Fréttablaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 10
10 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR Neutral vörurnar eru viðurkenndar af Ofnæmis- og astmasamtökum Norðurlanda Neutral í sátt við umhverfið Með því að velja Neutral vörur með Svansmerkinu vottar þú umhverfinu virðingu þína. Auk þess að vera umhverfisvænar eru Neutral vörurnar án litarefna, ilmefna, bleikiefna og annarra aukaefna og vernda því viðkvæma húð. Veldu Neutral fyrir þig, barnið þitt – og umhverfið E N N E M M / S ÍA / N M 42 44 6 VIÐSKIPTI Arion banki leggur á það mat í hverju máli fyrir sig hvaða kostur sé heppilegastur þegar koma á í verð eignarhlutum í fyrirtækj- um sem bankinn hefur þurft að taka yfir í þeim tilgangi að tryggja fullnustu eigna. Í viðtali við Markaðinn í vikunni taldi Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, orka tvímæl- is algeng viðhorf innan bankanna um að fremur bæri að selja fyrir- tæki fjárfestum en að skrá þau strax á markað. Arion banki hefur þegar ákveðið að skrá eitt fyrir- tæki í Kauphöll Íslands, verslunar- fyrirtækið Haga. Berghildur Erla Bernharðsdóttir, upplýsingafulltrúi bankans, segir ákveðnar verklags- reglur hafðar til hliðsjónar þegar kemur að sölu yfirtekinna fyrir- tækja. Stefnt sé að því að selja eign- arhluta í fyrirtækjum eins fljótt og hagkvæmt er talið. Þá skuli stefnt að opnu og gagnsæju söluferli og jafnræði meðal fjárfesta. Hún bendir þó á að í einhverjum tilvik- um kunni hagsmunir fyrirtækis og bankans að kalla á lokað útboð eða annars konar fyrirkomulag. „Til dæmis vegna ákvæða hlut- hafasamkomulags eða samþykkta um forkaupsrétt.“ Þá segir hún ákvörðun um sölu á eignarhluta fjármálafyrirtækis og aðferð við sölu vera rökstudda og skráða. - óká ARION BANKI Bankinn hefur þegar tekið ákvörðun um að skrá Haga á markað. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Þegar ákveðið að skrá eitt af fyrirtækjum í meðförum Arion banka í Kauphöll: Stefna að opnu og gagnsæju ferli EFNAHAGSMÁL Verið er að kanna hvort endurfjármögnun bank- anna síðasta sumar stangist á við reglur Evrópska Efnahagssvæðis- ins (EES) og flokkist sem ólögleg- ur ríkisstuðningur. ESA (Eftirlit- stofnun EFTA) er nú með málið til skoðunar. Per Sanderus, fulltrúi ESA, hefur fundað með ráðherrum undan farna daga hér á landi. Þar hefur þetta mál borið á góma og Sanderus tekur fram að það sé allsendis óvíst hvort svo sé hátt- að. Svo geti farið að stuðningurinn falli undir reglur EES. „Endurfjármögnun bankanna gæti fallið undir reglur um stuðn- ing ríkisins, en það hefur ekki verið ákvarðað enn. Ef svo er hefði átt að sækja um leyfi til okkar og við að úrskurða hvort þetta væri löglegt. En það er ekki enn komið að því. Stjórnvöld hafa tekið saman útskýringar á því hvernig þessu var háttað og hvaða skilyrðum endurfjármögnunin var háð. Þetta er mikið af upplýsingum sem við förum núna yfir.“ Verði endurfjármögnunin metin sem ríkisstuðningur þarf að meta hvort hún sé engu að síður eftir þeim reglum sem hann fellur undir. Sé hún metin ólögleg fer fram rannsókn á ferlinu sem getur endað á því að gjörðin gengur til baka og leysa þarf málefni bank- anna upp á nýtt, eftir settum regl- um. Sanderus segir óljóst hvenær málin skýrist. Það velti á gæðum þeirra gagna sem stjórnvöld hafa tekið saman um málið. Mjög mik- ilvægt sé að ESA fái þær upplýs- ingar sem á þarf að halda. Það versta sem komið geti úr þessu sé að endurheimta þurfi féð. Sanderus hefur hitt nokkra ráð- herra sem véla um þau málefni sem tengjast EES. Þá hefur starfs- fólk ESA fundað með starfsfólki fjölda ráðuneyta. Málefni Icesave hafa einn- ig borið á góma í viðræðunum, en ESA sendi íslenskum stjórn- völdum nýverið bréf þar sem það álit stofnunarinnar kom fram að Íslendingar yrðu að standa undir lágmarkstryggingu, 20.887 evrum, á Icesave-reikningunum. Að öðrum kosti færi málið fyrir dómstól EFTA. Sanderus segir málið aðeins lauslega hafa verið rætt, álit ESA sé skýrt og nú sé svars íslenskra stjórnvalda beðið. Þau hafa tvo mánuði til viðbragða. „Ef þeir þurfa lengri frest tökum við það til athugunar, en nú erum við að bíða viðbragða íslenskra stjórnvalda við þessu bráðabirgða- áliti okkar.“ kolbeinn@frettabladid.is Skoða lögmæti fjármögnunar ríkisbankanna Endurfjármögnun bankanna gæti flokkast undir ólöglega ríkisaðstoð. Þá þarf að taka hana til baka og vinna málið upp á nýtt. Þetta kemur fram í máli fulltrúa ESA sem er staddur hér á landi. PER SANDERUS Fulltrúi ESA segir að stofnunin hafi nú endurfjármögnun bankanna til skoðunar. Teljist hún ríkisaðstoð hefðu íslensk stjórnvöld þurft að sækja um leyfi fyrir henni, áður en af henni varð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LEIKUR SÉR Í RIGNINGUNNI Í Kína- hverfinu í Havana, höfuðborg Kúbu, lék þessi piltur á als oddi í rigningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært rúmlega tvítuga konu fyrir að ráðast á starfsmann fjöl- skyldudeildar Akureyrarbæjar og hóta henni lífláti. Atvikið gerðist fyrr á þessu ári á bílastæði á Akureyri. Konan reif í hár starfsmannsins, hristi hann og sló í andlitið. Þá henti hún starfsmanninum utan í bif- reið og henti svo í hann handfangi sem sú ákærða hafði áður rifið af hurð bifreiðarinnar. Starfsmað- urinn gerir kröfu um skaðabætur upp á hálfa milljón króna. - jss Árás á bílastæði á Akureyri: Hótaði starfs- manni lífláti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.