Fréttablaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 30
6 föstudagur 4. júní
✽ litagleði
tíska
Tískuverslunin Spúútnik á sérstakan sess í hjörtum
margra Reykjavíkurbúa, enda hefur hún séð mörgum
þeirra fyrir fallegum flíkum alla ævi. Í sumar verður
verslunin 25 ára. Í tilefni af því var ákveðið að ráðast í
að gera kynningarefni henni til heiðurs.
Spúútnik fékk til liðs við sig ljósmyndarann Sögu Sig,
en hún er á góðri leið með að verða eftirsóttasti tísku-
ljósmyndari landsins. Einvala lið skrautlegs fagfólks þátt
í myndatökunni. Stílisti var Hrafnhildur Hólmgeirsdótt-
ir. Þeir Þorsteinn Blær Jóhannsson, betur þekktur sem
Steini Díva, og Ísak Freyr Helgason, sem margir muna
eftir úr þáttunum Nýtt útlit, sáu um hár og förðun.
Hópurinn fór eins og hann lagði sig upp í Elliðaár-
dal, heim til þeirra Nonna og Heiðars, sem margir hafa
heimsótt og farið í ógleymanlegt „svett“ hjá. Nonni er
listamaður og ber heimilið þess ríkulega merki, en þar
er engan daufan blett að finna og ægir saman öllum
regnbogans litum. Útkoman var vægast sagt brjálæðis-
leg, gullfalleg og sumarleg, eins og þessi brot úr mynda-
tökunni sýna.
- hhs
BLÓMASPRENGJA
Nýjasti ilmurinn frá Viktor og Rolf, Flower Bomb, er léttur og
ferskur og á vel við á sólríkum sumardögum þegar fuglarnir
syngja og veröldin virðist vera sveipuð öllum regnbogans litum.
SPÚÚTNIK AFMÆLISMYNDIR