Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 104
72 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Leikirnir í enska boltan-
um á morgun eru afar áhugaverðir
enda geta úrslitin í deildinni ráð-
ist. Man. Utd þarf að klára Sunder-
land um helgina og treysta á aðstoð
Liverpool til þess að eygja von um
að verja enska meistaratitilinn.
United er stigi á eftir Chelsea og
misstígi Chelsea sig ekki á Anfield
á liðið titilinn vísan enda mætir
það Wigan á heimavelli í lokaum-
ferðinni. Verður að teljast ólíklegt
að Chelsea vinni ekki þar og því
verður United að treysta á aðstoð
frá Liverpool á morgun.
Sir Alex Ferguson, stjóri Man.
Utd, segist ekki trúa því að Liver-
pool fórni heiðri sínum og sögu með
því að gefa Chelsea sigur í leiknum
svo United verði ekki meistari.
„Þetta félag hefur tekið þátt
í ellefu úrslitaleikjum í Evrópu
og unnið átján titla. Alvöru félög
kasta ekki frá sér hefðunum fyrir
einn leik. Stuðningsmennirnir vita
það,“ sagði Ferguson.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um hversu erfitt tímabil-
ið hefur verið fyrir Liverpool og
félagið varð fyrir enn einu áfallinu
á fimmtudag þegar Atletico Madrid
sló liðið út í undanúrslitum Evrópu-
deildar UEFA.
Liverpool á enn veika von um
að ná fjórða sæti deildarinnar
og sú litla von er væntanlega það
eina sem keyrir liðið áfram þessa
dagana.
„Það er erfitt að geta sér til um
hvernig leikmönnum liðsins muni
líða. Það er verk Rafa að undir-
búa liðið eins vel og hann getur.
Hvernig við töpuðum fyrir Bayern
í Meistaradeildinni gerði mér erfitt
fyrir. Það var ekki auðvelt verk að
ná mönnum aftur á lappir en maður
verður bara að gera það. Þetta er
vinnan manns. Ég var í tvo daga að
jafna mig en það er ekki endalaust
hægt að vorkenna sjálfum sér,“
sagði Fergie.
„Við hefðum vissulega viljað að
leikur Liverpool á fimmtudag hefði
aðeins staðið yfir í 90 mínútur og ég
hef alltaf sagt að lið í Evrópukeppni
fá ekki næga hjálp og skilning frá
forráðamönnum deildarinnar. Að
spila hádegisleik á sunnudegi eftir
Evrópuleik á fimmtudegi er ekki
sanngjarnt.“
Staðan sem er uppi núna minnir
óneitanlega á stöðuna sem kom upp
árið 1995. Á lokadegi tímabilsins
fór United á Upton Park að keppa
við West Ham og Liverpool tók á
móti Blackburn. United þurfti þá
að vinna sinn leik og treysta á sigur
Liverpool til þess að vinna enska
meistaratitilinn. Liverpool stóð sína
plikt í þeim leik en United klúðraði
sínum leik og sá á eftir titlinum.
Ferguson vonar að Benitez og
félagar geti endurtekið þann leik á
morgun og hjálpað United að vinna
sinn nítjánda titil.
„Við treystum á Liverpool fyrir
fimmtán árum og félagið skilaði
sínu. Vissulega voru margir enskir
leikmenn í liði Liverpool þá og þeir
skildu hvað saga Liverpool skiptir
miklu máli. Ég trúi því ekki að það
hafi breyst mikið og vonandi skilja
núverandi leikmenn félagsins jafn
vel í dag hversu miklu máli sagan
skiptir þetta félag,“ sagði Ferguson.
henry@frettabladid.is
Ferguson biður Rafa um aðstoð
Næstsíðasta umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram um helgina. Man. Utd sækir Sunderland heim og
Liverpool tekur á móti Chelsea. Lundúnaliðið verður meistari á morgun sigri liðið Liverpool og United
tapar. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, treystir því að Liverpool fórni ekki sögu félagsins og gefi leikinn.
SOS Ferguson og Rafa Benitez hefur aldrei verið vel til vina. Ferguson þarf nú að
treysta á Benitez um helgina sem honum er eflaust á móti skapi. NORDIC PHOTOS/AFP
LEIKIR HELGARINNAR
Laugardagur:
Birmingham - Burnley
Man. City - Aston Villa
Portsmouth - Wolves
Stoke - Everton
Tottenham - Bolton
Sunnudagur:
Liverpool - Chelsea
Sunderland - Man. Utd
Fulham - West Ham
HANDBOLTI Það verður mikill
slagur í Kiel á sunnudag er síð-
ari leikur Kiel og Rhein-Neckar
Löwen í átta liða úrslitum Meist-
aradeildarinnar fer fram.
Kiel vann fyrri leikinn, 29-28,
sem fram fór á heimavelli Löwen.
„Fyrri leikurinn var ekki
nógu góður hjá okkur. Úrslitin
eru samt ekkert svo slæm og við
eigum enn möguleika á því að
komast í undanúrslit. Ég trúi því
að við getum unnið í Kiel,“ sagði
Ólafur Stefánsson í spjalli við
heimasíðu Meistaradeildarinnar.
„Ég tel okkur eiga fína mögu-
leika þó það sé vissulega afar erf-
itt að leggja Kiel á þeirra heima-
velli með meira en einu marki.
Við höfum samt ekki tíma til þess
að velta okkur upp úr fortíðinni
heldur verðum við að einbeita
okkur að leiknum á sunnudag,“
sagði Ólafur sem hefur fjórum
sinnum unnið Meistaradeildina.
- hbg
Ólafur Stefánsson:
Við getum vel
unnið í Kiel
SIGURSÆLL Ólafur Stefánsson er einhver
sigursælasti leikmaðurinn í sögu Meist-
aradeildarinnar. NORDIC PHOTOS/BONGARTS
Reykjavíkurborg hefur opnað tíu nýja hverfavefi fyrir borgarbúa.
Þar er meðal annars hægt að kynna sér þjónustu og framkvæmdir
ásamt því að senda inn ábendingar og hugmyndir.
Fylgstu með þínu hverfi á www.hverfi dmitt.is
www.reykjavik.is
www.hverfi dmitt.is