Fréttablaðið - 17.05.2010, Side 12

Fréttablaðið - 17.05.2010, Side 12
12 17. maí 2010 MÁNUDAGUR Í fyrsta sinn í langan tíma virðast peningar vera helsta hitamálið í kosningabar- áttunni á Seltjarnarnesi. Bæjarbúar hafa úr fjórum framboðum að velja, fleir- um en í undanförnum sex kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð haft firna sterka stöðu á Sel- tjarnarnesi og verið í meirihluta í bæjarstjórn svo lengi sem elstu menn muna. Í síðustu kosning- um fengu sjálfstæðismenn fimm bæjarfulltrúa og bættu þá við sig einum manni frá kosningunum 2002. Neslistinn - bæjarmálafélag Seltjarnarness fékk tvo menn. Fjórir listar eru í framboði. Sjálfstæðisflokkurinn býður fram sem fyrr en önnur framboð eru Framsókn og óháðir, Neslistinn og Samfylkingin. Undanfarnar fimm kosningar hafa aðrir flokkar og öfl en Sjálfstæðisflokkurinn samein- ast um framboð undir merkjum Neslistans. Slíkt sameiginlegt framboð kom enn til álita nú en eftir að Samfylk- ingin hafði ákveðið að bjóða fram sér afréðu framsóknarmenn að gera það líka. Síðast gerðist það 1982 að kjósendur á Nesinu höfðu úr svo mörgum framboðum að velja. Bæjarstjóraskipti urðu á kjör- tímabilinu. Jónmundur Guðmars- son lét af embættinu og gerðist framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins. Við tók Ásgerður Hall- dórsdóttir, bæjarfulltrúi flokks- ins til margra ára. Hún fer fyrir listanum nú og í næstu sætum eru ýmist sitjandi bæjarfulltrúar eða nýliðar. Hvorugur bæjarfulltrúa Nes- listans er í framboði en þar er Árni Einarsson varabæjarfulltrúi í efsta sæti. Margrét Lind Ólafs- dóttir er oddviti Samfylkingarinn- ar og Kristjana Bergsdóttir leiðir lista Framsóknar og óháðra. Fjármál bæjarins eru í kast- ljósinu í kosningabaráttunni. Sótt er að Sjálfstæðisflokknum vegna fjármálastjórnar en talsverður halli varð á rekstri bæjarins tvö undangengin ár. Það er nýtt á Sel- tjarnarnesi þar sem jafnan hefur verið afgangur af rekstrinum. Hrunið hafði vitaskuld sitt að segja um fjárhagsstöðuna en gagn- rýnendur Sjálfstæðismanna segja þá hafa brugðist seint og illa við. Benda þeir á að nágrannasveitar- félögum hafi tekist að laga rekst- urinn að breyttum aðstæðum. Áhyggjur af fjármálum ná líka inn í raðir dyggra stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins. Samtöl við slíka leiða í ljós að þeir telja flokk- inn ekki hafa gripið til nægilegra aðhaldsaðgerða í kjölfar hrunsins. Leggja þeir hart að sínum mönn- um að einhenda sér í verkið þegar umboð þeirra verður endurnýjað - eins og það er orðað. Nokkrum sinnum á undanförn- um árum hefur komið til talsverðra deilna á Seltjarnesi vegna skipu- lagsmála. Hafa þær sett mark sitt á mannlífið í þessu fámenna sveit- arfélagi og skilið eftir sig sár. Fátt bendir til að til slíkra deilna komi á næstunni enda skipulag bygg- ingasvæða og stórframkvæmdir ekki í kortunum. Líkt og víðast hvar annars staðar eru íbúar á Nesinu ekki mjög upp- teknir af kosningunum. Ekki enn allavega. Þreyta gagnvart póli- tískum málefnum er tilfinnanleg og leiða og reiði gætir hjá fólki. SVEITARSTJÓRNAR- KOSNINGAR 2010 18 ár eru síðan framboðslistar hafa verið jafn margir á Seltjarnarnesi Fjármálin í forgrunni á Seltjarnarnesi SELTJARNARNES Sjálfstæðismenn hafa alla tíð farið með stjórntaumana á Nesinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Helstu áherslur okkar eru á fjármál bæjarins. Bærinn tapaði 953 milljónum króna á árunum 2008 og 2009 sem eru miklir peningar,“ segir Kristjana Bergsdóttir, oddviti Framsóknar og óháðra.“ Hún segir erfiðlega hafa gengið að afla upplýsinga um fjárhagsstöðuna, meiri- hluti Sjálfstæðisflokks hafi í raun reynt að þagga niður umræður um málið. Við það verði ekki unað og fram- sóknarmenn og óháðir berjist nú fyrir að afla upplýsinga, gera útreikninga og miðla til íbúa. „Við ætlum að taka til í rekstrinum og snúa þessari stöðu við. Flest bæjarfélög stóðu í tapi árið 2008 en sneru taflinu við 2009. Hér jókst hins vegar tapið til muna og sjálfstæðismenn hafa látið eins og þeir hafi ekki áhyggjur af þessu.“ Hún kveðst ekki vilja hækka skatta á íbúa, nóg hafi verið um gjaldahækkanir. „Við segjum hreinlega báknið burt og viljum skera niður yfirbygginguna.“ Kristjana nefnir líka skipulagsmálin og hvernig staðið hefur verið að þeim. „Bæjaryfirvöld hafa oft lent í stríði við bæjarbúa. Þau hafa rokið til og íbúar þurft að efna til mótmæla til að koma í veg fyrir framkvæmdir. Okkar markmið er að haga allri umræðu um skipulagsmál þannig að haft verði samráð við fólk. Nýjar framkvæmdir eiga ekki að ráðast gegn forsendum þeirrar byggðar sem fyrir er. Í raun má segja að við viljum ekki fleiri stríð um skipulagsmál.“ Ætlum að taka til í rekstrinum „Við ætlum að standa vörð um félagslega velferð íbúa á Seltjarnarnesi, þar með talin skólamálin og öldrunarmál- in,“ segir Margrét Lind Ólafsdóttir, oddviti Samfylkingar- innar. „Svo höfum við miklar áhyggjur af fjármálunum, við viljum hagræðingu og endurmat forgangsröðunar í anda jafnréttis og jafnaðar. Það þarf að endurskoða stjórnkerfið og færa það nær því sem er eðlilegt miðað við stærð bæjarfélagsins. Þetta er lítið bæjarfélag og við þurfum ekki jafn mikla yfirbyggingu og hér er. Þar má spara.“ Margrét Lind segir ekki mega skera niður í velferðarmál- um. „Það þarf að gæta að þeim málum sem snúa að einstaklingunum. Það þarf að standa vörð um skólastarfið, bæði í grunnskól- anum og tónlistarskólanum, enda mjög brýnt að sinna þeim málaflokkum vel. Hér hefur ekki verið tekið á eineltismálum, svo dæmi sé nefnt.“ Íbúaþróunin er Margréti Lind ofarlega í huga. „Við stöndum frammi fyrir fækkun í bæjarfélaginu og það er áhyggjuefni því samfélagið verður einsleitara. Ungt fólk á erfitt með að fá íbúðir í bænum.“ Hún segir líka að bærinn hafi staðið illa að upplýsingamálum. „Hér er of lítið gagnsæi og erfitt að nálgast upplýsingar. Ákvarðanir eru teknar og þeim komið í framkvæmd án þess að tilkynna sérstaklega um það. Sem dæmi má nefna að þegar gjaldskrár voru hækkaðar birtist það bara í heimabönknum fólks.“ Sparað með því að minnka yfirbyggingu „Fjármálin eru ofarlega á baugi,“ segir Árni Einars- son, oddviti Neslistans. „Bæjarsjóður var rekinn með umtalsverðum halla í tvö ár og það þarf að rétta hann af og koma rekstrinum í jafnvægi. Meirihlutinn byggði á þessum góðærissandi.“ Árni segir bæjarsjóð hafa tapað þrátt fyrir að útsvarstekjur á Seltjarnarnesi séu með því allra hæsta sem gerist á landinu. Enginn áhugi sé á að hækka útsvarið, mæta þurfi stöðunni með hagræðingu án þess þó að hún bitni á velferðarþjón- ustunni. Íbúaþróunin á Nesinu veldur Árna áhyggjum. „Ef litið er til síðustu tíu ára hefur börnum undir sextán ára fækkað um 23 prósent á meðan þeim hefur fjölgað í sveitarfélögun- um í kringum okkur. Á sama tíma hefur fólki, eldra en 67 ára, fjölgað um 40 prósent. Þessi þróun hefur áhrif á innviði samfélagsins, til dæmis skólana og öldrunarmálin.“ Árni segir mikilvægt að standa vörð um barnafólkið í bænum, ekki megi þyngja byrðar þess. „Svo leggjum við áherslu á íbúalýðræði og breytt vinnulag. Íbúar verða að hafa betri og meiri aðkomu að veigamiklum málum á borð við skipulag og sameiningu skóla. Umhverfismálin eru líka í forgrunni. Hér höfum við frábæra náttúru, strönd og útivistarsvæði og viljum halda því óspilltu sem enn er óspillt.“ Meirihlutinn byggði á góðærissandi „Helstu áherslur okkar snú- ast um að standa vörð um þá grunnþjónustu sem nú þegar er veitt í bæjarfélag- inu og halda áfram aðhalds- aðgerðum,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðis- manna. „Það skiptir máli að haga kostnaði í samræmi við tekjur bæjarins á meðan við finn- um fyrir lækkandi tekjum.“ Ásgerður segir að ráðist hafi verið í aðhaldsaðgerðir síðast- liðið haust. Tekist hafi að draga kostnað saman um hundrað milljónir króna sem komi fram í ársreikn- ingi. Þetta hafi verið unnið í samstarfi við forstöðu- menn sviða og stofnana bæjarins og þeirri vinnu verði framhaldið. Ásgerður segir engar stórar fram- kvæmdir á stefnuskrá sjálfstæðis- manna fyrir næsta kjörtímabil. Hún sjái fyrir sér að viðhaldsverkefnum verði haldið áfram. „Við viljum halda áfram að styðja vel við ungar barnafjölskyldur og samþykktum nýlega að auka niðurgreiðslur til foreldra sem eru með börn hjá dagforeldrum svo þeir hafi raunverulegt val um hvort börnin séu hjá dagforeldrum eða á leikskóla. Einnig ætlum við að styðja áfram þá öflugu starfsemi sem er í grunnskólanum og félagsmiðstöð- inni.“ Stöndum vörð um grunnþjónustuna Björn Þór Sigbjörnsson bjorn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.