Fréttablaðið - 05.05.2010, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2010
Poulsen Skeifan 2
Sími: 530 5900 - www.poulsen.is
Bílavarahlutir
- w
w
w
.poulsen.is -
B
ílavarahlutir
B
ílavarahlutir
Bremsuhlutir
Kúplingar
Vatnsdælur
Demparar
Poulsen hefur aukið verulega
við úrvalið í bílavarahlutum,
bæði með því að breikka úrval-
ið frá birgjum sem fyrirtækið
hefur skipt lengi við sem og
að bæta við nýjum birgjum.
Fyrirtækið selur varahluti í
fólksbíla, landbúnaðartæki og
vinnuvélar.
„Við erum með mikið úrval kúpl-
inga í flesta bíla, smursíur, loft-
síur og frjókornasíur ásamt elds-
neytissíum í nánast alla bíla.
Einnig höfum við aukið við úr-
valið af vatnsdælum, tímareim-
um, tímastrekkjurum og tíma-
hjólum,“ segir Reynir Matthías-
son, innkaupastjóri hjá Poulsen.
Reynir segir Poulsen hafa breitt
úrval af bremsuhlutum, svo sem
diska, klossa, borða, rör og fitt-
ings fyrir flestar gerðir bíla.
„Við hjá Poulsen höfum verið
að auka vöruvalið í slithlutum,
til dæmis hvað varðar stýris-
enda, spindilkúlur, jafnvægis-
stangir og gúmmífóðringa, aukið
úrval af drif- og öxulliðum ásamt
hjólalegum og hosum.“
Reynir vekur athygli á því að
þar sem kerrur og tjaldvagnar eru
orðin skoðanaskyldur búnaður sé
mikilvægt að fólk hugi að því að
hafa ferðabúnaðinn í lagi.
„Við bjóðum eigendum kerra
og tjaldvagna upp á varahluti svo
sem ljós og glitmerki, raf og tengi-
dósir svo og hjólalegur. Mikilvægt
er að fólk hafi þetta í lagi fyrir
sumarið.“
Einn mikilvægasti varahlutur
bifreiða er að sögn Reynis
bremsu vökvinn. „Það eru ekki
allir sem gera sér grein fyrir
því hve bremsu vökvinn hefur
mikið að segja en hann safnar
í sig raka á tveimur til þrem-
ur árum með þeim afleiðing-
um að tæring getur myndast og
bremsurnar verða stífar og fara
að leka. Þekktur framleiðandi í
Evrópu sagði að þetta væri í raun
sá varahlutur sem skipti mestu
máli og fólk ætti að hafa í huga
að það þarf að skipta honum út
eftir einhver ár.
Við hjá Poulsen horfum björt-
um augum til framtíðar og stefn-
um á að auka vöruval, bæta
þjónustuna og vera ávallt með
hagstætt verð fyrir alla.“ - jma
Mikilvægt að skipta
út bremsuvökvanum
Reynir Matthíasson sér um innkaup á bílavarahlutum hjá Poulsen. Hann nefnir að
mikilvægt sé að eigendur kerra og tjaldvagna hugi að því að allt sé í góðu standi fyrir
sumarið enda búnaðurinn skoðanaskyldur.
Poulsen býður upp á úrval varahluta, sem eru viðurkenndar vörur frá traustum birgjum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA