Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 82
1. maí 2010 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU
(1885-1968) VAR FÆDDUR ÞENN-
AN DAG.
„Sönn menning er hrífandi
og björt yfirlitum.“
Jónas frá Hriflu var formað-
ur Framsóknarflokksins og
þingmaður. Var dómsmála-
ráðherra á tímabili en var
umdeildur stjórnmálamað-
ur. Hann var skólastjóri Sam-
vinnuskólans í níu ár. Eftir
hann liggja bækur, rit og
greinar um þjóðfélagsmál.
Manneskja, ekki markaðsvara, stóð á
stórri gifsstyttu sem konur í rauðum
sokkum báru í 1. maí göngunni
árið 1970. Þetta var upphafið að
Rauðsokkahreyfingunni sem róttækar
kvenréttindakonur stofnuðu. Síðan
eru liðin fjörutíu ár.
Rauðsokkahreyfingin var grasrót-
arhreyfing sem barðist fyrir bættum
kjörum og auknum réttindum
kvenna. Það gerði hún með því að þrýsta á Alþingi og aðrar stofn-
anir í þeim málum sem voru konum mikilvæg. Eitt af baráttumál-
um hennar var að fóstureyðingar yrðu gerðar frjálsar.
Rauðsokkurnar gengu út frá þeirri hugmynd að karlar og konur
væru í grundvallaratriðum eins, fyrir utan hinn augljósa, líffræðilega
mun. Því ættu kynin að vera jafnt metin að verðleikum og njóta
sömu virðingar.
ÞETTA GERÐIST: 1. MAÍ 1970
Rauðsokkahreyfingin
RAUÐSOKKUR AÐ ÞRAMMA
Á 1. MAÍ 1970 MEÐ STYTTU Á
MILLI SÍN.
Dagarnir eru þéttskipulagðir hjá Elínu
Björgu Jónsdóttur, formanni Banda-
lags ríkis og bæja, en á milli funda
sinnir hún beiðni blaðamanns um smá-
viðtal. Tilefnið er að hún heldur sitt
fyrsta ávarp í dag á Austurvelli sem
formaður BSRB. Hún tók við embætt-
inu síðastliðið haust, og er fyrst allra
kvenna og jafnframt fyrsti bæjar-
starfsmaðurinn sem gegnir því. Fram
að því höfðu formennirnir komið úr
ríkisgeiranum.
Að sjálfsögðu liggur verkalýðsfor-
ingja mikið á hjarta á þessum tímum
enda kveðst Elín Björg glöð yfir því
að vera ein þeirra sem fá að taka til
máls á útifundinum í dag. „Inntak ræð-
unnar í dag verður um þá forgangsröð-
un sem við þurfum að viðhafa í þessu
þjóðfélagi því við verðum að vernda
það sem skiptir mestu máli, fjölskyld-
una, heimilin og velferðarkerfið. Ef við
varðveitum ekki almannaþjónustuna
á svona tímum þá eru miklar líkur á
að verr fari en nauðsynlegt er,“ segir
hún ákveðin.
„Fólkið innan BSRB tilheyrir mik-
ilvægum stéttum í okkar þjóðfélagi,“
bendir Elín Björg á. Konur eru 70 pró-
sent félagsmanna, flestar í láglauna-
störfum við umönnun og aðra þjón-
ustu. Einnig eru þar stórir hópar karla
sem sinna löggæslu, slökkvistörfum,
sjúkraflutningum og öryggisgæslu.
„Við getum ekki haldið hér uppi sam-
félagi eins og við viljum hafa það nema
þessi þjónusta sé til staðar,“ segir hún,
greinilega í fúlustu alvöru. „Allir
félagsmenn í BSRB vinna störf sem
enginn má án vera.“
Elín Björg hefur búið í Þorlákshöfn
í þrjátíu ár og ekur daglega á milli
hennar og höfuðborgarinnar. Hún
hefur lengi staðið í stéttabaráttu því
hún var formaður Félags opinberra
starfsmanna á Suðurlandi í hátt í tut-
tugu ár og tók einnig þátt í samningum
við ríki og sveitarfélög fyrir hönd allra
bæjarfélaga á landinu. Þá var hún rit-
ari BSRB um árabil og varaformaður
um tíma. Það var því ekki margt sem
kom á óvart í nýja starfinu, að hennar
sögn. „Ég þekki vinnubrögðin talsvert
vel en ábyrgðin hefur aukist,“ segir
hún. Þótt engir tveir dagar séu eins í
vinnunni kveðst hún yfirleitt vita að
morgni hvaða verkefni sé búið að bóka
þann daginn. „En svo fær maður alls
konar mál í fangið sem þarf að bregð-
ast við og reynt er að leysa eftir bestu
getu,“ segir hún.
Starfið felst meðal annars í sam-
skiptum við viðsemjendur BSRB, rík-
isstjórn og sveitarfélög og Elín Björg
viðurkennir að samningar séu snúnir á
svona peningaleysistímum. „Auðvitað
reynum við öll að leggja okkar af mörk-
um við að lágmarka þann skaða sem
orðinn er í þjóðfélaginu og er fyrirsjá-
anlegur en almannaþjónustan er mikil-
vægari nú en nokkru sinni áður.“
gun@frettabladid.is
ELÍN BJÖRG JÓNSDÓTTIR: FLYTUR SITT FYRSTA ÁVARP Í DAG SEM FORMAÐUR
Allir félagsmenn í BSRB vinna
störf sem enginn má án vera
FORINGINN „Almannaþjónustan er mikilvægari nú en nokkru sinni áður,“ segir Elín Björg Jónsdóttir. MYND/EGGERT JÓHANNESSON
Knútur Björnsson
læknir er
80 ára í dag 1. maí.
Hann er fyrsti sérfræðingurinn í
lýtalækningum á Íslandi. Hans starfs-
vettvangur var á Landspítala Háskóla-
sjúkrahúsi, sem lýtalæknir og almennur
skurðlæknir. Ásamt aðalstarfi var
Knútur ætíð með sjálfstæða starfsemi í
lýtalækningum í Domus Medica.
Hann verður að heiman á afmælisdaginn.
80 ára afmæli
Í dag 1. maí er 80 ára
Heimir Brynjúlfur
Jóhannsson,
prentsmiðjustjóri og útgefandi,
Gullsmára 11, Kópavogi.
Hann tekur á móti gestum í
Félagsheimilinu Gullsmára 13,
Kópavogi, kl. 15-18 á afmælisdaginn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Marheiður Viggósdóttir
frá Siglufirði, Hverfisgötu 47,
Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði,
sunnudaginn 25. apríl.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju við
Strandgötu, þriðjudaginn 4. maí kl. 15.00.
Ásdís Guðmundsdóttir Birgir Sigmundsson
Bjarney Guðmundsdóttir Bjarni Guðjónsson
Guðlaug Guðmundsdóttir Jón Alfreðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar
Jón Árnason
Sléttuvegi 13
sem lést laugardaginn 17. apríl, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju mánudaginn 3. maí kl. 13.
Margrét Arndís Jónsdóttir
Fanný Erla Jónsdóttir
Trausti Már Kristjánsson
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Ásdís Andrésdóttir
Arnalds,
Kleppsvegi 4, Reykjavík,
andaðist sunnudaginn 25. apríl. Útför hennar verður
gerð frá Áskirkju mánudaginn 3. maí kl. 15.00.
Sigurður St. Arnalds Sigríður María Sigurðardóttir
Andrés Arnalds Guðrún Pálmadóttir
Sigrún Jóhannsdóttir
Ólafur Arnalds Ása Lovísa Aradóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Sólveigar Bjarnadóttur
frá Flateyri,
Sendum starfsfólki H-1 Hrafnistu Reykjavík sérstakar
þakkir fyrir einstaka umhyggju.
Sigurður Ásgeirsson Hjördís Björnsdóttir
Dagur Ásgeirsson Sunneva Traustadóttir
Bergþóra Ásgeirsdóttir Guðmundur Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Sigurður Einarsson,
Grenigrund 18, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness 23. apríl. Útförin fer fram
frá Akraneskirkju mánudaginn 3. maí kl. 14.
Ásta Kristjánsdóttir
Ragnar Bergþór Sigurðsson
Guðný Sjöfn Sigurðardóttir Ingólfur Valdimarsson
Einar Bragi Sigurðsson
og afabörn.