Fréttablaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 21
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég hef þessar gersemar í kringum
mig og fæ hér allt sem hugurinn
girnist, meira að segja jarðarber,
enda versla ég við alla garðyrkju-
bændur á svæðinu,“ segir Dagný
Ólafsdóttir á Gistiheimilinu Grund
á Flúðum þegar hún ber fram
Flúðasalatið sem veitingastaður-
inn hennar er þekktastur fyrir.
Dagný og maður hennar, Kristinn
Kristinsson, hafa rekið staðinn frá
árinu 2007 og þar er vistlegt um
að litast. Dagný er í eldhúsinu að
leggja síðustu hönd á salatdisk og
er beðin að lýsa því í orðum hvað
á honum sé.
„Ég byrja á að steikja kjúkl-
ingabringu, kæli hana niður og
sker í sneiðar eftir endilöngu. Svo
blanda ég saman grænu og rauðu
salati af ýmsum tegundum. Það
er klettasalat, labello, blaðsal-
at, spínat og það sem flottast er
hverju sinni. Svo er ég með papr-
iku, í þremur litum, niðurskorna
í teninga og ristaðar furuhnetur.
Þegar ég er búin að bunka salat-
inu á diskinn, legg ég kjúklinga-
sneiðarnar í píramída upp, set
svo sneið af papriku ofan á og
þar set ég venjulega heilsutómat,
opna hann eins og blóm og set þar
eitt jarðarber. Svo tek ég gúrku
og sker hana einhvern veginn út,
það er hægt að gera það á millj-
ón vegu. Við leikum okkur með
grænmetið, bæði með mynstrum
og litum til að gera það enn meira
fyrir augað. Að lokum dreypi ég
balsamikgljáa frá Ítalíu yfir. Með
þessu berum við fram brauð, sem
búið er að hita í ofni, í nokkrar
mínútur með hvítlaukssmjöri.“
Að þessum orðum sögðum vindur
Dagný sér með diskinn út á hlað,
þar sem ljósmyndarinn bíður eftir
að smella af henni mynd.
gun@frettabladid.is
Leikur með grænmeti,
liti, bragð og mynstur
Vinsælasti rétturinn á matseðli Gistiheimilisins Grundar á Flúðum er Flúðasalat. Þar er litfagurt græn-
meti úr heimabyggðinni í fyrirrúmi, brakandi og ferskt, ásamt steiktri kjúklingabringu.
„Það kemur fólki á óvart hvað salatið er vel útilátið, ferskt og gott,“ segir Dagný sem kveðst líka framreiða lambafilet er njóti
mikilla vinsælda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NÝR FISKMARKAÐUR opnar í grænu ver-
búðunum við Geirsgötu um helgina á Hátíð hafsins
og verður hann opinn alla laugardaga í sumar.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
HUMARSÚPA
rjómalöguð, með
Madeira og grilluðum
humarhölum
Við mælum með Macon Chanes Domaine
de Lalande með þessum rétti.
Elmar Kristjánsson,
yfirmatreiðslumaður
Perlunnar
Nýr A la Carte
4ra rétta tilboðsseðill
Verð aðeins 7.290 kr.
Góð tækifæ
risgjöf!
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki