Fréttablaðið - 04.06.2010, Síða 50

Fréttablaðið - 04.06.2010, Síða 50
34 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is 7 DAGAR Í HM Serbinn Bora Milutinovic hefur hingað til verið sá eini sem hefur þjálfað fimm þjóðir í úrslitakeppni HM. Hann þjálfaði fyrst Mexíkó á heimavelli á HM 1986 en síðan Kosta Ríka 1990, Bandaríkin 1994, Nígeríu 1998 og loks Kína 2002. Brasilíumaðurinn Carlos Alberto Parreira bætist í hópinn á HM 2010 því hann þjálfar þá heima- menn í Suður Afríku. Parreira hefur áður stjórnað Kúvæt (1982), Sameinuðu Arabísku furstadæmunum (1990), Brasilíu (1994 og 2006) og Sádí-Arabíu (1998) í HM. Pétur Pálsson mun yfirgefa herbúðir Hauka í sumar og flytja búferlum til Danmerkur. Sömu sögu er að segja af Andra Snæ Stefánssyni, leikmanni Akureyrar, en þeir eru í nákvæmlega sömu stöðu; að elta kærusturnar sínar sem ætla í skóla í Árósum. „Kærastan er að fara í skóla í Árósum og ég ætla bara að elta hana þangað,“ sagði Pétur en kærastan hans er einnig leikmaður Hauka, Erna Þráinsdóttir. Hann og Andri hafa verið í sambandi vegna flutning- anna. „Ég hafði ekki hugmynd um að hann væri að fara út líka fyrr en hann hringdi í mig um daginn. Við höfum verið í sambandi um þetta. Fyrst vorum við að skoða það að fara kannski saman í eitthvað félag en það er ekkert víst að svo verði og við erum í raun að fara sitthvora leiðina í þessu,“ sagði Pétur. Andri Snær fer á reynslu hjá úrvalsdeildar- félaginu Århus GF í lok júlí. Þar mun hann æfa með félaginu og vonast hann til að fá samning þar. Ef það gengur ekki hafa forráðamenn félagsins sagst ætla að hjálpa honum að finna annað félag á svæðinu. Pétur útilokar að fara til Århus GF. „Þeir eru búnir að fá einhverja línumenn til sín og ég nenni ekkert að fara þarna til að sitja á bekknum sem fimmti línumaður eða eitt- hvað slíkt. Ég vil bara fá að spila. Það eru fleiri félög á svæðinu sem ég er að skoða núna. Ég hef verið í sambandi við nokkur félög, sent þeim myndbönd og annað slíkt. En hvort ég spila í úrvalsdeildinni eða fyrstu deildinni verður bara að koma í ljós.“ Hann var að klára sveinspróf í húsasmíði og stefnir á að vinna í Danmörku en vonast þó til að spila handbolta líka. Haukar vildu halda línumanninum sterka en hann ætlar ekki að skilja spúsu sína eina eftir ytra. „Ég tek léttan Robba Gunn á þetta. Fór hann ekki út með kærustunni sinni fyrst? Svo er hann bara orðinn tvöfaldur Evrópumeistari og ég veit ekki hvað,“ sagði Pétur PÉTUR PÁLSSON FER FRÁ HAUKUM: BLÓÐTAKA FYRIR ÍSLANDSMEISTARANA Eltir kærustuna til Árósa í ævintýraleit MIKLABORG - ÖRUGG SALA - MIKLABORG - ÖRUGG SALA - MIKLABORG - ÖRUGG SALA - MIKLABORG 569-7000 | S íðumúl i 13 | www.mik laborg . is Höfum fengið í einkasölu 900 fermetra glæsilegt húsnæði á jarðhæð í þessu fallega húsi sem hefur nýlega verið endurbyggt á einstaklega glæsilegan hátt. Staðsetning er mjög góð, skammt frá miðborginni. Stór verönd sjávarmegin. Húsið er klætt með álklæðningu. Gler og stál er í handriðum og lyftuhúsi. Húsnæðið getur verið til afhendingar fl jótlega. Á efri hæðum hússins eru höfuðstöðvar CCP. Góður fjárfestingarkostur. Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is GRANDAGARÐUR 8 - EINSTÖK FJÁRFESTING VISA-bikarkeppni karla Breiðablik - FH 2-4 (1-1) 1-0 Guðmundur Pétursson (71.), 1-1 Björn Daníel Sverrisson (72.). FH vann eftir vítaspyrnukeppni. Valur - Afturelding 2-1 0-1 Arnór Þrastarson (26.), 1-1 Haukur Páll Sigurðsson (28.), 2-1 Viktor Unnar Illugason, víti (84.). Leiknir R. - Stjarnan 1-3 1-0 Aron Daníelsson (44.), 1-1 Halldór Orri Björnsson, víti (73.), 1-2 Daníel Laxdal (76.), 1-3 Steinþór Freyr Þorsteinsson (90.+2) Þróttur - Grótta 3-1 0-1 Elvar Freyr Arnþórsson (36.), 1-1 Halldór Arnar Hilmisson (37.), 2-1 Andrés Vilhjálmsson (69.), 3-1 Halldór Arnar Hilmisson (80.). Haukar - Fjölnir 0-2 0-1 Guðmundur Karl Guðmundsson (17.), 0-2 Guðmundur Karl Guðmundsson (79.). Víðir - Fylkir 0-2 0-1 Jóhann Þórhallsson (22.), 0-2 Tómas Þor- steinsson (86.). Grindavík - Þór 2-1 0-1 Nenad Zivanovic (6.), 1-1 Jósef Kristinn Jós- efsson (85.), 2-1 Gilles Mbang Ondo (88.). Keflavík - KS/Leiftur 1-0 1-0 Magnús Þórir Matthíasson (63.). ÍA - Selfoss 2-1 1-0 Andri Júlíusson, 1-1 Davíð Birgisson, 2-1 Andri Geir Alexandersson. Vináttulandsleikir Spánn - Suður-Kórea 1-0 1-0 Jesus Navas (87.) Ítalía - Mexíkó 1-2 0-1 Carlos Vela (17.), 0-2 Alberto Medina (84.), 1-2 Leonardo Bonucci (89.). Þýskaland - Bosnía 3-1 0-1 Edin Dzeko (15.), 1-1 Philipp Lahm (50.), 2-1 Bastian Schweinsteiger, víti (74.), 3-1 Bastian Schweinsteiger, víti (77.). ÚRSLIT FÓTBOLTI Rafael Benitez er hættur sem knattspyrnustjóri Liverpool en það var tilkynnt í gær. Benit- ez tók við starfinu fyrir sex árum en skrifaði undir nýjan fimm ára samning fyrir rúmu ári. Árangur liðsins á nýliðnu tíma- bili var hins vegar langt undir væntingum en Liverpool hafn- aði í sjöunda sæti ensku úrvals- deildarinnar og féll úr leik í riðla- keppni Meistaradeildar Evrópu. Liðið keppir í Evrópudeild UEFA á næstu leiktíð. Talið er að Benitez fái um sex milljónir punda í starfslokasamn- ing en hann átti þó rétt á mun hærri upphæð samkvæmt samn- ingi hans. „Mér þykir það miður að til- kynna að ég er að hætta sem knatt- spyrnustjóri Liverpool. Ég vil þakka starfsfólki og leikmönnum fyrir þeirra vinnu,“ var haft eftir Benitez á heimasíðu félagsins. „Ég mun geyma í hjarta mínu þá góðu tíma sem ég átti hér og þann mikla stuðning sem ég fann fyrir hjá stuðningsmönnum á erfiðum tímum. Ég á engin orð til að þakka ykkur fyrir öll þessi ár og ég er stoltur yfir því að geta sagt að ég var stjórinn ykkar.“ Nú þegar hafa nokkrir verið orð- aðir við starfið. Þeirra á meðal eru Martin O‘Neill, stjóri Aston Villa, Roy Hodgson hjá Fulham og Guus Hiddink sem nýverið tók við starfi landsliðsþjálfara Tyrklands. - esá Rafael Benitez að hætta hjá Liverpool: Ég var stjórinn ykkar ÞAKKAR FYRIR SIG Rafa Benitez er á leið frá Liverpool eftir sex ár í starfi knattspyrnu- stjóra. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Leikur Breiðabliks og FH fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem FH hafðu betur. Gunn- leifur Gunnleifsson var þar hetja Íslandsmeistaranna en hann varði þrjár síðustu spyrnur frá Breiða- bliki, bikarmeisturum síðasta árs. Leikurinn minnti helst á taktíska og varfærnislega skák í byrjun áður en bæði lið sóttu til sigurs. Fyrri hálfleikurinn var bragð- daufur og virtist vera sem hvorugt liðið vildi taka áhættur. Guðmund- ur Pétursson komst einn í gegn í upphafi en skaut framhjá og Elfar Freyr skallaði framhjá úr ágætu færi áður en Gunnleifur varði vel frá Alfreð Finnbogasyni. Ingv- ar Kale varði svo vel frá Torgeiri Motland í besta færi FH. Guðmundur setti boltann svo í mark FH en það var dæmt af vegna rangstöðu. Það var rang- ur dómur, Guðmundur var rétt- stæður og því hefði markið átt að standa. Liðin skiptust á að sækja en skorti að vanda sig betur upp við mörkin. Leikinn vantaði sárlega mark til að opnast en allt kom fyrir ekki, markalaust í hálfleik. Blikar byrjuðu seinni hálfleik- inn betur og fengu nokkur fín færi. FH-ingar áttu í vök að verj- ast en stóðu vaktina með prýði. Þeir ógnuðu lítið sem ekkert, Blik- ar áttu miðjuna og voru sterkari á öllum vígstöðvum. Um miðbik hálfleiksins snerist taflið við, FH byrjaði stórsókn og besta færið kom þegar Atli Guðna- son skaut í stöng. Aftur snerist taflið við þegar Blikar komust yfir eftir frábæra sókn. Alfreð og Guðmundur náðu vel saman og sá síðarnefndi setti boltann laglega í markið þegar tuttugu mínútur voru eftir. Og næsta sókn FH mínútu síðar? Björn Daníel Sverrisson setti bolt- ann snyrtilega í hornið eftir send- ingu Atla. Sóknirnar gengu á báða bóga út leikinn og besta færið fékk Alfreð þegar hann komst einn í gegn þegar hálf mínúta var eftir. Hann virtist ekki átta sig á að hann væri ekki rangstæður og fór illa með úrvalsfæri til að koma Blikum áfram, en Gunnleifur varði vel. Leiknum lauk með jafntefli og því þurfti að framlengja. Leik- menn virkuðu strax þreyttir og klárir í tesopa eða Kópavogsdjús. FH var sterkara en skapaði ekk- ert. Ekkert var skorað í fyrri hálf- leik en Blikar voru sterkari. Gunn- leifur varði vel frá Arnóri Sveini og Tommy Nielsen bjargaði frá- bærlega með tæklingu á síðustu stundu. Hann átti frábæran leik en fékk sitt annað gula spjald undir lok framlengingarinnar. Vítaspyrnukeppnin var dramat- ísk en FH-ingar misnotuðu fyrstu tvær spyrnur sínar en fögnuðu að lokum sigri þökk sé frammistöðu Gunnleifs. hjalti@frettabladid.is Gunnleifur sá um bikarmeistarana FH komst áfram í VISA-bikar karla í gærkvöldi eftir sigur á Breiðabliki. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni en Gunnleifur Gunnleifsson gerði sér þar lítið fyrir og varði þrívegis frá bikarmeisturum Breiðabliks. BARÁTTA Alfreð Finnbogason og Tommy Nielsen berjast um boltann í leik Blika og FH-inga í gær. Tommy fékk að líta rauða spjaldið síðar í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Vítaspyrnukeppnin Breiðablik - FH (1-1): 2-4 - Torger Motland Ingvar varði 2-1 Alfreð Finnbogason mark - Atli Viðar Björnsson fram hjá - Guðmundur Pétursson Gunnleifur varði 2-2 Björn Daníel Sverrisson mark - Jökull Elísabetarson Gunnleifur varði 2-3 Matthías Vilhjálmsson mark - Kári Ársælsson Gunnleifur varði 2-4 Atli Guðnason mark

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.