Fréttablaðið - 04.06.2010, Síða 16

Fréttablaðið - 04.06.2010, Síða 16
 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR IÐNAÐUR Á næstu vikum kunna að liggja fyrir tillögur um skatta- ívilnanir og hvata frá hinu opin- bera til fólks og fyrirtækja sem vill færa sig yfir í vistvæn öku- tæki, eða breyta ökutækjum sínum þannig að þau verði vist- vænni. Starfshópurinn var kynnt- ur á ráðstefnu um visthæfar sam- göngur í Háskólanum í Reykjavík í gær. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráð- herra, segist gera ráð fyrir að hóp- urinn vinni hratt og skili ábend- ingum áður en endanleg mynd kemst á tillögur hans í haust. Á ráðstefnunni í gær voru kynntar margvíslegar lausnir sem tengjast visthæfum sam- göngum og sýndar voru bifreið- ar sem ganga fyrir rafmagni, metani, lífdísil og vetni. Katr- ín segir hins vegar ljóst að það verði ekki stjórnvöld sem taki ákvörð- un um hvaða tækni verði á endanum ofan á. „Tækniþró- unin og markað- ir erlendis ráða þessu,“ segir Katrín, en kveður það þó um leið sína tilfinningu að hér verði ofan á blönduð leið. „Aðstæður og aðgengi að orku- gjöfum er svo misjafnt eftir lönd- um.“ Iðnaðarráðherra afhjúpaði í gær nýtt merki áætlunar um orkuskipti í samgöngum. Nýr vefur áætlun- arinnar er www.graenaorkan.is. Spurningum sem vakna um aðkomu stjórnvalda að uppbygg- ingu og áherslum í breyttu orku- umhverfi í samgöngum segir hún að verkefnisstjórnin, sem nú hafi verið skipuð, svari. Þar á meðal er spurningin um hvort olíufélögum verði gert að blanda lífrænni olíu í jarðefnaolíu í ákveðnum mæli, líkt og þegar hefur verið fyrir- skipað í Noregi og í löndum Evr- ópusambandsins. „Núna erum við í raun og veru að setja þetta átak af stað, en allt eru þetta hlutir sem verkefna- stjórnin er að fara að vinna að. En við ætlum henni nú að gera áfangaskiptaáætlun, sem nær utan um framleiðslu á eldsneyt- inu, nýsköpun hvað varðar far- artæki og uppbyggingu á innvið- um,“ segir hún og vísar þar jafnt til aðgengis að ökutækjum sem og að eldsneytinu. „Í þriðja lagi þarf svo að skoða skattaumhverfið og hvatana þannig að þetta geti gerst hratt. Ég geri ráð fyrir að menn geti verið komnir með nokkuð góða mynd af þessari áætlun strax í haust. Og þá geta menn bara ætt af stað.“ olikr@frettabladid.is KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR Á RÁÐSTEFNU UM ORKUSKIPTI Einar Vilhjálmsson, markaðsstjóri Metans, hér að ofan, segir bestu leiðina að breyta bílum í met- anbíla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ákvarðana um orku- skipti brátt að vænta Iðnaðarráðherra væntir þess að á næstu vikum komi fram fyrstu tillögur nýrrar nefndar um orkuskipti í samgöngum. Beðið er ákvarðana um opinberar ívilnanir vegna eldri bíla sem breytt er í vistvæna. Grunndrög orkuskipta liggi fyrir í haust. Á þremur árum á að breyta öllum bílum Íslenska gámafélagsins þannig að þeir gangi einnig fyrir metangasi. Dótturfélag Gámafélagsins, Véla- miðstöðin, starfrækir 900 fermetra verkstæði þar sem bílum er breytt. Jón Þórir Frantzson, forstjóri félagsins, upplýsti á ráðstefnu um vistorku í samgöngum sem fram fór í gær að fimmtungur bíla félagsins gangi nú þegar á íslenskri grænni orku. Hann segir allt til reiðu til að uppfæra bíla í stórum stíl. Margir bíða þó enn fregna frá hinu opinbera um hvort fólk sem fer þessa leið fái einhverja ívilnun, svo sem endurgreiðslu virðisaukaskatts eða eingreiðslu á móti kostnaði. Gjöld eru felld niður af nýjum vistvænum bílum sem fluttir eru til landsins. Jón Þórir segir að þegar fyrsta bílnum var breytt hjá Vélamiðstöðinni fyrir nokkrum árum hafi það tekið hálft ár. Núna sé bílum breytt á einum til þremur dögum. Nokkur kostnaður fylgir þó, á bilinu þrjú til sjö hundruð þúsund krónur, eftir stærð bíla. Sá kostnaður kemur til baka í lækkun elds- neytiskostnaðar eftir 20 til 40 þúsund kílómetra akstur, eftir því hve bíllinn eyðir miklu. Nú þegar segir Jón Þórir að hægt væri að safna metangasi hér innanlands sem nægja myndi flota 25 til 30 þúsund bíla. - óká LEIÐA BREYTINGU BÍLA Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafé- lagsins, og Lingþór Jósepsson, fram- kvæmdastjóri Vélamiðstöðvarinnar FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ 500 bíla floti gangi allur fyrir metangasi EL 3ja hjóla álkerra - verð aðeins 17.900.- ML 3ja hjóla álkerra - verð aðeins 24.900.- VÖNDUÐ GOLFSETT Verð á heilu golfsetti með poka kr. 49.900.- Karla RX Blátt 460cc driver, 3 tré og 4/5 hybrid kylfa með léttum ProVision grafítsköftum 6-PW járn með gæða True-Temper stálsköftum RX Pútter með True-Temper stálskafti Izzo Burðarpoki og 3 Kylfukóver Kvenna RX Champagne 460cc driver, 3 tré og 4/5 hybrid kylfa með léttum ProVision grafítsköftum 6-PW járn með léttum ProVision grafítsköftum Izzo RX Pútter með True-Temper stálskafti Izzo Kerrupoki og 3 Kylfukóver kr. 49.900.- Deluxe 3 hjóla álkerrur Verð á heilu golfsetti með poka Frábært verð Frábært verð M ör ku n 20 10 Sportver Akureyri Hafnarbúðin Ísafirði Sportbær Selfossi Skógar Egilsstöðum Golfbúðin Hafnarfirði Útilíf Smáralind/Holtag. Fjarðasport Neskaupstað Veiðflugan Reyðarfirði DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt 24 ára karlmann, Birki Arnar Jónsson, í fimm ára fangelsi fyrir manndrápstilraun í Breiðholti í nóvember síðastliðnum. Héraðs- dómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Birki í sex ára fangelsi. Birkir fór grímuklæddur og vopnaður haglabyssu að heimili í Breiðholti að næturlagi í nóvem- ber. Hann bankaði á dyrnar og þegar maðurinn sem hann var á höttunum eftir lauk upp dyrunum rak hann haglabyssuhlaupið í enni hans og hóf í kjölfarið skothríð. Maðurinn sem inni var náði með naumindum að loka dyrunum og skríða í skjól en hlaut þó rispu á nefi og hringlaga sár á enni af atlögunni. Segir í dómnum að framburður Birkis hafi verið afar ótrúverðug- ur en framburður þolandans á hinn bóginn mjög trúverðugur. Árásin, sem framin var í hefndarhug, hafi verið stórhættuleg og beinst að lífi og heilsu þess sem skotið var að. Refsingin er sem áður segir milduð úr fimm árum í sex og bætur til handa þolandanum eru einnig lækkaðar úr 900 þúsund krónum í 600 þúsund. - sh Hæstiréttur mildar dóm yfir Birki Arnari Jónssyni fyrir skotárás í Breiðholti: Fimm ár fyrir lífshættulega skothríð Í HEFNDARHUG Birkir Arnar, sem hér sést leiddur úr dómsal á leið í gæslu- varðhald, var í hefndarhug þegar hann bankaði upp á í Þverárselinu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.