Fréttablaðið - 04.06.2010, Page 22
Art & design / Sjøfn Har / Skólavörðustígur 41 101 Reykjavík,
Sími: 551 0606 / 894 0367 • sjofnhar.is • sjofnhar@sjofnhar.com
Opið virka daga kl.13.00–18.00
Laugard. kl.12.00–18.00
Útskriftargjafir • Brúðargjafir • Vinargjafir • Listaverkakort eru innifalin
Íslensk myndlist í gjafapakkann þinn
„Landslag”Ísland
Velkomið að hafa samband á öðrum tíma
LAUGAVEGI 42
SÍMI 552 1818
MOMO.IS
FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM
Opið til kl. 18 á laugardag
MOMO MENN – ný búð á
Laugavegi 45, beint á móti
Momo konur.
„Við hefjum leikinn á morgun,“
segir Guðríður Inga Ingólfsdóttir,
verkefnastjóri viðburða hjá Höfuð-
borgarstofu um Hátíð hafsins sem
lýkur svo seinnipart sunnudags. „Ég
held að þetta verði mjög skemmti-
leg og glæsileg hátíð í ár af því að
það er svo mikið líf að skapast niðri
við höfn. Það er að verða svo mikið
menningarstarf þar með tilkomu
Sjóminjasafnsins,“ segir Guðríður
og telur fleira upp: „Nýr veitinga-
staður sem heitir Bryggjan opnar
í Sjóminjasafninu og í gömlu ver-
búðunum verður opnuð fjölbreytt
og skemmtileg starfsemi, vinnu-
stofur listamanna, veitingastaðir,
og gallerí.“
Hefðbundin hátíðahöld verða á
Hátíð hafsins en aðalskemmtunin
fer fram á Granda sem teygir sig
svo yfir á Ægisgarð. „Það er hopp
og skopp fyrir börnin. Fjölbreytt-
ar smiðjur verða á hátíðinni en í
Hugmyndahúsi háskólanna verða
tveir arkitektar með módelsmiðju
sem kallast Undirheimar hafsins,“
segir Guðríður og bætir við að þar
verði skapaður skemmtilegur heim-
ur með þátttakendum. „Þeir ætla
að skapa undirheima hafsins með
fjölskyldunum sem mæta á svæð-
ið. Þátttakendur leggja hugmynd-
ir í púkkið og þeir vinna þetta svo
áfram með þeim.“
Guðríður segir að einnig verði
hnútasmiðja og flöskuskeytasmiðja
á hátíðinni. „Þeir sem taka þátt í
flöskuskeytasmiðjunni geta farið í
flöskuskeytasiglingu með Sæbjörg-
inni seinni part laugardags og kast-
að flöskuskeytum fyrir borð. Svo
verða farnar skemmtisiglingar með
Sæbjörginni.“
Guðríður tekur fram að Færey-
ingar muni verða sérstakir gestir
hátíðarinnar. „Þeir koma siglandi á
glæsilegri skútu sem er afar gömul.
Hún er frá aldamótunum 1900,“
upplýsir Guðríður sem segir að lið
frá þeim muni keppa í kappróðrin-
um en sjö lið hafa þegar skráð sig
til þátttöku. En stendur skráning
enn yfir? „Já, það er alveg hægt að
vera með en æfingatíminn er orðinn
stuttur,“ segir Guðríður brosandi.
Aðspurð segir Guðríður hátíðina
hafa verið vinsæla undanfarin ár.
„Eiginlega er hún að vaxa vegna
þess að menningarstarf við höfn-
ina er að aukast. Margt sem verð-
ur að opnað á hátíðinni mun lifa í
allt sumar þannig að við erum aftur
að nálgast höfnina og hafið sem við
vorum aðeins byrjuð að fjarlægj-
ast.“ martaf@frettabladid.is
Nálgast höfnina og hafið
Höfnin í Reykjavík mun iða af lífi um helgina þegar Hátíð hafsins verður haldin í tilefni sjómannadags-
ins. Flöskuskeytasigling, hnútasmiðja og undirheimar hafsins eru partur af hátíðahöldunum ásamt öðru.
Guðríður Inga segir mikið líf vera að skapast niðri á höfn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM