi nýverið
frá sér sína fyrstu plötu, Sun for
a Lifetime. freyrgigja@frettabladid.is
Læknar rokka og poppa
ÖFLUGIR Á LÆKNA-OG TÓNLISTARSVIÐINU
Þeir Páll Torfi Önundarson, Heimir Sindrason, Lýður Árnason, Haukur
Heiðar Ingólfsson og Haukur Heiðar Hauksson eru allir músíkalskir lækn-
ar. Í þessum hópi eru líka menn eins og Helgi Júlíus Óskarsson og Stefán
Eggertsson en Helgi gaf nýlega út sína fyrstu plötu. Stefán var hins vegar
söngvari blómabarnahljómsveitarinnar Tatarar sem varð heimsfræg á Íslandi
með laginu Dimmar rósir. Með Stefáni í Töturum spilaði Magnús Magnús-
son sem er sálfræðingur í dag. Eva Ásrún Albertsdóttir sem gerði það gott
í poppinu á árum áður er síðan ljósmóðir.
PAMELA ANDERSON
Pamelu finnst Barack
Obama Bandaríkja-
forseti vera ótrúlega
kynæsandi.
Íslensk náttúra
– afl ferðaþjónustunnar og áskorun
Ferðamálaþing haldið á Hilton Reykjavik Nordica
þriðjudaginn 4. maí 2010 kl. 13:00-17:00
Dagskrá:
Kl.13:00 Setning - Katrín Júlíusdóttir, ferða- og iðnaðarmálaráðherra
Kl.13:15 Tourism means globalization – natural disasters are global by
nature - Norbert Pfefferlein, professor and president of TCME,
a marketing and tourism research company.
Kl. 13:35 Að móta umræðuna – þankar um almannatengsl,
Valþór Hlöðversson framkvæmdastjóri Athygli ehf.
Kl. 13:55 Mikilvægi markaðsaðgerða í kjölfar óvæntra atburða –
Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðs-
sviðs Icelandair og Matthías Imsland forstjóri Iceland Express.
Kl. 14:20 Góðir gestir, hvað má bjóða ykkur? - Gestgjafahlutverkið á
umbrotatímum - Þórólfur Árnason, stjórnarformaður Flugstoða.
Kl. 14:40 Kaffi
Kl. 15:00 Hvernig bregðast skal við í neyð og tryggja áframhaldandi
rekstur- Leó Sigurðsson öryggis- heilsu- og umhverfisstjóri
Actavis á Íslandi.
Kl. 15:20 Eldgos á Suðurlandi – orðspor og öryggi? –
Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri
Kl. 15:30 Má bjóða þér gos? Eldfjöll sem aðdráttarafl í ferðamennsku -
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur
Kl. 15:50 Samantekt – Árni Gunnarsson, formaður Samtaka
ferðaþjónustunnar
Kl. 16:00 Setið fyrir svörum
Katrín Júlíusdóttir ráðherra ferðamála,
Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri,
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF,
Helgi Már Björgvinsson framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Icelandair og
Matthías Imsland forstjóri Iceland Express
Kl. 16:30 Opnun og kynning á endurbættum landkynningarvef
Ferðamálastofu
Kl. 16:45 Veitingar í þinglok
Fundarstjóri Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður
Allir velkomnir, skráning er hafin
á www.ferdamalastofa.is