Fréttablaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 4. júní 2010 5
TÓNLISTARHÁTÍÐ verður haldin í Hveragerði um helgina
undir heitinu Bjartar sumarnætur. Miðapantanir og miðasala
fer fram í Bókasafninu í Hveragerði.
„Við verðum um tuttugu eldsmið-
ir á staðnum en þrír Svíar leiða
hópinn. Þeir eru faglærðir eld-
smiðir og vinna við eldsmíði dags
daglega,“ segir Guðmundur Sig-
urðsson sem skipuleggur hina
skemmtilegu uppákomu á Safna-
svæðinu á Akranesi. Eldsmiðirn-
ir komu sér fyrir í gær en munu
sýna gestum og gangandi hand-
verkið fram á sunnudag.
„Við ætlum að búa til munstur-
stál líkt og notað er í samúræja-
sverð, einnig kallað damaskus. Svo
ætlum við að gera skúlptúr, smíða
blóm og á laugardaginn ætlum við
að vera með rauðablástur og búa
til járn úr mýrarauða,“ segir Guð-
mundur en sú aðferð var notuð af
landnámsmönnum til að búa til
járn í verkfæri og vopn. Sérstakur
ofn hefur verið útbúinn fyrir verk-
ið sem kynda þarf í sjö til átta tíma
áður en hafist er handa.
Guðmundur býður alla velkomna
til Akraness um helgina til að
kynna sér hið sérstæða handverk.
Eldsmiðirnir verða að störfum frá
klukkan níu að morgni og til sex á
kvöldin. „Annars er stundum erf-
itt að fá þessa menn til að hætta,“
segir Guðmundur hressilega.
solveig@frettabladid.is
Blásið í nýjar glæður
Eldsmiðir, innlendir og erlendir, verða með smiðjur sínar á Safnasvæðinu á Akranesi fram á sunnudag.
Þeir munu búa til munsturstál, skúlptúr og járn úr mýrarauða líkt og var gert á landnámsöld.
Skemmtilegt er að fylgjast með eldsmið-
unum að verki.
Byggður var sérstakur ofn til að búa til járn úr mýrarauða líkt og gert var á landnáms-
öld. MYND/ÚR EINKASAFNI
ÞriðjudagaJóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
20% afsláttur af sængurfatnaði
föstudag & laugardag.
Yfir 40 tegundir af rúmfatnaði
fyrir börn & fullorðna.