Fréttablaðið - 17.05.2010, Page 14
14 17. maí 2010 MÁNUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
HALLDÓR
Viðarhöfða 6 - Reykjavík / Bæjarhrauni 12 - Hafnarfirði
www.sindri.is / sími 575 0000
Verslanir
PI
PA
R\
PI
PA
R\
TB
W
A
TB
W
A
TB
W
A
BW
A
TB
W
A
W
TB
W
TB
W
TB
WBBBBBTBBBB
••
SÍ
A
SÍ
A
S
ÍA
S
ÍS
••
10
03
9
1
0
0
5
TILBOÐ!
194.900 kr.
Fullt verð: 219.900 kr.
Verkfæravagn
á hjólum
7 skúffur
188 verkfæri fylgja
Röð rangra ákvarðana Sjálfstæðis-flokks og Framsóknarflokks í Kópa-
vogi á liðnum árum gerir skuldastöðu
Kópavogsbæjar líklega 10 milljörðum
verri en hún þyrfti að vera. Það þýðir
að skera þarf niður sem nemur árlegum
rekstrarkostnaði þriggja leikskóla á þessu
og næsta ári vegna fjármagnskostnaðar
þessara óþörfu skulda.
Þetta stangast á við þá mynd sem meiri-
hlutaflokkarnir hafa reynt að teikna upp af
stöðunni. Þeir fullyrða að hækkun skulda
bæjarins stafi af gengisfalli krónunnar og
verðbólgu; staðan hafi verið svo góð fyrir
hrun að Kópavogur geti vel tekist á við
efnahagsáfallið. En er það svo?
Ákvörðun Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks um að leysa fasteignabraskara
undan uppkaupum á hesthúsum í Glaðheim-
um kostaði Kópavogsbúa milljarða og leiddi
til þess að semja þurfti við eiganda Vatns-
enda um eignarnám á landi. Sem leiddi til
þess að semja varð við Garðabæ um aflétt-
ingu vatnsverndar, sem aftur leiddi til þess
að Kópavogsbær varð að tryggja Garða-
bæ vatn. Þá eru ótaldar ákvarðanir á tíma
spennu og hávaxta um ótímabær lóðakaup
og lóðaúthlutanir auk óþarfra framkvæmda-
við Kópavogshöfn.
Bærinn skuldar nálægt 45 milljörðum
þegar allt er talið. Nálægt 1,4 milljónir
króna á hvern íbúa. Vegna þessara skulda
greiddi Kópavogsbær jafn mikið í fjár-
magnskostnað árið 2009 og hann varði í
félagsþjónustu, menningarmál, æskulýðs-
og íþróttamál, umferðar- og samgöngumál
og umhverfismál á sama ári.
Fyrir þennan pening hefði mátt halda
afgreiðslutíma sundlauganna óbreyttum,
sleppa gjaldtöku á eldri borgara í sund,
fjölga dvalarrýmum aldraðra, bjóða ókeyp-
is skólamáltíðir bæði í leik- og grunnskól-
um og hækka fjárhagsstuðning félagsþjón-
ustunnar.
Meirihluti íbúa hefur þörf fyrir breyting-
ar á fjármálastjórn bæjarins. Hagræða þarf
í rekstrinum án þess að ógna velferð íbú-
anna. Gæta þarf aðhalds við ráðstöfun fjár-
muna en bæta atvinnustig á sama tíma. Það
skiptir máli í hvað fjármunum Kópavogs-
bæjar er varið og frekari lántökur verða því
einungis réttlættar að þær hafi ekki áhrif á
rekstur bæjarins.
Frambjóðendur Samfylkingarinnar hafa
þá þekkingu og reynslu sem þarf til þess að
snúa fjármálum Kópavogs til betri vegar og
skapa skilyrði fyrir forgangsröðun í þágu
velferðar íbúanna.
Dýrkeyptar, óþarfar lántökur
Fjármál
Kópavogs-
bæjar
Elfur
Logadóttir
frambjóðandi
Samfylkingarinnar
í Kópavogi
Fjölmiðlar spyrja ekki
Sigurður G. Guðjónsson, fyrrverandi
stjórnarmaður í Glitni, er óhress
með fjölmiðla. Þeir smjaðra víst ekki
fyrir útrásarvíkingum eftir hrun eins
og þeir gerðu fyrir hrun. „Fjölmiðlar
spurðu engra spurninga þá – og
spyrja engra spurninga nú,“ bloggar
Sigurður á Pressunni. „Rætt er við
hina nýju eigendur Íslands,”
það er skilanefndir bank-
anna, “af sömu lotningu og
með sama smjaðurhætti og
forðum þegar rætt var við
stjórnendur bankanna, sem
oftast komust frá viðtölum
án gagnrýninna spurninga
fjölmiðlamanna.“
Nú, svariði þá
Þetta er nú ekki alveg sanngjarnt
hjá Sigurði. Fjölmiðlar spyrja margra
gagnrýninna spurninga. Þeir hafa
til dæmis sleitulítið reynt að ná í
fyrrverandi stjórnendur Glitnis og
Kaupþings og beðið þá að skýra sín
mál. Og jafnan komið að lokuðum
dyrum og talhólfum. Sumir þeirra
segja að vísu að verjendur
þeirra ráði þeim frá því
að svara spurningum
fjölmiðla. Þá tjáir lítið
að spyrja.
Bulls ígildi
Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjáv-
arútvegsráðherra, fór á Selfoss í gær-
kvöldi þar sem hann fundaði með
samráðshópi landbúnaðarráðuneyt-
isins vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Jón hefur getað endurflutt ræðu um
öskuregn sem hann hélt spurður um
alls óskyld mál á tröppum Ráðherra-
bústaðarins við Tjarnargötu fyrir
viku. Í þetta sinn hefði vettvangurinn
að minnsta kosti verið viðeigandi.
Nema Jón hafi látið kné fylgja kviði
í bullinu og svarað spurningum
um öskufall á þá leið að honum
hugnist ekki fyrirhugaðar breytingar á
stjórnarráðinu.
bergsteinn@frettabladid.isN
ú eru innan við tvær vikur þar til kosið verður til sveitar-
stjórna. Það hljómar raunar eins og það geti ekki verið
satt miðað við það hversu lítið sveitarstjórnarmál eru til
umræðu í samfélaginu.
Í langstærsta sveitarfélagi landsins er staða kosn-
ingabaráttunnar líkari því að nokkrir mánuðir væru til kosninga en
fáeinir dagar.
Eftirspurnin eftir stjórnmálum og stjórnmálafólki hefur vissulega
verið með eindæmum lítil undanfarin misseri og tiltrú almennings
til pólitíkusa er líklega í sögulegu lágmarki.
Við þessar aðstæður myndast kjörlendi grínframboðs, Besta
flokksins í Reykjavík sem einnig
hefur getið af sér afkvæmið Næst-
besta flokkinn í nágrannabænum
Kópavogi.
Svo virðist sem borgarfulltrúar
og aðrir þeir sem í framboði eru
til borgarstjórnar af alvöru hafi
koðnað niður í aðstæðunum, lagst
í vonleysi og talið að best væri
að bregðast við lítilli eftirspurn almennings og háðsglósum Besta
flokksins með því að láta sem minnst á sér kræla fremur en að reyna
að hrista af sér slyðruorðið, stíga fram og kynna málefni sín með
reisn.
Vel heppnuð grínframboð geta verið sem hressandi vindar í alvöru
kosningabaráttu. Það er enda yfirleitt tilgangur grínframboða sem
vanalega stefna alls ekki að því að ná kjöri. Í svo dauflegri kosninga-
baráttu og verið hefur hingað til í borginni snýst þó grínið í andhverfu
sína. Samkvæmt skoðanakönnunum nær Besti flokkurinn ekki bara
inn manni heldur fleiri mönnum. Fari fram sem horfir er líklegt að
Besti flokkurinn verði þannig í oddaaðstöðu í borgarstjórn á komandi
kjörtímabili.
Sveitarstjórnarmál snúast um börnin í samfélaginu, leikskóla og
grunnskóla og stóran hluta velferðarkerfisins, þau snúast um skipu-
lagsmál og samgöngur og fjöldamarga aðra hluti sem snerta daglegt
líf fólks. Sveitarstjórnarmál eru því alls ekkert grín. Besti flokkurinn
grínast þó enn og hefur ekki stefnu í neinum málum sem eitthvað
vega. Stefna flokksins snýst enn um ísbirni í Húsdýragarðinn, ókeypis
handklæði í sundlaugarnar og fleira í þeim dúr sem væri auðvitað í
góðu lagi ef raunveruleg kosningabarátta færi einnig fram.
Það eru einungis tólf dagar til stefnu þannig að nú fer hver að verða
síðastur að koma fram úr fylgsni sínu. Þeir sem taka þátt í sveitar-
stjórnarmálum af alvöru verða að standa á torgum og útskýra fyrir
okkur kjósendum fyrir hvað þeir standa.
Sitjandi meirihluti verður af sannfæringu að segja okkur hvers
vegna við ættum að fela þeim áframhaldandi stjórn borgarinnar og
minnihlutinn að sama skapi að færa fram gild rök fyrir því hvers
vegna skipta á um stjórn í borginni.
Það gengur ekki að koðna niður undan því að Jón Gnarr og félagar
syngi hress lög um að stjórnamálamenn séu fúlir og leiðinlegir sér-
hagsmunapotarar. Ef þessir síðustu dagar verða ekki gjörnýttir af
frambjóðendum er hætt við að ringulreiðin á næsta kjörtímabili verði
verri en nokkru sinni fyrr. Og það er vissulega versti kosturinn.
Tólf dagar til sveitarstjórnarskosninga:
Vekjum kosninga-
baráttuna
SKOÐUN
Steinunn
Stefánsdóttir
steinunn@frettabladid.is