Fréttablaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 4
4 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR
REYKJAVÍK „Þetta er auðvitað stór-
mál,“ segir Dagur B. Eggertsson,
oddviti Samfylkingarinnar í borg-
arstjórn um mögulega hækkun á
gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur
(OR). Líkt og Fréttablaðið greindi
frá í gær þarf hún að hækka um
tugi prósenta, eigi að mæta arð-
semiskröfu aðeins með gjaldskrár-
hækkun.
Dagur segir fyrirtæki og heimili
síst þurfa auknar álögur. „Hin hlið-
in á þessu er sú að upplýsingum um
þessa uppsöfnuðu þörf um gjald-
skrárhækkanir hefur verið haldið
leyndum fyrir borgarbúum og birt-
ast núna daginn eftir kosningar. Það
eitt og sér er grafalvarlegt mál.“
Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri segir ekki rétt að málið
hafi ekki verið rætt fyrir kosningar.
Það hafi verið tekið upp í borgar-
stjórn og borgarráði, og hún form-
lega gert grein fyrir því 19. maí.
Þá hafi upplýsingarnar verið lagð-
ar fram á næsta stjórnarfundi OR
eftir að um þær var beðið.
Hanna segir fráleitt að gera ráð
fyrir svo miklum hækkunum. „Sú
hækkunarþörf sem þarna er sett
fram er að mínu mati fráleit, enda
eru engin rök fyrir því að mæta
fjárþörf OR til næstu fimm ára með
því einu að sækja fé til almennings.
Spurningin, af hálfu Samfylkingar-
innar, er þess eðlis að hún kallar á
svör sem eru ekki í neinu samræmi
við það sem gera þarf hjá Orkuveit-
unni.“
Hanna segir að haldið verði
áfram í hagræðingu og verkefnum
sem tryggi bættan rekstur. Hún
áréttar að staðið hafi verið við að
hækka ekki gjaldskrá síðustu tvö ár
og hún verði ekki hækkuð á þessu
ári. „Ég hef ítrekað sagt það og
sagði það margoft fyrir kosningar
að gjaldskrár yrðu ekki hækkað-
ar á þessu ári og hækkanir á kom-
andi árum yrðu skoðaðar miðað við
verðlag.“
Dagur segir menn hafa kallað
eftir upplýsingunum í næstum
hálft ár og það sé ábyrgðarleysi af
Hönnu Birnu að víkja sér undan því
að birta borgarbúum mynd af stöðu fyrirtækisins. „Þetta er reikningur-
inn fyrir stjórn Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks síðustu fjög-
ur ár.“
Hann segist ekki treysta sér til að
segja hvort væntanlegur meirihluti
Samfylkingar og Besta flokks muni
hækka gjaldskrána. Til þeirrar
ákvörðunar þurfi gögn og réttar
upplýsingar sem ekki hafi fengist.
Þess má geta að matsfyrirtæk-
ið Moodys mat horfur um lánshæfi
OR neikvæðar í mars, meðal ann-
ars vegna þess að gjaldskráin hafði
ekki verið hækkuð.
kolbeinn@frettabladid.is
DÓMSMÁL Hæstiréttur þyngdi í gær
dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir
Catalinu Mikue Ncogo um eitt ár.
Héraðsdómur hafði dæmt hana
í tveggja og hálfs árs fangelsi en
Hæstiréttur bætti ári við refsing-
una.
Catalina var ákærð fyrir man-
sal, fíkniefnasmygl og vændis-
starfsemi. Hæstiréttur staðfesti
niðurstöðu héraðsdóms um sýknu
af mansali, þar sem mat héraðs-
dóms á sönnunargildi framburð-
ar konu sem kvað Catalinu hafa
blekkt sig, haldið sér nauðugri
hér og hafa neytt sig til að stunda
vændi, gat ekki komið til endur-
mats fyrir Hæstarétti.
Sannað þótti að virtum gögn-
um málsins og framburði vitna að
Catalina hefði haft viðurværi sitt
af vændi þriggja kvenna og haft
milligöngu um að fjöldi manna
hefði samræði eða önnur kynferð-
ismök við þær gegn greiðslu. Við
ákvörðun refsingar leit Hæstirétt-
ur til þess að Catalina hefði verið
sakfelld fyrir að hafa haft atvinnu
af umfangsmikilli vændisstarfsemi
um nokkuð langt skeið og staðið að
innflutningi á töluverðu magni af
hættulegum fíkniefnum. Var styrk-
leiki þeirra mikill. Dómurinn taldi
brotavilja Catalinu einbeittan og að
hún ætti sér engar málsbætur. -jss
Hæstiréttur sakfelldi Catalinu Mikue Ncogo fyrir vændi og kókaínsmygl:
Þyngdi dóm yfir Catalinu um ár
ÁR TIL VIÐBÓTAR Catalina Mikue Ncogo
var dæmd í þriggja og hálfs árs fangelsi.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
26°
25°
23°
20°
27°
26°
19°
19°
23°
23°
25°
30°
33°
20°
26°
20°
15°
Á MORGUN
3-8 m/s.
SUNNUDAGUR
Hæg breytileg átt
eða hafgola.
12
14
14
13
17
18
13
16
10
16
11
15
7
4
4
4
3
4
5
5
6
4
18
20
20
14
15
15 18
20
15
18
13
13
14
HELGARHORFUR
Þetta verður al-
deilis fl ott helgi
og þá sérstaklega
um norðan- og
austanvert landið
þar sem eru horfur
á bjartviðri báða
dagana og miklum
hlýindum. Við suð-
urströndina verður
hins vegar skýjað
og líkur á úrkomu
en á sunnudag
verður væta um
vestanvert landið.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Vegna missagnar í umsögn Persónu-
verndar var ranglega frá því sagt í
Fréttablaðinu í gær að nýtt frumvarp
gerði ráð fyrir heimildum til handa
félagsmálaráðherra að rannsaka gögn
ýmissa stofnana og fjármálafyrirtækja
um einstaklinga, Rannsókninni er
ætlað að varpa ljósi á fjárhagstöðu
heimila í landinu. Hið rétta er að
heimildin á að vera hjá efnahags- og
viðskiptaráðherra sem leggur frum-
varpið fram á Alþingi.
LEIÐRÉTT
Föðurnafn eins af meðlimum Óp-
hópsins misritaðist í myndatexta
í blaðinu í gær. Var Rósalind sögð
Gunnarsdóttir en hið rétta er að hún
er Gísladóttir.
Í Fréttablaðinu á miðvikudag sagði að
þrír unglingspiltanna sem eru í haldi
yfirvalda grunaðir um yfir 80 innbrot
í sumarbústaði væru af pólsku og
slóvensku bergi brotnir. Hið rétta er
að þeir eru af pólsku og slóvakísku
bergi brotnir.
ATVINNUMÁL Um þrjátíu manns
bættust við á atvinnuleysisskrá
á Þingeyri í dag eftir að Fisk-
vinnslan Vísir sagði upp kaup-
tryggingu hjá flestum starfs-
mönnum sínum á staðnum.
Ástæðan er lokun fiskvinnslunn-
ar í sumar.
Tilkynnt hefur verið að lokun-
in standi í þrjá mánuði, en jafn-
framt er óvíst hvenær fyrirtæk-
ið tekur til starfa að nýju.
Fiskvinnslan er stærsti vinnu-
staðurinn á Þingeyri en fyrir-
tækið er með höfuðstöðvar í
Grindavík.
Um tíu manns voru á atvinnu-
leysisskrá á Þingeyri fyrir
vinnslustöðvunina og eru þeir
því um 40 sem eru án atvinnu á
staðnum frá mánaðamótum. - shá
Vísir lokar á Þingeyri:
Atvinnuleysið
fjórfaldaðist
Segir að upplýsing-
um hafi verið leynt
Dagur B. Eggertsson segir að upplýsingum um hækkunarþörf OR hafi verið
leynt fyrir borgarbúum. Rangt segir Hanna Birna og segir málin oft hafa verið
rædd. Stjórnarformaður segir gjaldskrá verða að hækka til að ná markmiðum.
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Stjórnarfor-
maður Orkuveitu Reykjavíkur telur að
lág arðsemi og óbreytt gjaldskrá standi
fyrirtækinu fyrir þrifum þegar leitað hafi
verið eftir nýju lánsfé, bæði innanlands
og utan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HERMÁL Franska kafbátaleitar-
skipið Latouche-Tréville leggur að
höfn í Reykjavík á morgun.
Skipverjar munu taka þátt í
hátíðarhöldum sjómannadags-
ins á sunnudag og verður skipið
við bakka í Sundahöfn til þriðju-
dagsins 8. júní, að því er segir í
tilkynningu frá sendiráði Frakk-
lands hérlendis. „Viðkoma þess í
Reykjavík er hluti af venjubundn-
um verkefnum þess á norðurslóð-
um. Skipið er 139 metrar að lengd
og vegur 4.800 tonn. Áhöfnin telur
248 meðlimi,“ segir í tilkynning-
unni. Almenningi gefst kostur á að
skoða Latouche-Tréville á sunnu-
dag milli klukkan 14 og 18. - gar
Kafbátaleitarskip í heimsókn:
Frakkar fagna á
sjómannadegi
LATOUCHE-TREVILLÉ Franska herskipið
sem kemur til Reykjavíkur á morgun.
STJÓRNMÁL Það á strax að fara
í breytingar til að ráðherrar
gegni ekki þingstörfum sam-
hliða ráðherradómi, heldur rými
fyrir varamönnum sínum. Þetta
er skoðun Sigríðar Ingibjargar
Ingadóttur, þingmanns Samfylk-
ingar.
Frumvarp um þetta liggur
fyrir Alþingi, stutt meðal annars
af þingmönnum Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks. Sigríður segir
við Vísi að hægt væri að færa
ráðherra út af þingi strax í næsta
mánuði. Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra vildi ekki svara
fyrirspurn um þetta í gær. - kóþ
Þingmaður Samfylkingar:
Ráðherrar víki
úr þingstörfum
UMHVERFISMÁL Náttúrustofa Vest-
urlands hefur fengið sérfræð-
inga í landgræðslu til liðs við
sig vegna fyrirhugaðra aðgerða
gegn ágengum plöntum. Um sam-
starfsverkefni við Stykkishólms-
bæ er að ræða.
Landgræðslan og Landbúnaðar-
háskólinn munu mæla árangur
mismunandi aðferða, Náttúru-
fræðistofnun mun leggja til
greiningu á loftmyndum og
Háskóli Íslands mun standa fyrir
rannsóknum á félagslegum þátt-
um. - shá
Náttúrustofa Vesturlands:
Skera upp herör
gegn illgresinu
Guðlaugur G. Sverrisson segir, í bókun á stjórnarfundi OR
á miðvikudag, að samþykkja eigi nýja þriggja ára áætlun
sem geri ráð fyrir gjaldskrárhækkunum til að samþykktum
markmiðum stjórnar verði náð.
„Í desembermánuði sl. samþykkti stjórnin samhljóða
stefnu stjórnar þar sem gert er ráð fyrir að veiturnar skili
ákveðinni heildararðsemi eigna. Verulega skortir á að
þessum markmiðum sé náð og þarf gjaldskrá miðlanna að
hækka til þess að svo verði. Þá hefur komið fram að lág arðsemi og óbreytt
gjaldskrá stendur fyrirtækinu fyrir þrifum þegar leitað hefur verið eftir nýju
lánsfé bæði innanlands og utan.“
Telur lága gjaldskrá hamla lánum
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 03.06.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,0124
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,75 128,35
187,64 188,56
156,52 157,40
21,031 21,155
19,877 19,995
16,423 16,519
1,3779 1,3859
187,13 188,25
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Opið: Má. - Fö. 12 - 18
Lau. 11 - 15
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is