Fréttablaðið - 04.06.2010, Síða 2
2 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR
EFNAHAGSMÁL Neytendur þurfa
að bíða þar til evran lækkar í um
140 krónur áður en verðlag kemst
í jafnvægi. Samtök atvinnulífsins
hafa reyndar talið að enn sé inni
verðhækkun upp á um tíu prósent.
Þetta segir Vilhjálmur Egilsson,
formaður samtakanna.
„Ef maður tekur hækkanir
erlendra gjaldmiðla frá 2008 þá
liggur fyrir að þær hækkanir voru
ekki komnar alveg fram í verðlagi.
Við höfum talið að það héngju því
inni allnokkur verðhækkunartil-
efni, en ef krónan sjálf styrkist þá
eyðast þau,“ segir hann.
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, gefur
lítið fyrir slík rök og spyr á móti
hvers vegna verslanir haldi verði
óbreyttu þegar krónan styrkist,
fyrst þær hafi getað haldið aftur af
sér þegar gengi krónu lækkaði.
Neytendasamtökin hafa bent á að
síðan í nóvember hafi evran lækk-
að um rúm fimmtán prósent en á
sama tíma hafi verð innflutts varn-
ings nánast staðið í stað.
Gengi evru er nú tæpar 157 krón-
ur, en var rúmar 186 í nóvember.
Það hefur ekki verið undir 140
krónum síðan í september 2008.
Vilhjálmur Egilsson bendir á að
gengi evru segi heldur ekki alla
söguna, því aðrir gjaldmiðlar hafi
hækkað á meðan evran lækkaði.
Ýmsar vörur, svo sem olía, eru til
að mynda seldar í dollurum.
Gylfi Magnússon efnahagsráð-
herra minnir á að í síðustu mælingu
Hagstofu hafi verð lækkað, án þess
að evran færi í 140 krónur.
„Þannig að ég held að það sé
varla hægt að fullyrða að gengið
þurfi að lækka um eitthvað ákveð-
ið til að menn sjái það í buddunni,“
segir hann. Spurður hvort gengi
krónu sé á réttri leið, hvort það
komi til með að lækka meira, seg-
ist Gylfi ekki vilja gefa út „eitt alls-
herjar heilbrigðisvottorð“.
„En ég held að við höfum átt inni
fyrir styrkingu krónu og eigum það
enn. Gengið er vel undir jafnvæg-
isgengi. Það eru því meiri líkur en
minni að krónan styrkist á næstu
misserum. Þá sjáum við væntan-
lega innflutningsverðið breytast
líka,“ segir hann.
klemens@frettabladid.is
Verð hækkar þar til
evra fer í 140 krónur
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir verð innflutnings fyrst ná jafn-
vægi þegar evran fer niður í 140 krónur. Evra hefur verið yfir 140 krónum síðan
í september 2008. Verðlag hefur nú þegar lækkað, segir efnahagsráðherra.
Gengið er vel undir
jafnvægisgengi. Það
eru því meiri líkur en minni
að krónan styrkist.
GYLFI MAGNÚSSON
SJÁVARÚTVEGUR Gosefni frá Eyjafjallajökli gætu haft
neikvæð áhrif á niðurstöðu hrygningar hjá þorski
undan Suðurlandi, samkvæmt rannsókn sem gerð var
í Tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunarinnar í
Grindavík.
Frjóvguð þorskhrogn voru sett í sjó sem tekinn var
undan Markarfljóti, undan Svaðbælissjó og á Faxa-
flóa. Sjórinn frá tveimur fyrstu stöðunum var grugg-
ugur vegna gosefna, sem borist höfðu með flóðvatni.
Sýnin voru tekin þegar hrygning stóð sem hæst.
Gerðar voru tvær tilraunir, í annarri voru gosefn-
in látin falla til botns og komu þá engin áhrif fram á
hrygningu en í hinni voru gosefnin í stöðugri upp-
lausn í sjónum. Komu þá fram mikil áhrif í samræmi
við vaxandi styrk gosefna. Klakið var 12% minna í
Markarfljótssjónum og 40% minna í Svaðbælissjón-
um en í sjó frá Faxaflóa. Þyngd lirfa var 15% minni í
Svaðbælissjó en ómenguðum sjó úr Faxaflóa.
Agnar Steinarsson hjá Hafrannsóknastofnun, lagði
áherslu á það í samtali við Fréttablaðið að þótt þessar
niðurstöður bendi til áhrifa á hrygningu þyrfti viða-
meiri rannsókn til að fullyrða endanlega að gosið hafi
áhrif á hrygningu þorsksins undan Suðurlandi. -pg
Gosefni frá Eyjafjallajökli gætu haft neikvæð áhrif á hrygningu þorsks:
Dró úr klaki um 40% í tilraun
NÁTTÚRA Komið hefur í ljós að rauð-
humla, ný hunangsfluga sem hefur
numið land á Íslandi, er ekki ein á
ferð. Í raun er um að ræða tvær
líkar tegundir og hefur hin teg-
undin fengið nafnið ryðhumla.
Ryðhumla er sjaldnast með
greinilegum litaskilum, en er
yfirleitt með ryðrauðan bol sem
er heldur dekkri að framan en
aftan. Íslenska afbrigðið virðist
þó vera með alsvartan framhluta
afturbols, en ryðrauðan afturenda.
Rauðhumlurnar hafa hins vegar
hvítan afturenda.
Náttúrufræðistofnun Íslands
fékk ábendingar um að um tvær
tegundir gæti verið að ræða frá
breskum býflugnafræðingum,
eftir að fréttir höfðu verið sagð-
ar af rauðhumlunni í síðasta mán-
uði. Við nánari skoðun á þeim flug-
um sem höfðu verið myndaðar og
varðveittar hjá stofnuninni kom í
ljós að sú var raunin.
Nú hefur verið staðfest að rauð-
humlur hafa fundist í Keflavík,
Hafnarfirði og Reykjavík en ryð-
humlur í Hveragerði og á Akur-
eyri. Talið er að ryðhumlurnar
hafi náð fótfestu víðar á lands-
byggðinni. - þeb
Rauðhumlan er ekki eina hunangsflugan sem numið hefur land hér:
Önnur ný býfluga til landsins
STÓRÞORSKUR Stærsti þorskurinn var að hrygna undan Suður-
landi meðan Eyjafjallajökull gaus. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE
NÝJAR FLUGUR Rauðhumlur og
ryðhumlur eru mjög líkar í útliti og því
hvetur Náttúrufræðistofnun fólk til að
koma með eintök til stofnunarinnar svo
hægt sé að rannsaka þær.
MYND/ERLING ÓLAFSSON
200
190
180
170
160
150
140
nóv. ‘09 feb. ‘10 maí ‘10
192
178
170
168
154
157
Krónan styrkist en
verðið stendur í stað
Tafla Neytendasamtakanna
■ Gengi ■ Innflutt matvæli
■ Innfl. vörur aðrar en matvæli
IÐNAÐUR Erlendir gestir sem fóru
frá Íslandi í maí voru tæplega
fimmtán prósentum færri en í
sama mánuði í fyrra.
Þetta kemur fram í frétt Ferða-
málastofu. Þar segir einnig að
áhrif gossins á flugsamgöngur
komi fram í þessum tölum.
Ferðamálastofa taldi brottfar-
ir erlendra gesta og samkvæmt
talningum er fækkun á komu frá
öllum mörkuðum. Mest er fækk-
unin frá Bretlandi og Norður-
löndunum, og frá fjarmörkuðum.
Minnst var fækkunin frá Norður-
Ameríku.
Brottförum Íslendinga fjölgaði
hins vegar um fjögur prósent á
sama tímabili. - þeb
Færri fóru frá landinu í maí:
Ferðamönnum
fækkar um 15%
STANGVEIÐI Laxveiðitímabil sum-
arsins hefst á morgun með opnun
Norðurár í Borgarfirði og Blöndu í
Austur-Húnavatnssýslu.
Lax sást í Norðurá fyrir um
tveimur vikum þegar félagar í
árnefnd Stangaveiðifélags Reykja-
víkur voru þar á ferð. Hjá Lax-á,
leigutaka Blöndu, eru menn einn-
ig bjartsýnir fyrir opnun neðsta
svæðisins á morgun. Efri þrjú
svæði árinnar verða þó ekki opnuð
fyrr en 20. júní. Á næstu dögum
og vikum verða laxveiðiárnar opn-
aðar hver af annarri. - gar
Laxveiðin hefst á morgun:
Opnað í Blöndu
og Norðurá
ÞÓRARINN SIGÞÓRSSON Tannlæknirinn
„Tóti tönn“ er iðulega í opnunarhollinu
í Blöndu.
50 kannabisplöntur fundust
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fann rúmlega 50 kannabisplöntur
í húsi í austurborg Reykjavíkur í
gærdag. Húsráðandinn var maður á
þrítugsaldri og játaði hann aðild sína
að málinu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Sigrún, verður ekki allt á suðu-
punkti?
„Þetta er hitamál.“
Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylk-
ingarinnar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur,
fékk þau svör um fyrirhugaða gjaldskrár-
hækkun á heitu vatni á dögunum að til
standi að hækka það um 37 prósent á
næstu fimm árum.
GYLFI MAGNÚSSONJÓHANNES GUNNARSSONVILHJÁLMUR EGILSSON
EFNAHAGSMÁL Dennis Lockhard,
einn bankastjóra bandaríska
seðlabankans, segir mikilvægt að
hækka stýrivexti vestra, jafnvel
þótt atvinnuleysi sé enn mikið.
Stýrivextir í Bandaríkjunum
hafa staðið við núll prósentu-
stig síðan í desember árið 2008
og atvinnuleysi verið yfir níu
prósentum frá í maí í fyrra. Það
jafngildir því að rúmlega átta
milljónir Bandaríkjamanna séu
án atvinnu.
Bloomberg-fréttastofan hefur
eftir Lockhard að óstöðugleiki
í efnahagsmálum á meginlandi
Evrópu hafi ekki áhrif á stýri-
vaxtaákvörðun vestanhafs. - jab
Bankastjóri vill hækka vexti:
Evrópa stýrir
engu vestra
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
ákærður fyrir héraðsdómi fyrir
að hafa ítrekað veist að barns-
móður sinni.
Árið 2008 réðst hann á hana í
stigagangi fjölbýlishúss, sló hana
og hrinti henni í gólfið.
Nokkru síðar veittist hann enn
að henni og sló hana í andlitið.
Fáeinum vikum síðar gerði
maðurinn þriðju atlöguna að kon-
unni. Hann réðst á hana, sló hana
með símasnúru í höfuð og háls.
Þá sló hann hana hnefahöggi í
vinstri handlegginn, með þeim
afleiðingum að hún hlaut mar á
baki og mar á vinstri handlegg.
- jss
Veittist ítrekað að konu:
Sló barnsmóð-
ur með snúru
STJÓRNMÁL Tilkynnt verður um
nýjan meirihluta Samfylkingar-
innar, Vinstri grænna, Næstbesta
flokksins og Lista Kópavogs-
búa í dag, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Óvíst er hver verð-
ur skipaður bæjarstjóri.
Viðræður í Hafnarfirði ganga
vel, en ekki er búist við að þar
gangi saman á milli Vinstri
grænna og Samfylkingarinnar
fyrr en eftir helgi. Þá eru viðræð-
ur á milli Besta flokksins og Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík á áætl-
un og ganga vel. - kóp
Viðræður í Reykjavík á áætlun:
Meirihluti í
Kópavogi í dag
SPURNING DAGSINS