Fréttablaðið - 04.06.2010, Qupperneq 46
4. júní 2010 FÖSTUDAGUR
KORPUTORGI
Opið: Mán.-lau. 11 til 18
Sun. 12 til 18 • Sími 578 9400
T-BOLIR
MIKIÐ ÚRVAL
GOTT VERÐ
VERÐ kr. 1.995
TILBOÐIN GILDA FRÁ
FÖSTUDEGI TIL SUNNUDAGS
25%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
PÓLÓBOLUM
OG CHAMPION
BARNAFATNAÐI
50%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
DVD-MYNDUM
OG
TÖLVULEIKJUM
T-
bo
li
r
m
eð
á
le
tr
un
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
NÝTT RÝMI Jette Junkers opnar verslun við Skólavörðustíg í dag. Þar mun hún selja
eigin hönnun undir merkinu J E T KORINE. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég elska að sofa, ég gæti
sofið allan daginn.“
MILEY CYRUS
um áhugamál sín.
„Ég veit afskaplega
lítið um leiklist. Ég
bara mjög góður í að
þykjast.“
ROBERT DOWNEY JR
um leiklistahæfileika sína.
„Sannur erfingi er
aldrei kvikindislegur við
nokkurn mann – nema
stúlkuna sem stelur
kærasta þínum.“
PARIS HILTON
um hlutverk erfingja.
folk@frettabladid.is
Jette Jonkers rak áður
tískuverslunina Trilogiu.
Hún ætlar nú að selja eigin
hönnun við Skólavörðustíg,
en hún hefur einnig selt
hönnunina sína í Belleville.
Hönnuðurinn Jette Jonkers opnar
nýja verslun við Skólavörðustíg 17a
í dag þar sem hún mun selja eigin
hönnun. Jette rak áður tískuversl-
unina Trilogiu en hefur nú snúið
sér alfarið að fatahönnun og voru
vörur hennar um tíma fáanlegar í
versluninni Belleville við Lauga-
veg.
„Ég hannaði fyrstu fatalínuna
mína fyrir ári síðan og seldi í Bell-
eville í hálfgerðri tilraunastarf-
semi. Allar flíkurnar seldust sem
var mikil hvatning og í kjölfarið
ákvað ég að halda áfram,“ segir
Jette sem hannar undir merkinu
J E T KORINE. Flíkurnar vinn-
ur Jette úr lífrænum efnum auk
þess sem hún hefur sérhæft sig í
náttúrulegum litunaraðferðum og
notar til þess bæði blóm, ösku úr
Eyjafjallajökli, ryð og önnur nátt-
úruleg efni.
Aðspurð segist Jette hafa ákveð-
ið að opna verslun svo hún gæti
haldið áfram að selja hönnun sína á
viðráðanlegu verði. „Í vetur hann-
aði ég ullarkápur sem ég ákvað
að fara ekki með í verslanir til að
sleppa við álagninguna sem sett er
á flíkur í búðum. Í staðinn seldi ég
kápurnar bara út frá vinnustofunni
og fréttirnar gengu manna á milli.
Þegar ég missti svo vinnuaðstöð-
una fannst mér sniðugt að næsta
vinnurými gæti sameinað bæði
vinnustofu og verslun.“ Jette fann
hentugt húsnæði við Skólavörðustíg
og hefur nú hreiðrað um sig þar.
Hún hyggst vera með opið fyrir
gesti og gangandi á hefðbundnum
verslunartíma yfir hásumarið og í
desember en þess á milli sé fólki
velkomið að banka upp á hvenær
sem er.
Í tilefni af opnun verslunarinnar
verður slegið til veislu milli klukk-
an 17.00 og 19.00 í dag.
sara@frettabladid.is
SAMEINAR VINNUSTOFU OG
BÚÐ Á SKÓLAVÖRÐUSTÍGNUM
Söngkonan Britney Spears átti að
mæta í dómsal í morgun svo hægt
væri að endurmeta stöðu hennar,
en faðir hennar hefur haft umsjón
með henni frá árinu 2008.
Britney fékk taugaáfall árið
2008, líkt og frægt er orðið, og
var flutt með hraði á sjúkrahús þar
sem hún dvaldi um tíma. Hún var
í kjölfarið svipt sjálfræði og hefur
Jamie Spears, faðir hennar, haft
umsjón með öllum hennar málum
síðan þá. „Það er mjög ólíklegt að
dómnum verði hnekkt fyrir lok
sumarsins. Britney er einfaldlega
ekki tilbúin til að sjá um sig sjálf.
Hún á sína góðu daga og sína
slæmu. Hún glímir við mörg erfið
vandamál bæði í sínu persónu-
lega lífi og hvað frægðina og fra-
mann varðar, þess vegna sér faðir
hennar enn um öll hennar mál,“
var haft eftir heimildarmanni. En
stutt er síðan fréttir bárust af því
að Britney hefði lokað sig inni á
hótelherbergi, grátið óstjórnlega
og óskað eftir skærum til að klippa
hár sitt.
Britney ekki betri
Á BATAVEGI? Dómari ákveður í dag
hvort Britney Spears hafi nógu góða
heilsu til að sjá um sig sjálf.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sigurvegari
American Idol,
Lee DeWyze,
ætlar að vera
stoltur af sinni
fyrstu plötu
sem hann gefur
út. Hann segist
hafa frá mörgu
að segja á plöt-
unni. „Það
verður eitt-
hvað af poppi
á henni og líka
rokki og þjóð-
lagatónlist.
Ég er ekki að
reyna að gera
eitthvað sem
enginn hefur
áður gert. Það er búið að gera
allt,“ sagði hinn 24 ára DeWyze.
Hann er eigi að síður ólmur í að
festa sig í sessi í tónlistinni. „Þótt
ég hafi unnið American Idol
finnst mér ég ekki hafa slegið í
gegn. Ég þarf enn þá að sanna
mig,“ sagði hann.
Stoltið er
mikilvægt
LEE DEWYZE Idol-
sigurvegarinn er
að undirbúa sína
fyrstu plötu.