Fréttablaðið - 04.06.2010, Síða 26
2 föstudagur 4. júní
núna
✽ Sumar og sól
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Stefán Karlsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Nýrri heimasíðu fagnað
Danskennarinn Brynja Pétursdóttir
hefur komið á laggirnar nýrri vefsíðu
þar sem sjá má ýmis myndbrot frá
þeim námskeiðum sem hún hefur
haldið auk þess sem finna má allar
upplýsingar um næstu námskeið.
Síðan er á slóðinni www.brynjapet-
urs.is og í tilefni af opnun síðunn-
ar verður efnt til veislu
á skemmtistaðn-
um Prikinu. Dj Danni
Deluxxe mun leika
fyrir dansi auk
þess sem þeim
sem fyrstir
mæta
verður
boðið upp á
kokteilinn Boogie
Down Reykjavík.
KRISTRÚN HEIÐA HAUKSDÓTTIR,
KYNNINGARSTÝRA FORLAGSINS
Ég ætla að eyða helginni í Biskupstungunum við að reyta arfa,
fúaverja, setja niður salat og búa í haginn fyrir sumarið. Það er
mér bæði ljúft og skylt að gera einu sinni á ári í þessum bústað
sem ég hef óbeinan aðgang að. Ég er búin að panta gott veður!
helgin
MÍN
Við erum að leita að fjölbreyttum setningum frá alls konar konum. Þær þurfa ekki að vera háfleygar heldur miklu frek-
ar einlægar, skemmtilegar og helst sagðar af sem mestu hispurs-
leysi. Okkur langar að virkja íslenskar konur, hvetja þær til sam-
stöðu, stemningar og sköpunar, og fá að vita hvað þær eru að
hugsa,“ segir Myrra Leifsdóttir, sem ásamt Kristínu Birgisdóttur,
eða Kríu, hjá Sölku útgáfu vinnur nú að útgáfu fjórðu dagatals-
bókarinnar Konur eiga orðið.
Þær Myrra og Kría hafa unnið saman að verkefninu frá því að
fyrsta dagatalsbókin kom út árið 2008. Þær eiga það sameiginlegt
að finnast íslenskar konur afar áhugaverðar og skemmtilegar, svo
þeim leiðist ekkert að vinna í verkefninu. Kría sér um ritstjórnina
en Myrra sér um listræna framsetningu, og teiknar hún til dæmis
myndir við setningarnar sem berast. „Ég fæ yfirleitt mestan
innblástur af einhverju sem er augljóslega sagt bara svona
út í bláinn, frekar en einhverju mjög alvarlegu um hvernig
maður á að lifa lífinu,“ segir Myrra.
Hún segir tilganginn með útgáfu Konur eiga orðið öðrum
þræði að virkja tengsl milli íslenskra kvenna. „Við höldum allt-
af útgáfupartí þar sem allar konurnar í bókinni hittast. Þar hafa
myndast mikil tengsl og ég hef til dæmis kynnst fullt af konum í
gegnum það sem ég hef unnið með seinna.“
Um áttatíu konur koma að gerð bókarinnar með einum eða
öðrum hætti á hverju ári. Þar af eru 64 konur sem eiga setningar í
bókinni og tólf sem eiga ljósmyndir. „Ljósmyndirnar skreyta setn-
ingarnar. Ljósmyndararnir fá yfirleitt að velja sér setningu og fara
svo af stað og taka myndir út frá því. Ég reyni alltaf að finna nýja
ljósmyndara á hverju ári, áhugaljósmyndara eða einhverja sem
eru að taka sín fyrstu skref. Það eru mjög margar íslenskar konur
að taka ljósmyndir í dag, en það fer miklu minna fyrir þeim held-
ur en körlunum.“
Tekið er á móti setningum og ábendingum á tölvupóstfangið
kristin@salkaforlag.is. - hhs
Myrra Leifsdóttir og Kristín Birgisdóttir safna orðum fyrir dagatalsbókina Konur eiga orðið:
Í LEIT AÐ HISPURS-
LAUSUM GULLMOLUM
Markaðir um alla borg
Varla hefur liðið sú helgi und-
anfarna mánuði að ekki hefur
verið blásið til markaðar eða
skammtímaverslunar af ein-
hverju taginu. Helgin sem
er að bresta á verður engin
undantekning þar á. Auk
PopUp-markaðarins sem sagt er
frá hér á síðunni verður markaður
úti á Gróttu með alls kyns listmun-
um og spennandi gömlum hlut-
um og fötum. Markaðurinn verður
að Bygggörðum 5, Seltjarnarnesi,
á laugardaginn á frá klukkan 11 til
17. Þá ætlar vefverslunin Lou Lou
að skella upp skammtímaversl-
un um helgina á efri hæð Nýlendu-
vöruverzlunar Hemma og Valda á
Laugavegi 21. Þar verður hægt að
nálgast allar vörurnar sem til sölu
eru í vefversluninni, auk nokkurs
úrvals af notuðum fötum.
PopUp Verzlun mun standa fyrir skemmtilegum útimarkaði í
gamla Sirkusportinu á morgun.
Þetta er í fyrsta sinn sem PopUp
markaðurinn er haldinn utandyra
en vonandi ekki hið síðasta enda
um frábært framtak að ræða.
PopUp markaðurinn hefur verið
starfræktur frá því í ágúst í fyrra
og er markmið hans að skapa
vettvang fyrir unga hönnuði til
að koma vörum sínum á framfæri
milliliðalaust til neytenda. Meðal
þeirra hönnuða sem taka þátt í
markaðinum á morgun eru Ása
Ninna, Þórey Björk, Silja Hrund og
Aaron Bullion.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við
höldum svona útimarkað og við
vonumst auðvitað til þess að veðrið
verði sem best. Við erum þó ekki
alltof áhyggjufull því við erum með
tjald með okkur og því kannski ekki
hundrað í hættunni þó hann fari að
rigna örlítið,“ segir Elva Dögg Árna-
dóttir, einn aðstandenda markaðar-
ins, og bætir við að næsti útimark-
aður verði haldinn á Seyðisfirði í
júlí í tengslum við listahátíðina
LungA. Markaðurinn hefur fram
að þessu verið haldinn mánaðar-
lega en í sumar verður breyting þar
á og verður hann haldinn tvisvar í
mánuði sem hlýtur að teljast gleði-
efni fyrir alla áhugamenn um ís-
lenska hönnun.
Markaðurinn hefst klukkan 12.00
og stendur til klukkan 18.00. - sm
Líf og fjör í gamla Sirkusportinu á morgun:
Útimarkaður PopUp
Kría og Myrra Eru að safna skemmtilegum setningum frá íslenskum konum. Þær eiga
að fara í fjórðu dagatalsbókina sem þær vinna að í sameiningu, með innleggi frá fjölda
kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ekki hundrað í hættunni Elva Dögg
Árnadóttir, einn aðstandenda markað-
arins, segir ekki hundrað í hættunni þó
hann rigni örlítið á útimarkaðinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
þetta
HELST