Fréttablaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 42
26 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR menning@frettabladid.is Kl. 22 í Rósenberg Á bláum nótum kallast dagskrá sem Kristjana Stefánsdóttir hefur sett saman með samstarfsmönnum sínum og flutt verður í kvöld og annað kvöld. Með söngkonunni ástsælu koma fram þeir Elvar Örn Friðriksson söngur, Birgir Baldursson trommur, Róbert Þórhallsson bassa, Ómar Guðjóns- son gítaristi og Agnar Már Magnússon Hammond orgel. Í söngvasafni kvölds- ins eru blúsar og aðrir áráttusöngvar. Rósenberg er við Klapparstíg. > Ekki missa af Í dag kl. 15 flytur Árni Heimir Ingólfsson opinn fyrirlestur sem nefnist Musikliv og salmetradition i Island efter reformationen. Með fyrirlestri Árna Heimis hefst ráðstefnan Mjúk málsnilld orðanna sem fjallar um norrænar bók- menntir sautjándu aldar og haldin er á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Skálholts. Leiklist ★ Anna uppfinningakona eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur sem einnig leikstýrði Leikkona: Christine Carr Hljóðmynd: Elvar Geir Sævarsson Ljós: Arnar Ingi Hugmyndavél smíðaði: Aðalsteinn Valdimarsson Teskeið fyrir örvhenta Í Frumleikahúsinu í Keflavík var einleikurinn „Anna uppfinningakona“ frumsýndur á þriðjudagskvöldið. Kristlaug María Sigurðardóttir leikstýrði hér frumsömdum einleik með leikkonunni Christine Carr. Í tæpan klukkutíma segir uppfinningakonan Anna okkur frá örlögum sínum í glötuðu ástarsambandi sem var þó ekki ástarsamband, heldur einhvers konar viðskiptasamband við Mörð milli þess sem hún kallaði á Hörð eða næturvörð. Sagan um þessa stúlku sem kjörin er uppfinningakona ársins þar sem henni tekst að finna upp teskeið fyrir örvhenta á líklega að sýna okkur hvað það er erfitt að vera kona og uppfinningamaður í senn, en var í sjálfu sér hvorki fugl né fiskur. Í upphafi birtist hún og segir okkur frá bernsku sinni og samtali sínu við guð. Það atriði og hvernig hún lýkur leiknum á svipuðum nótum eftir að vera búin að segja okkur sögu sína næt- urlangt, var besti hluti verksins. Hljóðmyndina gerði Elvar Geir Sævarsson og voru það einu mótleikarar leikkonunnar og eini möguleiki hennar til að sýna einhver leikræn tilþrif. Christine Carr er bæði skýrmælt og hefur góða líkamlega nærveru og gerði allt sem hún gat til þess að trúa á söguna og koma henni á framfæri en þar sem framvindan var svo laus við nokkra snúningsása var það ekki auðvelt. Hún skellti á sig hjálmi og þurfti stóra hanska við sína vinnu, líklega í álveri, enda var það agnarögn af áli sem varð til þess að henni tókst að finna upp umrædda teskeið. Vilji höfundar og leikstjóra hefur sennilega verið að sýna fram á bága stöðu þeirra sem hafa ekki klíkur og gæja í liði með sér og er það alveg gott og blessað og meira en nóg til þess að skapa leikræna spennu en aðferða- fræðina vantaði hér. Kristlaug María hefur skrifað ýmislegt eins og til dæmis hina stórgóðu Ávaxtakörfu þar sem henni tekst mjög vel að afmarka persón- ur og smíða heilan heim og góða framvindu þannig að hún hefði átt að fá einhvern fagmann í lið með sér til þess að gera leikgerð úr þessari smásögu. En hvað sem öðru líður er nú ekki annað hægt en að dást að leikkon- unni fyrir að hnökralaust fara með allan þennan texta og reyna að búa til einhverja dramatíska spennu úr því að vera á næturvakt í óræðri verksmiðju þar sem verið var að tappa hennar eigin uppfinningum af henni. Vonandi fáum við fleiri tækifæri til þess að sjá leikkonuna á sviði því hún er sterk og nærvera hennar spennandi. Hún beitir augum glettilega og þá sjaldan henni rataðist eitthvað svolítið fyndið á munn átti hún salinn. Leikstíllinn var hins vegar óskilgreindur, og oft erfitt að átta sig hvort það væri unglingur eða áttræð kona sem talaði. Menningarráð Suðurnesja og Reykjanesbær styrktu þessa sýningu. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Hvorki fugl né fiskur. LEIKLIST Kristlaug María Sigurðardóttir frumsýndi nýjan einleik í Reykjanesbæ í liðinni viku. MYND FRÉTTABLAÐIÐ/ Starf Stúlknakórsins hefur verið öflugt á liðnum vetri, en þær hafa meðal annars sungið með Frostrósum og haldið jólatónleika í Hallgrímskirkju. Í apríl síðastliðnum héldu stúlkurnar ásamt Kramhús- inu glæsilega stórsýningu í Íslensku óperunni sem var hluti af Barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar og tóku þótt í tónleikum Gunnars Þórðar- sonar úr Vísnabókinni í Húsdýra- og fjölskyldu- garðinum. Um fjörutíu stúlkur úr kórnum halda í dag í tónleikaferð um landið: Í kvöld syngja þær í Blönduóskirkju kl. 18 og á morgun verða þær með tvenna tónleika: Í Akureyrarkirkju kl. 14 og í Húsa- víkurkirkju kl. 20.30. Þar munu þær einnig koma fram á sunnudag í messu kl. 11 á sjómannadeginum. Margrét J. Pálmadóttir stjórnar kórnum af miklum fögnuði. Stúlknakór Reykjavíkur er opinn stúlkum á aldrinum 5-20 ára, sem búa á höfuðborg- arsvæðinu. Æfingar eru einu sinni til tvisvar í viku og eru þær aldursskiptar. Í maí fengu þær heimsókn stúlknakórs frá Hamborg í Þýskalandi og sungu meðal annars með þeim í hvítasunnumessu í Hallgrímskirkju. Einnig eiga þær von á frábærum stúlknakór frá Berlín um miðjan ágúst. Það er fjör hjá stelpunum og viðbúið að það verði mikið sungið á leiðinni norður um land. Eins gott að bílstjórinn sé söngelskur. Syngjandi stúlkur TÓNLIST Margrét J. Pálmadóttir sækir heimabæ sinn með fríðu foruneyti um helgina. MYND FRÉTTABLAÐIÐ/HARI HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 4. júní 2010 ➜ Tónleikar 18.00 Um 40 stúlkur úr Stúlknakór Reykjavíkur undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur, verða með tónleika í Blönduóskirkju. 20.00 Íslenski tónlistarhópurinn Njúton og bandaríski strengjakvartett- inn The Formalist Quartet flytja Vortex Temporum eftir Gérard Grisey í Íslensku óperunni við Ingólfsstræti. Nánari upp- lýsingar á www.listahatid.is. 20.30 Kórastefna við Mývatn 2010 stendur til 6. júní. Í kvöld munu Cop- enhagen Girls Choir og Gradualekór Langholtskirkju koma fram á tónleik- um á Hallarflöt í Dimmuborgum. Nánari upplýsingar á www.korastefna.is. 21.00 Jóhann G. Jóhannsson og hljómsveit fara yfir blúsferil Jóhanns ásamt því að flytja önnur vinsæl hans á tónleikum í Saln- um við Hamraborg í Kópavogi. Tón- leikarnir eru hluti af Jazz- og blúshá- tíð Kópavogs 2010. Nánari upplýsingar á Salurinn.is 22.00 Hvanndalsbræður halda útgáfutónleika í Salthúsinu við Stamp- hólsveg í Grindavík. 22.00 Söngkonurnar Esther Jökuls- dóttir, Lára Sveinsdóttir, Soffía Karls- dóttir og Þórunn Antonía Magnús- dóttir flytja bestu lög Leonards Cohen á tónleikum á Græna hattinum við Hafnarstræti á Akureyri. 23.00 The 59’ers, Cliff Clavin og Ultra Mega Technobandið Stefán halda tónleika í Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu. ➜ Opnanir 20.00 Brynja Björnsdóttir og Sunna Schram opna sýninguna Hér sé stuð- Hálfvitinn í gallerí Crymo að Laugavegi 41a. Sýningin er opin alla daga kl. 13-18. ➜ Sýningar Í Árbæjarsafni hefur verið opnuð sýning á heimilistextil og öðrum prjónaverk- um Evu Vilhelmsdóttur. Einnig hefur þar verið opnuð sýning um stríðsárin og áhrif styrjaldarinnar á mannlíf og menningu í Reykjavík. Opið alla daga kl. 10-17. Árni Valur Axfjörð hefur opnað sýningu á lágmyndum og skúlptúrum í Dauða galleríinu að Laugavegi 19 (bakhús). Opið alla daga nema sunnudaga kl. 13-18. ➜ Opið hús Vinnustofa Gullkistunnar í Eyvindar- tungu í Laugardal verður opin almenn- ingi kl. 16-18 og mun listmálarinn Shar- yn Finnegan sýna verk sín. Sjá nánar á www.gullkistan.is. ➜ Bæjarhátíðir Lista- og menningarhátíðin Bjartir dagar stendur yfir í Hafnarfirði til 6. júní. Tónleikar, myndlistarsýningar, söngleikja- og leiksýningar og margt fleira. Nánari upplýsingar og dagskrá á www.hafnarfjordur.is ➜ Dansleikir Rokksveit Jonna Ólafs spilar á dansleik í gamla kaupfélaginu við Kirkjubraut 11 á Akranesi. ➜ Dans 20.00 Ragnheiður S. Bjarnarson sýnir dansverkið Kyrja í Norðurpólnum við Norðurslóð á Seltjarnarnesi. Nánari upplýsingar á www.midi.is. ➜ Leikrit 20.00 Leikhópurinn CommonNon- sense sýnir verkið Af ástum manns og hrærivélar í Kassanum, sýningarrými Þjóðleikhússins við Lindagötu. Nánari upplýsingar á www.leikhusid.is. 20.00 Þórunn Clausen flytur ein- leikinn Ferðasaga Guðríðar eftir Brynju Benediktsdóttur í Víkingaheimum við Víkingabraut í Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar á www.midi.is. ➜ Ljósmyndasýningar Hrönn Axelsdóttir hefur opnað sýningu á ljósmyndaverkum á Kaffi Loka við Lokastíg 28. Opið mán.-lau. kl. 10-18 og sun. kl. 12-18. Í Norræna húsinu við Sturlugötu stendur yfir sýning sex íslenskra og finnskra samtímaljósmyndara þar sem gefur að líta myndbandsinnsetningar og ljósmyndir. Opið alla daga nema mánu- daga kl. 11-17. ➜ Síðustu forvöð Sýningu Ólafar Nordal í Listasafni ASÍ við Freyjugötu, lýkur á sunnudag. Opið í dag og um helgina kl. 13-17. Enginn aðgangseyrir. Í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu stendur yfir sýning á verkefnum útskriftarnemenda Hönn- unar- og handverksskóla Tækniskólans en þar má sjá verkefni í faggreinum kjólasaums og klæðskurðar, gull- og silfursmíði auk annarra verkefna. Sýningu lýkur á sunnudag. Opið mán.- fim. kl. 10-19, fös. kl. 11-19 og um helg- ina kl. 13-17. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Ritstjóri er Guðmundur Andri Thorsson Drakúla og Draugur Group
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.