Fréttablaðið - 04.06.2010, Síða 48
32 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR
SÍMI 564 0000
12
12
16
14
16
L
12
L SÍMI 462 3500
12
16
12
L
GET HIM TO THE GREEK kl. 6 - 8 - 10
BROOKLYN´S FINEST kl. 8
ROBIN HOOD kl. 10.20
SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ 3 kl. 6
SÍMI 530 1919
.com/smarabio
12
14
L
16
12
L
GET HIM TO THE GREEK kl. 5.30 - 8 - 10.30
GET HIM TO THE GREEK LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
CENTURION kl. 8 - 10.15
YOUTH IN REVOLT kl. 3.40 - 5.50 - 8
SNABBA CASH kl. 5.30 - 8 - 10.30
SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ 3 kl. 3.50 - 6
ROBIN HOOD kl. 10.10
THE SPY NEXT DOOR kl. 3.40
NÝTT Í BÍÓ!
GET HIM TO THE GREEK kl. 5.30 - 8 - 10.20
YOUTH IN REVOLT kl. 6 - 10.20
OCEANS kl. 5.45
SNABBA CASH kl. 8 - 10.30
ROBIN HOOD kl. 8
THE BACKUP PLAN kl. 5.40 - 8
Ó.H.T - Rás 2
FRÁBÆR GAMANMYND MEÐ MICHAEL CERA
ÚR JUNO OG SUPERBAD
HEIMSFRUMSÝNING
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
1212
12 12
12
14
14
10
10
10
10
L
L
L
L
L
SEX AND THE CITY 2 kl. 4 - 5D - 7 - 8D - 10 - 11D
SEX AND THE CITY 2 kl. 5 - 8 - 11
SEX AND THE CITY 2 MömmuMorgnar kl. 10 fyrir hádegi
PRINCE OF PERSIA kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30
THE LAST SONG kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20
IRON MAN 2 kl. 8 - 10:30
KICK ASS kl. 5:40
AÐ TEMJA DREKANN SINN M/ ísl. Tali kl. 3:40
SEX AND THE CITY 2 kl. 5D - 7D - 8D - 10D - 11D
PRINCE OF PERSIA kl. 5:30 - 8 - 10:30
OFURSTRÁKURINN M/ ísl. Tali kl. 5
SEX AND THE CITY 2 kl. 5 - 8 - 11
THE BACK UP PLAN kl. 6
PRINCE OF PERSIA kl. 8
COPS OUT kl. 10:30
SEX AND THE CITY 2 kl. 5 - 8 - 11
THE LAST SONG kl 5:30
PRINCE OF PERSIA kl 8 - 10:30
- bara lúxus
Sími: 553 2075
GET HIM TO THE GREEK 3.50, 5.50, 8 og 10.10 12
ROBIN HOOD 4, 7 og 10 12
BROOKLYN´S FINEST 8 og 10.30 16
HUGO 3 4 og 6 L
Þ.Þ. -FBL
T.V. -Kvikmyndir.is
Ó.H.T. -Rás 2
S.V. -MBL
Bíó ★★★
Youth in Revolt
Leikstjóri: Miguel Arteta
Aðalhlutverk: Michael Cera,
Portia Doubleday, Jean Smart,
Zach Galifianakis
Nick Twisp er ósköp venjulegur
sextán ára unglingur sem hefur,
eins og eðlilegt er, þungar áhyggj-
ur af því að hann muni deyja
hreinn sveinn. Hann hefur fátt
til þess að bera til þess að ganga í
augun á hinu kyninu og gerir sér
því litlar vonir um að losna við
sveindóminn. Tilvera hans er í
ofanálag frekar dapurleg þar sem
móðir hans er dæmigerður fulltrúi
hvíta ruslsins í bandarísku samfé-
lagi og leggur lag sitt við grjót-
heimskan og ómerkilegan vörubíl-
stjóra sem er síst til þess fallinn
að leiðbeina unglingnum um refil-
stigu lífsins.
Þegar Nick kolfellur fyrir hinni
bráðhuggulegu Sheeni Saunders
æsast leikar heldur betur. Stúlk-
an er ljóðelsk og pæld en illu
heilli með sjúklegan áhuga á öllu
því sem franskt er og þá ekki síst
svölum og slæmum strákum sem
vaða óstöðvandi áfram innblásn-
ir heilögum anda Jean Paul Belm-
ondo.
Í örvæntingu sinni og þrá eftir
að komast milli læra Sheeni býr
Nick sér til hliðarsjálfið Francois
Dillinger, kaldan karl sem tjáir sig
aldrei án þess að sveifla logandi
sígarettu og er óhræddur við að
taka áhættu. Til þess að geta verið
í nálægð við stóru ástina og koma
um leið í veg fyrir að hún leggist
með vöðvastæltu og snoppufríðu
ljóðskáldi þarf Nick að búa svo
um hnútana að móðir hans hendi
honum að heiman og sendi hann til
föður síns sem er orðinn nágranni
Sheeni.
Þetta gengur allt eftir þegar
Nick, dyggilega studdur af Fran-
cois, veldur milljónatjóni með því
að sprengja kaffihús með logandi
bíl og hjólhýsi.
Hryðjuverkið dugir honum þó
ekki til að vinna ástir Sheeni og því
tekur við ansi litskrúðug barátta
þar sem kleyfhuginn Nick lætur
einskis ófreistað þegar syrtir í
álinn og Francois tekur völdin.
Youth in Revolt er sniðug og
fyndin mynd en samhengislaus og
reikul þar sem vandræðalegum og
kómískum uppákomum er slengt
saman án mikillar fyrirhafnar.
Sjálfsagt hefur ekki þótt ástæða til
að þaulhugsa söguna þar sem aug-
ljóst er að hinum bráðskemmtilega,
unga leikara Michael Cera er ætlað
að bera myndina uppi. Og það gerir
hann ágætlega blessaður og fær að
sýna hvað í honum býr þegar hann
leikur Dillinger á móti sjálfum sér
í hlutverki Nicks. Þá er samleik-
ur Cera og Portia Double day stór-
fínn og stúlkan sú kemur sterk til
leiks. Þau njóta svo stuðnings frá-
bærra aukaleikara á borð við Steve
Buscemi, Zach Galifianakis, Ray
Liotta, Fred Willard, Jean Smart
að ógleymdum hinum gamalreynda
meistara M. Emmet Walsh.
Þetta lið klikkar ekki og gerir
sitt til að lyfta stemningunni í ein-
faldri og krúttlegri unglingaást-
arsögu sem Cera ber nokkuð létti-
lega á herðum sér.
Þórarinn Þórarinsson
Niðurstaða: Einföld, sæt og sam-
hengislaus unglingaástarsaga sem
fínir leikarar, með Michael Cera
fremstan í flokki, lyfta langt yfir mörk
meðalmennskunnar.
Geðklofin unglingauppreisn
BER MYNDINA Á HERÐUM SÉR Michael Cera fær að sýna hvað í sér býr þegar hann
leikur Dillinger á móti sjálfum sér í hlutverki Nicks.
Wesley Snipes mun leika goðsögn-
ina og guðföður sálartónlistarinn-
ar, James Brown, í væntanlegri
kvikmynd byggðri á ævi hans.
Leikstjóri verður Spike Lee sem
hefur áður unnið með Snipes.
„Við erum að leita að fjármagni.
Við hittum dætur hans og fengum
samþykki þeirra,“ sagði
Snipes. „Ég býst við að
þetta verkefni taki um
það bil ár. Rétt áður en
heimurinn ferst árið
2012 sýni ég ykkur
James Brown.“
Hinn 47 ára
Snipes segir
að Michael
Jackson og
James Brown séu þær manneskj-
ur sem hafi haft mest áhrif á hann
í uppvextinum. „Við hlustuðum á
Michael Jackson og James Brown
á hverjum einasta degi heima hjá
okkur. Ég hlusta enn á þá á hverj-
um degi með dætrum mínum.“
Dauði Jacksons í fyrra hafði
mikil áhrif á leikarann,
eins og svo marga aðra.
„Ég vona bara að skap-
arinn sendi okkur ein-
hvern tímann annan
engil í líkingu við
hann. Ef ekki, þá
höfum við lík-
lega misst meira
en bara mann-
eskju.“
Snipes leikur Brown
WESLEY
SNIPES Snipes
leikur tónlist-
armanninn
James Brown í
nýrri mynd um
ævi hans.
JAMES BROWN
Brown veitti
Wesley Snipes
mikinn inn-
blástur.
Talið er að Jennifer Aniston hafi
samþykkt að leika í hryllings-
myndinni Scream 4 sem er í und-
irbúningi. Svo virðist sem Court-
eney Cox úr Vina-þáttunum hafi
sett þrýsting á vinkonu sína um að
taka þátt. Cox hefur leikið í hinum
þremur myndunum sem Wes Cra-
ven hefur leikstýrt við miklar vin-
sældir. Neve Campell mun end-
urtaka hlutverk sitt sem Sidney
Prescott og Emma Roberts,
frænka Juliu, mun sömuleiðis fara
með eitt aðalhlutverkanna.
Aniston í
Scream 4
JENNIFER ANISTON Aniston er sögð hafa
samþykkt að leika í hryllingsmyndinni
Scream 4.