Fréttablaðið - 04.06.2010, Page 8
8 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR
1. Í raðir hvaða enska knatt-
spyrnuliðs hefur Jóhannes Karl
Guðjónsson gengið?
2. Hvaða stjórnmálamaður
sagði af sér embætti forsætis-
ráðherra Japans á miðvikudag?
3. Hvaða sjónvarpsþáttaseríu
gaf Jón Gnarr Degi B. Eggerts-
syni til að liðka fyrir meirihluta-
viðræðum?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
Ný og endurbætt útgáfa
Útgáfudagur 9. júní
Handhæg
t
ferðakort
Hljóðbók
Arnar Jón
sson
les 19 þjó
ðsögur
Nýr ítarle
gur
hálendisk
afli
Hafsjór af fróðleik
um land og þjóð
Gamla bókin tekin upp í á kr. 1.000
Aðeins í bókaverslunum - Ekki á bensínstöðvum
Vegahandbókin sími:
562 2600
Smiðjuvegi 2
Kópavogi
Sími 544 2121
www.rumgott.is
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 11-16
Löggiltir dýnuframleiðendur
– Starfandi í 60 ár
ÍSLENSK GÆÐARÚM Í SUMARBÚSTAÐINN
Framleiðum öll rúm eftir pöntun og afgreiðum innan sólarhrings!
VIÐ FRAMLEIÐUM ÞITT RÚM EFTIR ÞÍNUM ÓSKUM
Rúmgott framleiðir svæðaskiptar hágæða heilsudýnur í öllum stærðum.
30% AFSLÁTTUR
AF ÍSLENSKUM HEILSURÚMUM ÚT JÚNÍ
ÖLL ARINELDSTÆÐI
Á 50% AFSLÆTTI
EITT BESTA VERÐ
LANDSINS Á
GEL / ETHANOL
ARINELDSTÆÐUM.
Ethanol uppkveikilögur
2L. Kr. 1.490,-
BRETLAND, AP Rannsóknarlögreglan í Bretlandi
hefur reynt að finna vísbendingar um hvað
varð til þess að Derrick Bird, 52 ára leigubíl-
stjóri í norðvesturhluta Englands, tók upp á
því að skjóta á fólk meðan hann ók um þorp og
sveitir á miðvikudagsmorgun.
Athyglin hefur meðal annars beinst að rifr-
ildi hans við nokkra aðra leigubílstjóra kvöld-
ið áður en hann tók að myrða. Einnig hefur
athyglin beinst að hugsanlegum fjölskyldu-
deilum, sem sagðar eru snúast um arf.
Lögreglan segir þó margt óljóst og fólk
verði að sýna þolinmæði. Það sé erfitt og tíma-
frekt verk að púsla saman upplýsingum um
ferðir Birds og hugsanlegar ástæður fyrir
morðunum.
Bird varð tólf manns að bana áður en hann
stytti sér aldur. Ellefu manns að auki þurfti að
flytja á sjúkrahús, og voru átta þeirra enn á
sjúkrahúsi í gær. Þar af voru þrír í lífshættu,
en eru það ekki lengur þótt ástand þeirra sé
enn alvarlegt.
Einn hinna látnu er Kevin Commons, lög-
fræðingur sem vann fyrir fjölskyldu Birds. Þá
hafa breskir fjölmiðlar haldið því fram að tví-
burabróðir Birds, David, sé meðal hinna látnu.
Bird er sagður hafa verið rólyndismaður og
almennt vingjarnlegur við aðra.
„Hann hafði ekki mikil samskipti við aðra,“
segir June Lamb, kona sem þekkti vel til hans.
„Hann var þögull, en þó enginn einfari. Hann
skemmti sér með fólki.“ - gb
Lögregla í Bretlandi púslar saman upplýsingum um ferðir leigubílstjórans sem skaut tólf manns til bana:
Tilefni morðanna er enn hulin ráðgáta
SORGMÆDDIR AÐSTANDENDUR Bretar eru slegnir
vegna morðanna á miðvikudag. NORDICPHOTOS/AFP
FJÁRMÁL Útlit er fyrir að fjárþörf
ríkisins á næsta ári verði tæpum
tíu milljörðum minni en spáð hafði
verið. Fjárlagagatið nemi rúmum
40 milljörðum króna, í stað tæpum
50 milljörðum.
Í ráðuneytunum er unnið að til-
lögum til hagræðingar og þurfa
þau að skila tillögum til fjármála-
ráðuneytisins 11. júní. Ekki verð-
ur um flata niðurskurðarkröfu að
ræða, en samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins nemur niðurskurð-
ur um fimm til tíu prósentum.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir vinnu við fjár-
lögin ganga vel. Seinkun þjóðhags-
spár hafi þó sett strik í reikninginn
og því hafi þurft að reikna sumar
hagtölur innan ráðuneytanna.
Í grófum dráttum sé fjárhags-
búskapurinn á áætlun; tekjuhliðin
sé aðeins undir en hvað gjöld varð-
ar standi ríkissjóður vel. Sparnað-
aráætlanir þær sem gripið var til í
fyrra hafi gengið vel upp.
Steingrímur vill ekki tiltaka
tölur í þessum efnum. Fréttablað-
ið hefur þó heimildir fyrir því að
gatið sem stoppa þarf í fyrir árið í
fyrra verði tæpum tíu milljörðum
minna en hugað var; muni nema
rúmlega 40 milljörðum í stað tæp-
lega 50 milljarða.
Samkvæmt sömu heimildum
verður þunginn á útgjaldahlið-
inni, eða um þrír fjórðu hlut-
ar. Það þýðir hagræðingu um 30
milljarða, eða um það bil. Afgang-
inum verði náð inn í gegnum aukn-
ar tekjur.
Steingrímur segir að ítarlegri
skýrslu verði skilað til þingsins
í aðdraganda fjárlagagerðar, líkt
og gert var í fyrra. Þar sé bæði
tekið á fjárlagafrumvarpi næsta
árs, en líka áætlun og stöðu í heild.
„Við reiknum ekki með sambæri-
legum skattabreytingum og í
fyrra, í aðalatriðum verða sömu
skattstofnar keyrðir áfram með
svipaðri útfærslu. Frekar verður
horft til sértækari tekjuöflunarað-
gerða.“ kolbeinn@fréttabladid.is
Minna fjárlagagat
en reiknað var með
Seinkun þjóðhagsspár setur strik í reikning fjárlagagerðar. Útlit fyrir að staðan
sé tæpum 10 milljörðum betri en talið var. Um þrír fjórðu hlutar verða teknir í
gegnum útgjaldalið. Ráðuneytin krafin um fimm til tíu prósenta hagræðingu.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Steingrímur J. Sigfússon segist ekki reikna með sambærilegum skattabreytingum og í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VEISTU SVARIÐ?