Fréttablaðið - 17.05.2010, Qupperneq 4
4 17. maí 2010 MÁNUDAGUR
VINNUMARKAÐUR Eftirleiðis skulu allir starfs-
menn og atvinnurekendur í byggingariðnaði
og veitingarekstri hafa vinnuskírteini á sér
við störf sín. Alþingi samþykkti lög þess efnis
í síðustu viku. Möguleiki
er á að þetta eigi við fleiri
atvinnugreinar.
Árni Páll Árnason félags-
málaráðherra var flutn-
ingsmaður frumvarpsins.
Hann segir það nauðsyn-
legt til að tryggja réttindi
starfsmanna og að lág-
marksstarfskjör séu virt.
Mýmörg dæmi séu um hið
gagnstæða á undanförnum
árum og lögin taki á því.
Þá sé mikilvægt að hægt
sé að ganga úr skugga um
það með einföldum hætti,
hvort verið sé að svíkja út
atvinnuleysisbætur.
„Tvær leiðir voru færar í
þessu; önnur var sú að fara
í stórfellt opinbert eftirlit,
en hana vildum við ekki
fara. Hin var sú að aðilar
vinnumarkaðarins sæju um þann þátt. Við
getum ekki liðið það að réttindi séu brotin
á erlendu launafólki eða menn geti stundað
stórfelld svik í atvinnutryggingakerfinu og
það séu engin úrræði við líði.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, gagnrýndi lögin
harðlega í fréttum Ríkisútvarpsins í gær. Þar
sagði hann málið óhugnanlegt og þegar það sé
sett saman við ýmis konar boð og bönn minni
samfélagið helst á Austur-Þýskaland.
Árni Páll segir gagnrýni Sigmundar athygl-
isverða. „Framsóknarflokkurinn gerði aldrei
athugasemdir við málið meðan það var til
meðferðar í þinginu, hann virðist hafa haft
einhverjum öðrum hnöppum að hneppa.“
Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri
Mannréttindaskrifstofu Íslands, segist ekki
Dagsektir ef starfsmenn
eru án vinnustaðaskírteina
Orðið er að lögum að allir starfsmenn í byggingariðnaði og veitingarekstri skuli bera vinnustaðaskírteini.
Óhugnanlegt segir formaður Framsóknarflokksins. Tryggir réttindi starfsmanna segir félagsmálaráðherra.
Formaður og varaformaður
Framsóknarflokksins eru
ósamstíga þegar kemur að
málinu. Sigmundur Davíð,
formaður flokksins, sagði það
óhugnanlegt og ræddi um
Austur-Þýskaland, í hádegis-
fréttum Rúv í gær. Þar vísaði
hann til fleiri boða og banna.
Birkir Jón Jónsson varafor-
maður samþykkti frumvarpið
á Alþingi. Það gerðu fleiri
Framsóknarmenn og Guðmundur Steingrímsson
skrifaði undir nefndarálit félags- og tryggingamála-
nefndar. Enginn þingmaður Framsóknarflokksins
greiddi atkvæði gegn frum-
varpinu.
Birkir Jón segist hafa sam-
þykkt frumvarpið með þeim
eðlilegu fyrirvörum að þeim
heimildum sem þar eru veittar
verði beitt af hófsemi. „Fari
svo að svartsýnustu spár gangi
eftir og samfélagið breytist í
eitt allsherjar eftirlitssamfélag,
munum við láta til okkar taka
á vettvangi þingsins og vinda
ofan af því.“ Það að hann hafi greitt frumvarpinu
atkvæði sitt sé merki þess að hann óttist það ekki
hvað þetta mál varðar.
Forystumenn ósamstíga varðandi skírteinin
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
BIRKIR JÓN
JÓNSSON
BYGGINGARIÐNAÐUR Lögin beinast fyrst í stað að byggingariðnaði og veitingahúsarekstri. Félagsmálaráðherra
segir reynsluna sýna að það séu geirar sem ástæða sé til að haf varann á gagnvart. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
MARGRÉT
STEINARSDÓTTIR
hafa séð frumvarpið. Það hafi ekki verið sent
skrifstofunni til umsagnar.
Hún segir mikilvægast að huga að því að
varlega sé farið í skráningu og söfnun per-
sónuupplýsinga, í tengslum við útgáfu slíkra
skírteina. Þá verði að tryggja að þau séu ekki
notuð í öðrum tilgangi.
„Mér sýnist þetta snúa að vinnuveitandan-
um og að hann fari eftir lögum. Ég á því erfitt
með að sjá mannréttindavinkil á þessu, fyrir-
tæki sem slík geta ekki notið mannréttinda.“
kolbeinn@frettabladid.is
AUSTURRÍKI, AP Slæðubann vinn-
ur gegn tilgangi sínum og mark-
ar afturför til fortíðar, að mati
ráðstefnu múslima í Vínarborg í
Austurríki um helgina.
Rúmlega hundrað íslamskir
trúarleiðtogar frá 40 löndum
sóttu ráðstefnuna. Þeir gagn-
rýndu Evrópulönd sem íhuga að
leggja bann við andlitsslæðum,
líkt og stendur til í Frakklandi og
Belgíu.
Famile Fatma Arslan, lögfræð-
ingur frá Hollandi, var meðal
ráðstefnugesta. Hún telur að
slæðubann myndi vinna gegn til-
gangi sínum. „Þetta er ekki fyrir-
byggjandi aðgerð, heldur ögrandi
og mun þannig hafa öfug áhrif.“
Hafi viðkomandi ríki áhuga á að
styrkja stöðu múslimskra kvenna
ættu þau að leggja meiri áherslu
á menntun og fræðslu.“ - bs
Múslimar um slæðubann:
Telja slæðubann
hafa öfug áhrif
MEÐ SLÆÐU Í ALMENNINGSGARÐI
Slæðubann er ögrandi aðgerð segja
múslimar FRÉTTBLAÐIÐ/AP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
21°
22°
17°
14°
16°
11°
14°
14°
21°
17°
21°
22°
32°
15°
19°
17°
16°Á MORGUN
3-8 m/s en
hvassara allra syðst.
MIÐVIKUDAGUR
S- og SV-átt,
víða 5-10 m/s.
8
6
3
4
5
4
8
6
8
7
3
5
8
9
7
5
9
3
6
2
5
4
8
5 8
10
8
10
8 12
14
10
HLÝNAR HÆGT Í
dag verður heldur
svalt norðanlands
og horfur á slyddu
inn til landsins. En
á morgun hlýnar
og á miðvikudag-
inn má sjá tveggja
stafa hitatölur víð-
ast hvar á landinu.
Þá verður vindur
suðvestlægur og
vætusamt sunnan-
og vestanlands.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
NEYTENDUR Ryanair hefur verið
dæmt til að greiða þrjár milljónir
evra í bætur, vegna bágrar þjón-
ustu við fólk sem varð stranda-
glópar vegna gossins í Eyja-
fjallajökli. Það jafngildir um 490
milljónum króna. Þetta kemur
fram í franska blaðinu Le Monde.
Það er sérstaklega vegna far-
þega sem strandaðir voru í
Ciampino í Róm sem hvorki var
boðið upp á vott né þurrt.
Ítalska flugumferðareftirlitið
segir önnur flugfélög hafa staðið
sína plikt. - kóp
Eyjafjallajökull hefur áhrif:
Ryanair dæmt
til greiðslu bóta
BANDARÍKIN, AP Olían sem streym-
ir úr borholunni á botni Mexíkóflóa
myndar allt að sextán kílómetra
langa flekki, djúpt undir slikjunni
á yfirborði sjávar. Olíufélagið BP
reyndi í gær að koma slöngu niður
að borholunni með fjarstýrðum
kafbáti til að dæla olíu í olíuskip
en án árangurs.
Olía hefur streymt úr borholunni
í tæpan mánuð, eftir að borpallur-
inn Deepwater Horizon sprakk í
loft upp og sökk 20. apríl síðastlið-
inn. Ellefu fórust í slysinu. Banda-
rísk stjórnvöld telja að um 795 þús-
und lítrar, eða um fimm þúsund
tunnur, af olíu streymi úr borhol-
unni daglega. Sumir vísindamenn
telja magnið vera mun meira.
BP er stærsti olíu- og gasfram-
leiðandi í Bandaríkjunum. Félagið
á annan borpall á Mexíkóflóa sem
starfræktur var á grundvelli ófull-
nægjandi og jafnvel rangra verk-
fræðilegra upplýsinga.
Ljóst er að lífríki Mexíkóflóa er í
mun meiri hættu en fyrst var talið
vegna neðansjávarflekksins. Vís-
indamenn segja það nú aðeins tíma-
spursmál hvenær hráolíu tekur að
reka á fjörur víðs vegar um Banda-
ríkin. „Lífríkið þarf mörg ár, ef
ekki áratugi, til að jafna sig,“ segir
Samantha Joyce, sjávarlíffræðing-
ur við Georgíu-háskóla. - bs
Umfangsmiklir olíuflekkir dreifa úr sér neðansjávar í Mexíkóflóa:
Allt að 16 kílómetra breiður
MEXÍKÓFLÓI Lífríki flóans verður mörg
ár að jafna sig á olíunni sem streymir úr
borholu neðansjávar. FRÉTTABLAÐIÐ/ AP
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 14.05.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
221,5501
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
131,11 131,73
190,37 191,29
163,33 164,25
21,953 22,081
21,052 21,176
17,076 17,176
1,4168 1,4250
193,01 194,17
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
KLAUSTRIÐ EFTIR PANOS KARNEZIS
FRÁ ÞEIM SEM GUÐ VILL TORTÍMA
TEKUR HANN FYRST VITGLÓRUNA
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
„Kyrrlát, nánast þögul,
frásögn en um leið brenn-
heitt, mannlegt drama ...
máttug og fumlaus.“
–Times
Þýðandi: Árni Óskarsson
neon
SPLUNKUNÝ
KILJA!