Fréttablaðið - 01.05.2010, Qupperneq 4
4 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
LEIÐRÉTTING
HEILBRIGÐISMÁL Vafi leikur á um
að ríkið hafi beitt sér í samræmi
við meginreglur um jafnræði og
meðalhóf í aðgerðum til þess að
beina notkun lyfja í átt að ódýr-
ari lyfjum, segir í nýju áliti á vef
Félags atvinnurekenda.
Þá hafi skort á að hið opinbera
hafi farið eftir formreglum sem
tilgreindar eru í nýjum dómi Evr-
ópudómstólsins þar sem tekist
var á um aðferðir til að lækka
lyfjakostnað hins opinbera.
Félagið telur hins vegar líklegt
að bragarbót verði gerð á. - óká
Evrópudómur snýr að ríkinu:
Aðgerðir virð-
ast lögmætar
ALÞINGI Utanríkisráðherra telur
að efnahagserfiðleikar Grikk-
lands og fleiri ESB-ríkja breyti
því ekki að aðild Íslands að sam-
bandinu sé einn af lyklunum að
endurreisn Íslands.
Vigdís Hauksdóttir, Framsókn-
arflokki, spurði Össur Skarphéð-
insson á Alþingi í gær hvort hann
teldi enn að það hefði verið rétt að
sækja um aðild að ESB og sækj-
ast eftir evrunni sem gjaldmiðli.
Grikkland er gjaldþrota, sagði
Vigdís, fleiri ESB-ríki ramba á
barminum og ESB sjálft stefn-
ir í allsherjargjaldþrot. „Það eru
fréttir fyrir mig að ESB sé á leið í
gjaldþrot,“ sagði Össur. -pg
Segir ESB stefna í gjaldþrot:
Aðild enn lykill
að endurreisn
BANDARÍKIN Fjórtán prósent full-
orðinna Bandaríkjamanna hafa
orðið fyrir áhrifum af eldgosinu
í Eyjafjallajökli með einum eða
öðrum hætti. Þetta kemur fram
í skoðanakönnun, sem Gallup
gerði fyrir dagblaðið USA Today
um síðustu helgi.
Tíu prósent svarenda sögðu
ferðaáætlanir vina sinna eða
ættingja hafa raskast af völdum
eldgossins. Fimm prósent sögðu
starfsemi fyrirtækis sem þau
starfa hjá hafa raskast. Eitt
prósent sagði eigin ferðaáætl-
anir hafa raskast, en þrjú pró-
sent sögðu gosið hafa haft önnur
áhrif á líf þeirra sjálfra.
- gb
Eldgosið raskar lífi vestan hafs:
Fjórtán prósent
fundu áhrifin
Flugumferðarstjórar semja
Félagsmenn í Félagi íslenskra flugum-
ferðarstjóra hafa samþykkt kjara-
samning félagsins við Flugstoðir ohf.
og Keflavíkurflugvöll ohf. Alls sam-
þykktu 57 prósent samningana en
43 prósent höfnuðu þeim. Atkvæði
greiddu 75 prósent félagsmanna.
KJARAMÁL
DÓMSMÁL Nítján ára piltur hefur
verið dæmdur í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
ógna tveimur ungum drengjum á
Selfossi í fyrra.
Pilturinn beindi hnífi í átt að
hálsi ellefu ára gamals drengs.
Skömmu síðar tók hann tólf ára
dreng föstu hálstaki og lyfti honum
frá jörðinni með þeim afleiðing-
um að hann missti meðvitund og
hlaut ýmsa áverka. Ungu dreng-
irnir voru að stríða piltinum, sem
er greindur með hegðunarröskun,
þegar hann ógnaði þeim. - jss
Ógnaði tveimur drengjum:
Lagði hníf að
hálsi ungs pilts
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokksins, oft kölluð Viðeyjar-
stjórnin, tók við völdum 30. apríl
1991.
LÖGREGLUMÁL Tveir menn voru
handteknir í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær eftir átök við lögreglu.
Þar var tekið fyrir mál níu mótmæl-
enda sem ákærðir eru fyrir árás á
Alþingi í Búsáhaldabyltingunni.
Þar sem ekki var nægur fjöldi sæta
í dómsalnum fyrir áhorfendur var
þeim sem ekki höfðu sæti gert að
víkja þaðan. Þegar sumir viðstaddra
neituðu að hlíða fyrirmælunum voru
þeir fjarlægðir með valdi.
Þingverðir óskuðu eftir því að
lögregla mætti á staðinn vegna
mannfjöldans sem mættur var í
Héraðsdóm. Þeim sem mótmæltu
því að víkja úr salnum lenti saman
við lögreglu og voru í kjölfarið flutt-
ir á lögreglustöð. Þeim var sleppt
að loknum yfir-
heyrslum.
Þá kastaði
óþekktur aðili
reyksprengju
inn í anddyri
Héraðsdóms í
gær á meðan á
réttarhöldun-
um stóð. Engin
hætta stafaði af
sprengjunni, að
sögn lögreglu.
Ragnar Aðal-
steinsson, einn verjenda, mótmæl-
ir aðförum lögreglunnar harðlega í
bréfi sem hann hefur sent dómstjóra
Héraðsdóms Reykjavíkur, með afriti
á dómsmálaráðherra, dómarann í
málinu, ráðuneytisstjóra dómsmála-
ráðuneytisins og lögmannafélagið.
Hann segir að mannréttindi hafi
verið brotin með því að takmarka
aðgang að réttarsalnum.
„Lögreglumenn voru við dyr
dómsalarins og stjórnuðu allri
umferð inn í salinn og leiddi
það m.a. til þess að einn hinna
ákærðu sem var í dómhúsinu
komst ekki í réttarhaldið þar sem
lögreglan meinaði henni aðgang
að salnum,“ segir Ragnar. „Slík-
ir atburðir sem að framan er lýst
hafa ekki orðið fyrr í réttarsal á
Íslandi,“ segir Ragnar, sem bend-
ir á að fyrr í mánuðinum hafi 60
manns fylgst með réttarhaldi í
sama máli án þess að komið hefði
til átaka eða að takmarka hefði
þurft aðganginn.
Ragnar bendir á að rétturinn
til aðgangs að opnum dómþing-
um njóti verndar stjórnarskrár
Íslands, mannréttindasáttmála
Evrópu og alþjóðasamnings um
borgaraleg og stjórnmálaleg rétt-
indi. Hann krefst þess að tryggt
verði að svona nokkuð endur-
taki sig ekki og að lögregluvörð-
ur verði framvegis ekki við dóm-
sali. „Að lokum legg ég áherslu á
að ekkert hald er í því fyrir dóm-
stólana að bera fyrir sig skort á
fjármunum. Peningaleysi getur
aldrei réttlætt mannréttindabrot.“
- jss, sh
Segir mannréttindi
brotin í héraðsdómi
Tveir voru handteknir í dómsal í gær eftir átök við lögreglu. Verjandi segir rétt-
arhaldið fordæmislaust og að mannréttindabrot hafi verið að takmarka aðgang
að því. Einum hinna ákærðu hafi ekki verið hleypt inn í dómsalinn af lögreglu.
RAGNAR
AÐALSTEINSSON
BORINN ÚT Mennirnir sem ekki hlýðnuðust fyrirmælum dómarans voru fjarlægðir úr
dómshúsinu með valdi. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
ELDGOSIÐ Í EYJAFJALLAJÖKLI Öskuspýj-
an setti strik í líf margra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 30.04.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
226,3981
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,37 127,97
195,25 196,19
169,57 170,51
22,779 22,913
21,587 21,715
17,633 17,737
1,3464 1,3542
192,35 193,49
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
24°
18°
18°
11°
18°
14°
13°
13°
21°
15°
20°
30°
32°
7°
18°
18°
12°
Á MORGUN
Hæg SV-læg átt.
MÁNUDAGUR
3-10 m/s.
7
7
6
6
6
6
2
5
4
4
6
6
5
5
6
5
4
6
3
4
5
2
9
7
7
7 8
11
8
8 9
8
HLÝNANDI VEÐUR
Það mun viðra
vel til útifundar á
Austurvelli í dag en
það verður bjart
yfi r borginni og
vindur mjög hægur
af vestri. Hitastigið
verður á uppleið
um helgina og á
morgun má búast
við að hitinn nái
allt að átta til tíu
stigum í fl estum
landshlutum.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822
www.polarnopyret.is
NÝJAR VÖRUR
SKIPULAG Landsvirkjun mun óska
eftir því bréflega að breytingar
á aðalskipulagi verði teknar upp
að nýju af hálfu Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps. Þetta var niðurstaða
óformlegs vinnufundar sem verk-
efnisstjóri Landsvirkjunar átti með
fulltrúum hreppsins á miðvikudag,
að sögn Rögnu Söru Jónsdóttur, fjöl-
miðlafulltrúi Landsvirkjunar.
Þá verði samningi hreppsnefndar
og Landsvirkjunar breytt þannig að
fyrirtækið taki ekki þátt í kostnaði
við gerð aðalskipulagsins. Hrepps-
nefndin muni svo taka málið fyrir,
þegar þetta fer formlega í ferli.
Þetta er gert vegna úrskurðar
umhverfisráðherra, sem synjaði
skipulaginu staðfestingar í janúar,
með vísan til kostnaðarþátttöku
Landsvirkjunar. Ragna Sara vill
ekki ræða um hvort krafist verði
endurgreiðslu fyrir gamla skipu-
lagið.
Gunnar Örn Marteinsson, oddviti
hreppsins, leggur áherslu á að ekk-
ert hafi verið ákveðið á fundinum.
Landsvirkjun hafi ekki farið fram
á það formlega að aðalskipulagið
verði auglýst að nýju né beðið um
endurgreiðslu. Þetta hafi „aðeins
komið til tals“, en hreppurinn bíði
erindis fyrirtækisins. Að hans áliti
þurfi hreppurinn ekki að endur-
greiða féð. - kóþ
Landsvirkjun hitti að máli fulltrúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps:
Aðalskipulag verði tekið upp að nýju
ÞJÓRSÁ Málið snýst um skipulagsbreyt-
ingar vegna hugsanlegra virkjana í neðri
hluta Þjórsár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN