Fréttablaðið - 04.06.2010, Page 40
24 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Mig
dreymdi
furðulega í
nótt
Já?
Ég var
að
dansa
River-
dans –
NAKINN!
Það var
ekki
fallegt!
Bara 250
stöðvar.
Bara 8000 lög
í iPodinum
mínum.
Sama gamla
endalausa úrvalið af
leikjum og heimasíð-
um á Netinu.
Er allt
í lagi?
Ég nenni ekki
að gera neitt
í dag.
Takmarkaður
aðgangur
Það er eins gott að þetta
séu ekki nýju skórnir þínir!
Sjómannadagurinn 6. júní 2010
Vantar sölufólk um helgina.
Góð sölulaun í boði.
Upplýsingar veitir Guðmundur Jóhannsson
í síma 8620537
Námskeið um
offitu í kvöld
Þegar ég var lítil var ég heilluð af Sögum Biblíunnar, tíu stórum bláum bókum
sem amma keypti af farandsala. Þær voru
gríðarlega myndskreyttar og þar voru
hetjusögur af góðum vinum, spennusögur
af barnsfórnum, hryllingssögur af konum
sem skáru menn á háls og var hent út um
glugga og hundar rifu í sig, og margar
fleiri.
ÞESSAR sögur gerðust í landi sem hét Ísra-
el og voru um fólk sem hét gyðingar. Guð
var alltaf að tala við gyðingana og lofa þeim
alls konar ef þeir höguðu sér vel en samt
var alltaf verið að reka þá burt úr landinu
sínu og ýmist færa í ánauð til Egyptalands
eða herleiða til Babýlon. Aumingja gyð-
ingarnir.
SKÖMMU seinna las ég svo Ívar
hlújárn, þar sem gyðingastúlkan
Rebekka var fórnfús, væn og fögur
þrátt fyrir fordóma og andstreymi, og
leikin af Elizabeth Taylor á ljósmyndun-
um sem prýddu bókina. Þá uppgötvaði
ég líka að gyðingar hefðu hvergi átt
heima öldum saman og verið útlægir
og óvinsælir hvar sem þeir fóru.
AUMINGJA gyðingarnir.
ÞEGAR sjónvarpsþættirnir um
Helförina voru sýndir í sjón-
varpinu horfði ég að sjálfsögðu ekki á þá
enda efnið ekki talið hollt börnum. En ég
vissi upp á hár um hvað þeir voru, hræði-
lega nasista sem tóku gyðingabörn og drápu
þau og fjölskyldur þeirra og alla sem þau
þekktu. Aumingja veslings gyðingarnir.
EN sem betur fer endaði raunasaga gyð-
inganna vel. Þeir fengu aftur landið sitt,
fluttu þangað, reistu sér byggðir og bú í
blómlausum eyðimerkursandi og undu svo
glaðir við sitt. Nema hvað einhverjir vondir
arabar voru alltaf að reyna að stela landinu
þeirra frá þeim, enn einu sinni. Aumingja
gyðingarnir.
ÉG var tíu ára þegar ég tjáði samúð mína
yfir kvöldfréttunum og pabbi útskýrði fyrir
mér að þetta væri ekki svona einfalt. Að
áður en gyðingarnir eða Ísraelsmenn, eins
og þeir hétu núna, hefðu fengið landið sitt
aftur hefði önnur þjóð búið þar í tvö þúsund
ár. Og nú væru aumingja gyðingarnir að
sýna þeirri þjóð nákvæmlega sömu grimmd
og þeir hefðu sjálfir mátt þola.
SÍÐAN ég var tíu ára eru liðin þrjátíu ár
og ástandið í Palestínu hefur bara versn-
að. Alheimssamúðin sem Ísraelsmenn hafa
baðað sig upp úr frá 1940 hlýtur að renna
út bráðum. Ég legg til að heimurinn hætti
að efna samviskubitsloforð sín við Ísraels-
menn þangað til þeir fara að haga sér.
Guðs útvalda þjóð