Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 16
16 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
SKOÐANAKÖNNUN: Borgarstjórnarkosningar í Reykjavík
Miklar sviptingar hafa
orðið á fylgi flokka í
Reykjavík samkvæmt nýrri
könnun Fréttablaðsins og
Stöðvar 2. Sjálfstæðisflokk-
urinn er stærsti flokkurinn
en yfirlýsta grínframboð-
ið Besti flokkurinn mælist
með meira fylgi en Sam-
fylkingin, og jafn marga
borgarfulltrúa.
Besti flokkurinn, viðurkennt grín-
framboð undir forystu skemmti-
kraftsins Jóns Gnarr, myndi fá
atkvæði tæplega fjórðungs kjós-
enda í borgarstjórnarkosningun-
um í Reykjavík í lok maí og fjóra
borgarfulltrúa. Þetta kemur fram í
niðurstöðum nýrrar skoðanakönn-
unar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur
mests stuðnings meðal borgarbúa
samkvæmt könnuninni, og fengi 30
prósent atkvæða og fimm borgar-
fulltrúa ef marka má niðurstöður
könnunarinnar.
Í könnun Fréttablaðsins og
Stöðvar 2 sem gerð var 25. mars
fékk flokkurinn 39,4 prósent
atkvæða og sjö borgarfulltrúa,
sama fjölda og hann hefur í dag.
Fylgi við flokkinn hefur því dreg-
ist saman um 9,4 prósentustig.
Alls sögðust 23,4 prósent þeirra
sem afstöðu tóku að þeir myndu
greiða Besta flokknum atkvæði
sitt yrði gengið til kosninga nú.
Það myndi skila flokknum fjórum
borgarfulltrúum.
Í síðustu könnun Fréttablaðsins
og Stöðvar 2 mældist flokkurinn
með 12,7 prósent og tvo borgar-
fulltrúa. Á rúmum mánuði hefur
fylgið því nær tvöfaldast.
Samfylkingin mælist nú þriðji
stærsti flokkurinn í borginni með
stuðning 22,8 prósent. Flokkurinn
fengi fjóra borgarfulltrúa yrðu
það niðurstöður kosninga. Fylgi
við flokkinn hefur minnkað um 3,5
prósentustig milli kannana.
Vinstri græn fá stuðning 17
prósenta þeirra sem afstöðu taka
í könnuninni, sem myndi skila
flokknum tveimur borgarfulltrúum.
Besti flokkurinn stærri en Samfylkingin
Flestir sem afstöðu tóku í skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 vilja
að Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, verði áfram
borgarstjóri eftir kosningar 29. maí.
Alls sögðust 36,6 prósent vilja Hönnu Birnu sem borgarstjóra að kosning-
um loknum. Næstflestir nefndu Dag B. Eggertsson, oddvita Samfylkingarinn-
ar, eða 31 prósent. Þriðji vinsælasti borgarstjórakandídatinn var Jón Gnarr,
efsti maður á lista hjá Besta flokknum, en 25,7 prósent sögðust vilja hann
sem næsta borgarstjóra.
Aðrir fengu minni stuðning í stólinn. Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri
grænna, nýtur stuðnings 4,2 prósenta, og 1,8 prósent aðspurðra nefndu
Einar Skúlason, oddvita Framsóknarflokksins. Ólafur F. Magnússon, sem
býður fram fyrir hönd Framboðs óháðra, fékk stuðning 0,7 prósenta.
Hanna Birna nýtur svipaðs fylgis meðal karla og kvenna, en Dagur virðist
sækja sitt fylgi frekar til kvenna. Alls sögðust 37 prósent kvenna styðja Dag í
stól borgarstjóra en 26 prósent karla. Hlutföllin voru öfug hjá Jóni Gnarr, 32
prósent karla vilja hann sem næsta borgarstjóra en 17 prósent kvenna.
Af þeim sem ekki vildu einhvern af forystumönnum framboðanna vildu
flestir fá ópólitískan borgarstjóra.
Hringt var í 800 manns fimmtudaginn 29. apríl. Þátttakendur voru valdir
með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlut-
fallslega eftir aldri.
Spurt var: Hver vilt þú að verði borgarstjóri að loknum sveitarstjórnar-
kosningum? Alls tóku 56 prósent þeirra sem hringt var í afstöðu til
spurningarinnar.
Flestir vilja Hönnu Birnu sem borgarstjóra
FRÉTTASKÝRING
BRJÁNN JÓNASSON
brjann@frettabladid.is
Vinstri græn mældust með 14,2
prósenta fylgi í síðustu könnun,
og hafa því bætt við sig 2,8 pró-
sentustiga fylgi, þó það skili þeim
óbreyttum fjölda borgarfulltrúa.
Aðeins Sjálfstæðisflokkur,
Besti flokkurinn, Samfylkingin
og Vinstri græn fá nægjanlegan
stuðning til að tryggja sér borgar-
fulltrúa, samkvæmt könnun Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2.
Framsóknarflokkurinn mælist
nú með stuðning 3,8 prósenta kjós-
enda, 1,8 prósentum minna en í síð-
ustu könnun.
Reykjavíkurframboðið, sem
nýlega tilkynnti um framboð í
kosningunum, nýtur samkvæmt
könnuninni stuðnings 1,7 prósenta
borgarbúa.
Óháð framboð um heiðarleika,
undir forystu Ólafs F. Magnús-
sonar, fengi stuðning 1,3 pró-
senta yrðu niðurstöður kosninga í
takt við könnun Fréttablaðsins og
Stöðvar 2.
Enginn þeirra sem afstöðu tóku
í könnuninni sögðust myndu kjósa
Frjálslynda flokkinn í sveitar-
stjórnarkosningum.
Karlar styðja frekar Besta flokkinn
Umtalsverður munur er á afstöðu
kynjanna til þriggja flokka sér-
staklega. Þannig styðja karl-
menn mun frekar Besta flokkinn
en konur. Alls sögðust 28 prósent
karlmanna myndu kjósa flokkinn
en 17 prósent kvenna.
Samfylkingin nýtur meiri stuðn-
ings meðal kvenna en karla. Tæp-
lega 28 prósent kvenna styðja Sam-
fylkinguna en 19 prósent karla.
Svipaða afstöðu má sjá til Vinstri
grænna þar sem tæplega 21 pró-
sent kvenna sagðist styðja flokk-
inn en tæplega 15 prósent karla.
Minni munur var á afstöðu kynj-
anna til Sjálfstæðisflokksins, 31
prósent karla sögðust myndu kjósa
flokkinn, en 29 prósent kvenna.
Ekki var marktækur munur á
afstöðu kynjanna til smærri fram-
boða.
Tæp 59 prósent tóku afstöðu
Hringt var í 800 manns fimmtu-
daginn 29. apríl. Þátttakend-
ur voru valdir með slembiúrtaki
úr þjóðskrá. Svarendur skiptust
jafnt eftir kyni, og hlutfallslega
eftir aldri.
Spurt var: Hvaða lista myndir
þú kjósa ef gengið yrði til sveit-
arstjórnakosninga í dag? Ef ekki
fékkst svar var spurt: Hvaða flokk
er líklegast að þú myndir kjósa?
Ef ekki fékkst svar var að lokum
spurt: Er líklegra að þú myndir
kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða ein-
hvern annan flokk? Alls tóku 58,8
prósent þeirra sem hringt var í
afstöðu til spurningarinnar.
Dagur B. Eggertsson
31,0%
Einar Skúlason
1,8%
Hanna Birna Kristjánsdóttir
36,6%
Jón Gnarr
25,7%
Ólafur F. Magnússon
0,7%
Sóley Tómasdóttir
4,2%
Framsóknarflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn
Frjálslyndi flokkurinn
Óháð framboð um heiðarleika
Reykjavíkurframboð
Samfylkingin
Vinstri græn
Besti flokkurinn
50
40
30
20
10
0%
Kosningar
27. maí 2006
Könnun
25. mars
Könnun
29. apríl
Fylgi flokka
Skipting borgarfulltrúa
Samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 næðu fyrstu fimm full-
trúarnir á lista Sjálfstæðisflokksins kjöri í komandi kosningum, sem og
fjórir fulltrúar frá Samfylkingunni og Besta flokknum og tveir frá Vinstri
grænum, eins og sjá má hér til hliðar.
HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2
HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2
Verið öll
velkomin!
Vi
ns
tri
hr
ey
fin
gi
n
- g
ræ
nt
fr
am
bo
ð
vi
ll
be
ita
s
ér
fy
rir
ró
ttæ
ku
m
þ
jó
ðf
él
ag
su
m
bó
tu
m
a
lm
en
ni
ng
i t
il
hagsbóta, hefja vernd náttúru og umhverfis til vegs á Íslandi og treysta byggð um allt land. Hreyfingin er samstarfsvettvangur og baráttutæki þeirra, sem
vilja útrým
a kynjam
isrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi... // sjá m
eira á w
w
w
.vg.is/stefna/
Kosningaskrifstofa VG í Reykjavík I Suðurgata 10 I opið kl. 13-18 alla daga I sími 517 0723 I reykjavik@vg.is I www.vg.is
Gleðilega hátíð!
Vinstri græn lýsa yfir samstöðu
með launafólki um allt land.
Við bjóðum í 1. maí kaffi að Vestugötu 7
eftir kröfugöngu og útifund.