Fréttablaðið - 09.06.2010, Side 4
4 9. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
DÓMSMÁL Mörg þúsund ágreiningsmál um kröf-
ur í þrotabú föllnu bankanna gætu verið á leið
fyrir dóm á næstu misserum. Formenn skila-
nefnda bankanna eru sammála um að útilokað
sé með öllu að íslenska dómskerfið valdi álag-
inu. Til samanburðar voru í fyrra höfðuð sam-
tals 124 ágreiningsmál vegna gjaldþrotaskipta á
landinu öllu.
Alls eru um 50 þúsund kröfur gerðar í þrota-
bú stóru bankanna þriggja: um 29.000 í bú
Kaupþings, ríflega 12.000 í bú Landsbankans og
um 8.700 í bú Glitnis. Á kröfuhafafundum hefur
svo til öllum kröfum verið mótmælt og sumir
kröfuhafar hafa jafnvel tilkynnt mótmæli við
allar framtíðarákvarðanir. Ef ágreiningurinn
verður ekki leystur með öðrum hætti kemur
að endingu til kasta dómara að ákvarða um
kröfurnar.
Formenn skilanefnda bankanna eru misbjart-
sýnir á það hvernig til muni takast að jafna slík-
an ágreining. Steinar Þór Guðgeirsson, formað-
ur skilanefndar Kaupþings, telur líklegt að nær
allar kröfur í bú bankans, 29 þúsund talsins,
muni að óbreyttu enda fyrir dómstólum. Lík-
lega muni einhverjir kröfuhafanna höfða málin
í sameiningu, en þó stefni í að ágreiningsmálin
vegna Kaupþings eins muni skipta þúsundum.
„Þetta stefnir í mikið kraðak,“ segir
Lárentsínus Kristjánsson, formaður skila-
nefndar Landsbankans. Hann vonast til þess að
stór hluti kröfuhafa muni hætta við dómsmál
þegar niðurstöður liggja fyrir í sambærilegum
málum. „Ég trúi því ekki að menn fari að reka
dómsmál út af hverri einustu kröfu í búið, en
maður veit svo sem aldrei,“ segir hann.
Þar að auki segir Lárentsínus að ýmsir kröfu-
hafar hafi hag af því að skiptin dragist á lang-
inn, til dæmis þeir sem hafa keypt ódýrar
almennar kröfur í von um að eignir hækki í
verði og dugi fyrir meiru en forgangskröfum.
Þeir kröfuhafar kynnu að vilja tefja skiptin með
stanslausum málaferlum.
Árni Tómasson, formaður skilanefndar
Glitnis, segir að þar á bæ vinni menn hörðum
Þúsundir ágreiningsmála á
leið fyrir dóm næstu misseri
Nær öllum kröfum í bú gömlu bankanna er mótmælt og stór hluti gæti endað fyrir dómi. Kröfuhafar eru
réttháir á Íslandi og geta farið með ákvörðun um annarra kröfur fyrir dóm. Sumir hafa hag af því að tefja.
Ráðuneytisstjórum forsætis-, fjármála- og dóms-
málaráðuneytisins hefur í sameiningu verið falið
að meta fjárþörf dómstólanna vegna hins aukna
álags, að sögn Rögnu Árnadóttur dómsmálaráð-
herra. „Það verður að bregðast við. Dómskerfið
verður auðvitað að ráða við þennan fjölda. Það
er engin spurning,“ segir Ragna.
Héraðsdómurum hefur þegar verið fjölgað um
fimm í samræmi við óskir Dómstólaráðs. Nýverið
sendu Hæstiréttur og Dómstólaráð ný erindi til
stjórnvalda eftir hafa endurmetið stöðuna. Hæsti-
réttur telur þrjá nýja dómara þurfa við réttinn
og Dómstólaráð segir að dómararnir fimm sem
bætt hefur verið við muni hvergi nærri duga til
að mæta því byltingarkennda álagi sem verður á
Héraðsdómi Reykjavíkur á komandi árum.
Ragna segir næsta skref að funda með
fulltrúum dómstólanna til að meta fjárþörfina
betur. Síðan þurfi að koma til lagabreytingar og
heimildir frá fjárveitingarvaldinu svo ekki megi
vænta aukinna fjárframlaga til dómstóla fyrr en í
haust. Hún bendir einnig á að nýtt millidómstig
gæti létt álagi af Hæstarétti og að málafjöldinn
einn segi ekki alla söguna, enda séu málin afar
misjöfn að eðli og umfangi.
Verið að meta fjárþörfina
UMSETINN RÉTTUR Mikið mun mæða á Héraðsdómi
Reykjavíkur næstu árin. Öll ágreiningsmál vegna krafna
í þrotabú gömlu bankanna verða tekin fyrir þar.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/ G
VA
höndum að því að koma í veg fyrir óþörf dóms-
mál og tilheyrandi tafir. Til skoðunar sé meðal
annars að fá erlenda sérfræðinga sem allir geti
sæst á til að ákvarða um fjárhæðir.
Þótt Árni sé ekki úrkula vonar um að hægt
verði að leysa stóran hluta málanna með þeim
hætti segir hann það þó að endingu ákvörðun
kröfuhafanna sjálfra hvort mál sé höfðað.
Þar skipti miklu máli hve ríkur réttur kröfu-
hafa sé á Íslandi. Ólíkt mörgum öðrum löndum
geti kröfuhafar á Íslandi til dæmis farið með
ákvörðun um annarra manna kröfur í búið fyrir
dóm. Það geti tafið ferlið mjög.
stigur@frettabladid.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
31°
29°
18°
29°
31°
19°
19°
21°
20°
25°
17°
33°
16°
18°
17°
15°
Á MORGUN
3-8 m/s.
FÖSTUDAGUR
Hæg norðvestlæg
eða breytileg átt.
12
12
12
12
13
13
11
14
16
18
8
6
5
7
7
6
3
3
2
8
4
6
10
12
12 10
14
16
10
11
11
13
VÍÐA VÆTA Á
MORGUN Það eru
vænlegar horfur á
rigningu sunnan-
lands á morgun og
reyndar einnig öðr-
um landshlutum,
en á föstudag léttir
til og má víða bú-
ast við sumarblíðu
en líklega þykknar
upp á ný vestan til
um kvöldið.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
IÐNAÐUR Steypufyrirtækið Möl
og sandur verður endurvakið
á Akureyri og mun starfsemi
fyrirtækisins hefjast formlega
um næstu mánaðamót, að því
er fréttamiðillinn Vikudagur
greinir frá.
Möl og sandur var tekið inn í
starfsemi BM Vallár árið 2003,
en mun núna starfa undir gamla
nafninu á ný eftir gjaldþrot BM
Vallár.
Ekki er búist við að þeir sautj-
án sem misstu vinnuna við
gjaldþrot BM Vallár verði ráðn-
ir til starfa. Reiknað er með að
starfsmenn fyrirtæksins verði
um fimm til sex til þess að byrja
með. - shá
Fyrirtæki endurreist:
Möl og sandur
tekur til starfa
HEILBRIGÐISMÁL Sóttvarnalæknir
hefur skrifað læknum bréf þar
sem mælst er til þess að sýni
séu tekin úr fólki sem er með
einkenni streptókokkasýkingar
og hefur verið í beinum tengsl-
um við hross sem veikst hafa af
hrossapestinni.
Haraldur Briem sóttvarna-
læknir segir enga tilkynningu
hafa borist til landlæknisemb-
ættisins þess efnis að hrossapest-
in hafi smitast í menn. „Þetta
getur gerst en er áreiðanlega ekki
algengt,“ segir hann. - jss
Sóttvarnalæknir:
Sýnataka vegna
hestapestar
MENNTAMÁL Lækjarskóli í Hafnar-
firði fékk Íslensku menntaverð-
launin, í flokki skóla sem sinnt
hafa vel nýsköpun eða farsælu
samhengi í fræðslustarfi, sem
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, afhenti við hátíðlega
athöfn í Mýrarhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi í gær.
Ragnheiður Hermannsdóttir
í Háteigsskóla hlaut verðlaun í
flokki kennara sem skilað hafa
merku ævistarfi eða á annan hátt
skarað fram úr, og í flokki ungra
kennara sem í upphafi kennslu-
ferils hafa sýnt hæfileika og lagt
alúð við starf sitt hlaut Linda
Heiðarsdóttir kennari við Laugar-
lækjarskóla verðlaun.
Þá hlaut Iðunn Steinsdóttir rit-
höfundur verðlaun í flokki höf-
unda námsefnis sem stuðlað hafa
að nýjungum í skólastarfi.
Íslensku menntaverðlaunin:
Lækjarskóli
verðlaunaður
fyrir gott starf
STJÓRNMÁL Önnur umræða um
frumvarp ríksistjórnarinnar um
ráðgefandi stjórnlagaþing fór fram
á Alþingi í gærkvöldi.
Samkvæmt frumvarpinu á stjórn-
lagaþing að leggja fyrir Alþingi til-
lögur að breytingum á stjórnarskrá
Íslands. Þjóðinni er ætlað að kjósa
25 til 31 fulltrúa á stjórnlagaþing.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði við
umræðurnar á þinginu í gærkvöldi
að samkvæmt frumvarpinu myndi
stjórnlagaþing á endanum verða
fulltrúaþing – alveg eins og Alþingi
væri fulltrúaþing. Löggjafarvaldið
væri hjá Alþingi og það væri Alþing-
is að endurskoða ákvæði stjórn-
arskrárinnar.
Tillaga sjálfstæð-
ismanna væri sú
að „við kæmum
okkar saman að
kjósa hlutfalls-
kosningu tíu
manna nefnd
sérfræðinga
sem færi yfir þá
þætti stjórnar-
skrárinnar sem
við vildum taka til endurskoðunar,“
sagði Bjarni.
Vigdís Hauksdóttir úr Fram-
sóknarflokki gagnrýndi ríkis-
stjórnina fyrir að efna til minnst
500 milljóna króna útgjalda til að
fjármagna ellefu mánaða stjórn-
lagaþing á sama tíma og heimilin í
landinu berðust í bökkum. Ákvæði
í frumvarpinu um kynjajöfnun full-
trúa á stjórnlagaþinginu bæri vott
um ofríki. „Lýðræði af þessu tagi
er handstýrt af stjórnvöldum og er
ekki það sem fólk vill eftir hrunið,“
sagði Vigdís.
Umræðum um málið var ekki
lokið þegar Fréttablaðið fór í
prentun í gær. - gar
Önnur umræða um frumvarp forsætisráðherra um stjórnlagaþing á Alþingi:
Kostnaður og fyrirkomulag gagnrýnt
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 08.06.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,0161
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
130,79 131,41
188,46 189,38
155,85 156,73
20,95 21,072
19,494 19,608
16,138 16,232
1,429 1,4374
189,79 190,93
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Taktu bollur með í ferðalagið!
www.ora.is