Fréttablaðið - 04.06.2010, Side 29

Fréttablaðið - 04.06.2010, Side 29
4. júní föstudagur 5 Elvgren. Seinni línan kom út í vor og nefnist White Goddess og inni- heldur fjórar mismunandi greiðsl- ur. „Mig hafði lengi langað að gera eigin hárlínur. Svo þegar ég varð einyrki fannst mér ég þurfa eitthvað til að ögra sjálfri mér og ákvað að kýla á þetta. Ég byrjaði mjög hægt ÞURFTI SPARK Í RASSINN Anna Sigríður ákvað að hætta rekstri stofunnar í lok sumars 2008 og snúa sér að öðrum verk- efnum. En var ákvörðunin um að hætta með Gel erfið? „Já og nei. Mér fannst einhvern veginn eins og Gel hefði náð sínum hátindi og fannst vera kominn tími á breytingar og auk þess var ég orðin þreytt á því að vinna eins mikið og ég gerði. Þetta var engin skyndiákvörðun, ég var búin að vega og meta alla þætti vandlega og þegar ég loks ræddi hugmyndina við hitt starfsfólk- ið komst ég að því að þau voru öll tilbúin í breytingu og sumir þurftu einmitt þetta spark í rassinn til að koma sér í það sem þau vildu gera. En þrátt fyrir þetta var ég ekki alveg tilbúin til að leggja skærin frá mér þannig að þegar ég frétti af því að hárvörurnar frá Vidal Sassoon væru loks komnar til landsins ákváðum við Aron, þáverandi kærasti minn, að plotta svolítið saman og til varð Barber Theatre.“ Barber Theatre opnaði í sama húsnæði og Gel var í áður og segir Anna að pælingin hafi verið að hún hefði áfram sitt vinnusvæði þar en hitt rýmið yrði notað undir ýmsar uppákomur. „Við vorum með einhverjar kvikmynda- sýningar þarna til að byrja með en svo hefur þetta verið leigt út fyrir afmæli, fatamarkaði og meira að segja jógakennslu.“ ÖGRAR SJÁLFRI SÉR Anna varð fyrsti hárstílistinn á Ís- landi til að hanna eigin hárlínu og kom sú fyrsta út haustið 2009. Fyrri línan nefndist Psychobilly og var hún innblásin af gömlu „quiff“ hártískunni og listamanninum Gil RSTU ÁRA FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Krestina Lauridsen 24 ára frá Helsingör KUREN er mjög áhrifaríkleið til úthreinsunar” “ FÉKK AFTUR SLÉTTAN MAGA HVAÐ GETUR KUREN GERT FYRIR ÞIG? „Á morgnana var maginn á mér sléttur og fínn! En þegar það fór að líða á daginn blés hann meira og meira út og leit hann stundum út eins og ég hefði gleypt stóra blöðru. Börnin á frístundaheimilinu þar sem ég starfa spurðu mig oft hvort ég ætti von á barni. Gott fyrir meltinguna Hin 24 ára gamla Krestina Laurisen átti lengi í þessari uppþembu: -Ég rakst á auglýsingu í vikublaði um KUREN, sem er fljótleg og auðveld úthreinsun. KUREN er unninn úr náttúrulegum jurtum sem hjálpa meltingunni af stað og hjálpa líkamanum í leiðinni að losa sig við uppsöfnuð úrgangsefni. Þetta fannst mér hin hreinasta snilld og ákvað ég því að drífa mig á næsta sölustað og fjárfesta í KUREN. Afgreiðslukonan í heilsubúðinni var mjög upplýst og staðfesti hvað KUREN væri áhrifa- ríkur þegar kemur að því að hreinsa líkamann og einnig að hann væri bragðgóður og auðveldur í notkun. Ég blandaði KUREN í vatn og mikið rétt, KUREN smakkaðist vel en ég mæli með að drukkið sé ríkulega af vatni með inntöku á KUREN, því það eykur virkni úthreinsunar. Maginn á mér aftur sléttur og fínn ”KUREN virkaði fljótt og vel. Maginn varð sléttur á ný og uppþembu tilfinningin hvarf algjör- lega. Og sem betur fer er ég hætt að heyra frá þeim sem í kringum mig eru hvort að ég sé barnshafandi. Þetta var svo auðveldur kúr í aðeins 10 daga. Ef ég fer að blása út aftur þá er bara málið að taka aftur annan kúr á KUREN.“ Orðið „hreinsikúr” eða „detox“ fær suma til að hugsa um svelti, að drekka einungis vatn og safa eða huggulega og afslappandi dvöl í Póllandi, Indlandi, Þýskalandi eða Reykjanesbæ. Hjá flestum er þetta draumur sem rætist oftast ekki í amstri dagsins. Í grunninn byggist hreinsikúr upp á því að virkja úthreinsibúnað líkamans ef svo má að orði komast. Þar er átt við nýru, svita og meltingu. Samsetning jurtanna í KUREN byggist á því að örva þennan hreinsibúnað. Inulin – trefjar sem gagnast meltingunni KUREN er eini danski hreinsikúrinn sem inniheldur Inulin í hæfilegu magni en Inulin eru plöntuættaðar trefjar. Vísindalegar rannsóknir hafa staðfest gagnsemi þeirra fyrir lífsnauðsynlegu mjólkursýrubakteríur- nar (góðgerlana) í meltingarfærunum, en aðeins ef tekin eru inn 4 til 5 grömm á dag eins og KUREN inniheldur. Við inntöku á KUREN örvast hægðarlosun sem margir, sérstaklega þeir eldri, eru ánægðir með. Birkiblöð, klóelting og brenninetla eru afar hjálplegar plöntur þegar kemur að örvun nýrnastarfseminnar. Það er mjög mikilvægt að drekka ríkulega af vatni á meðan 10 daga hreinsikúr KUREN stendur yfir. Þegar kemur að því að losa úrgangsefni í gegnum svitaholurnar er hreyfing áhrifaríkust en einnig geta króklappa og svartyllir eflt úthreinsiferlið til muna. Innihaldsefni KUREN eru: Inulin (oligofructose), agerpaddeerokke (klóelting), glat burre (króklappa), hyldeblomst (svartyllir), birkiblöð og brenninetla. Útsölustaðir: flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur stórmarkaðanna og ætla að leyfa þessu að þróast í rólegheitunum. Fyrir White Godd- ess lét ég til dæmis útbúa bækling sem ég dreifði um bæinn, en það hafði ég ekki gert með fyrri línuna.“ Þegar hún er spurð hvert hún sæki innblástur fyrir línurnar segir hún hugmyndirnar bara fæðast. „Stund- um koma hugmyndirnar bara til manns. Í fyrstu línunni vann ég með hugmyndir sem ég hafði geng- ið með í hausnum lengi en núna er meiri tímapressa á manni. Núna fæ ég hugmyndir héðan og þaðan en þarf frekar að virkja þær og sæki þá mikið í bækur og annað slíkt. Það er meira um heimavinnu núna,“ Hvað framtíðina varðar segir Anna hana óráðna. „Ég hélt því fram einu sinni að maður ætti að skipta um starfsvettvang á tíu ára fresti og það styttist nú í það hjá mér. Ég gæti vel hugsað mér að fara í meira nám. En framtíðin er enn óráðin.“ Anna Sigríður hefur sent frá sér tvær hárlínur, eina vetrarlínu og eina sumarlínu. Fyrsta línan, Psychobilly kom út haustið 2009 og sú síðari kom út í vor. Sumarlín- an nefnist White Goddess og inniheldur tvær karlaklippingar og tvær kvennaklipp- ingar. Í línunni prófaði Anna sig áfram með óvenjulega liti og blandaði þeim við gráan lit til að fá mattari áferð. „Ég var að prófa þessa litablöndu í fyrsta sinn en var mjög ánægð með útkom- una. Það getur verið svolítið erfitt að blanda bleikan eða rauðan lit við hvítan hára- lit þannig að með þessu var ég aðeins að ögra sjálfri mér. Það er alltaf svolítil hætta á að útkoman sé eins og manneskjan hafi fengið gat á hausinn.“ Að sögn Önnu er hártískan síbreytileg og segir hún að gaman sé að prófa sig áfram með nýjar hugmyndir. „Tæknin breytist ef til vill ekki, en það kemur reglulega fyrir að ég rek augun í eitthvað sem ég hef aldrei séð áður. Það er alltaf eitthvað nýtt að ger- ast í hártískunni.“ Gaman að prófa sig áfram með nýja hluti

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.