Fréttablaðið - 01.05.2010, Side 78
46 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
HLÝJAN SKÍN Í GEGN Þessa mynd tók Gunnar V. Andrésson af Vigdísi en hlýjan og
sjálfsöryggið geislar af fyrrverandi forseta íslenska lýðveldisins. Vigdís er í hópi mynd-
rænustu Íslendinganna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
B
laða- og tímaritaljós-
myndarar landsins
eiga að baki margra
ára reynslu í því að
mynda þjóðþekkta
Íslendinga og þekkja
það manna og kvenna best að
menn geta komið misjafnlega vel
út á ljósmynd, og skiptir þá ekki
máli hvort eða hversu fallegt við-
fangsefnið þykir. Þessi könnun er
því ekki miðuð út frá því hvern-
ig fyrirsæturnar líta út, heldur
hversu auðvelt er að ná góðum
myndum af viðkomandi og þar
hefur útlitið ekki alltaf allt að
segja. Viðkomandi getur ein-
hverra hluta vegna myndast betur
en aðrir og gefið mikinn karakt-
er í myndina. Margir voru nefnd-
ir til sögunnar þegar ljósmyndarar
voru beðnir að nefna þau viðfangs-
efni sem kæmu best út á mynd.
Þrír fengu langflestar tilnefn-
ingar.
1. Daníel Ágúst Haraldsson
„Það er alveg sama hvað
maður fær langan tíma
með honum, manni
nægir stundum bara ein
mynd og hún er flott,“
segir einn ljósmyndar-
anna um Daníel Ágúst
Haraldsson tónlistar-
mann. Daníel hefur lengi
verið í fremstu röð tón-
listarmanna og er í sér-
stöku uppáhaldi hjá ljós-
myndurum sem finnst
hreinlega eins og mynd
með söngvaranum geti
ekki mistekist. Ekki sakar
það að Daníel er að þeirra
sögn vanur myndatökum
og þægilegur í umgengni,
aldrei með vesen, heldur
mætir á tökustað og setur sig
í réttu stellingarnar. „Hann er
töff náungi og veit hvað hann er
að gera,“ sagði annar um lista-
manninn sem fékk flest atkvæði
ljósmyndara yfir Íslendinga sem
festast hvað best á filmu.
2. Vigdís Finnbogadóttir
„Leikhúskonan Vigdís er meðvit-
uð um nærveru ljósmyndara sem
er til mikilla þæginda. Vinna ljós-
myndarans er að höndla stemn-
ingu í ljósmyndinni og þá þarf
maður oft að sæta lagi og við-
fangsefnið skynja hvar það pass-
ar inn. Þar mættist heimur ljós-
myndarans og leikhúsreynsla
Vigdísar,“ segir Gunnar V. Andr-
ésson ljósmyndari sem oft hefur
myndað Vigdísi um árin. Ljós-
myndararnir voru flestir sam-
mála um að hafa aldrei séð vonda
mynd af Vigdísi.
3. Thor Vilhjálmsson
„Thor hefur þetta sérstaka yfir-
bragð sem gefur ljósmyndum allt-
af mikinn karakter. Það er svo
sterkur svipur í andlitsfallinu og
myndirnar verða oft mjög áhrifa-
ríkar,“ segir einn ljósmyndarinn
um Thor Vilhjálmsson rithöfund.
Thor var eftirlætisviðfangsefni
margra ljósmyndara sem sögðu að
hægt væri að vera eins og fluga á
vegg nærri honum. „Stórmennsk-
an og viskan skilar sér í myndirn-
ar án mikillar fyrirhafnar.“
Ljósmyndarar er greiddu atkvæði voru:
Myndrænasti
Íslendingurinn
Blaða- og tímaritaljósmyndarar vita gerst hvaða þjóðþekktu Íslendingar
myndast best. Júlía Margrét Alexandersdóttir fékk tuttugu íslenska ljósmynd-
ara til að velja myndrænustu viðfangsefnin.
MYNDRÆNN FAGMAÐUR Daníel Ágúst Haraldsson er myndrænasti Íslending-
urinn að mati íslenskra ljósmyndara. Menn þurfa fáar tökur og lítinn tíma til að
ná góðum myndum af söngvaranum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
VISKAN SKILAR SÉR Stefán Karlsson tók þessa mynd af Thor Vilhjálms-
syni. Ljósmyndarar voru sammála um að viskan og stórmennskan
skilaði sér alltaf þegar Thor væri festur á mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Baltasar Kormákur: „Alveg sama hvar maður kemur að honum,
formlega eða óformlega, hann myndast alltaf vel.“
Björn Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri NTC: „Kemur alltaf vel
út á myndum; eins og að mynda súpermódel.“
Dóra María Lárusdóttir knattspyrnukona: „Einn fárra íþrótta-
manna sem myndast vel úti á velli.“
Friðrik Þór Friðriksson: „Það er enginn sem er eins geggjað-
ur karakter og Friðrik, auk þess sem hann er svo skemmti-
legur að maður þarf að passa sig á að gleyma ekki að
mynda hann.“
Gyrðir Elíasson: „Ég get verið í kjörstöðu ljósmyndarans
nærri þeim manni, fluga á vegg.“
Ómar Ragnarsson: „Ómar er hlýr og tekur sig ekki hátíð-
lega. Því myndast hann vel.”
Páll Óskar Hjálmtýsson: „Hefur svo skemmtilega mörg
andlit, hægt að ná mörgum ólíkum myndum af
honum.“
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir:
„Myndast vel á hvaða tíma
dags sem er, hvar sem er, í
hvernig fötum sem er.“
Sverrir Guðjónsson kontra-
tenór: „Myndirnar af Sverri eru
kyngimagnaðar.“
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir:
„Alltaf hægt að ná góðri mynd
af Þorbjörgu, og hún er
eini stjórnmálamað-
urinn sem fer ekki
í stellingar þegar
ljósmyndari
nálgast.“
Þráinn Bertels-
son: „Auðvelt
að ná góðri
mynd af
Þráni, þá
sérstaklega
þegar
hann var
með
skeggið.“
Þessir voru líka nefndir:
Anton Brink
Arnþór Birkisson
Áslaug Snorradóttir
Björn Blöndal
Einar Falur Ingólfsson
Emilía Björg Björnsdóttir
Gunnar V. Andrésson
Gunnar Þór Nilsen
Haraldur Jónasson
Hreinn Hreinsson
Jónatan Grétarsson
Kjartan Þorbjörnsson, Golli
Kristinn Ingvarsson
Pjetur Sigurðsson
Sigtryggur Ari Jóhannsson
Sigurþór Hallbjörnsson, Spessi
Teitur Jónasson
Valgarður Gíslason
Vera Pálsdóttir
Vilhelm Gunnarsson