Fréttablaðið - 09.06.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 09.06.2010, Blaðsíða 10
10 9. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR E N N E M M / S IA / N M 38 23 8 Staðgreiðsluverð kr. 26.250* Ástæðan er einangrun á hraðastýringu og stór poki sem getur tekið á móti óvenju miklu magni af örsmáum ögnum eins og t.d. ösku. Einnig er hægt að fá ofnæmissíu í vélina. Parketbursti að andvirði kr. 9.320 fylgir frítt með. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Öskudagar í Eirvík Þú sparar kr. 15.882 Fullt verð kr. 32.812 *Gildir á meðan birgðir endast. Nýja S2120 ryksugan frá Miele hentar betur í öskuna en flestar aðrar ryksugur Auglýsingasími Allt sem þú þarft… VIÐSKIPTI Rekstrarhagnaður bresku matvöruverslunarinnar Iceland Foods nam 135,4 milljónum punda, jafnvirði 25,6 milljarða króna, í fyrra. Þetta er nítján prósenta aukning milli ára og hefur hagn- aðurinn aldrei verið meiri. Iceland Foods selur ódýra frysta matvöru og hún hefur átt upp á pallborðið hjá Bretum í kreppunni. Baugur átti stóran hluta Iceland Foods ásamt íslenskum fjárfestum, svo sem Fons, félagi Pálma Har- aldssonar. Skilanefnd Landsbank- ans á nú fjörutíu prósent og viðbúið að hún eignist 29 prósent fljótlega. Skilanefnd Glitnis á tíu prósenta hlut. Malcolm Walker, stofnandi og forstjóri fyrirtækisins, og stjórn- endur eiga afganginn. Iceland Foods skilaði fyrri eig- endum gríðarlegum arði. Árið 2007 fengu þeir 39 milljarða króna, það var stærsta arðgreiðsla Íslands- sögunnar. Arður var ekki greiddur vegna afkomunnar í fyrra en allar áhvíl- andi skuldir voru greiddar upp. Walker sagði í samtali við breska fjölmiðla í gær vonast til að arður yrði greiddur fljótlega. Í samtali við netmiðilinn This is Money í gær taldi hann verslunina verð- mætustu eign Íslendinga. - jab Breska frystivörukeðjan Iceland Foods skilar methagnaði í kreppunni: Gætu átt von á milljörðum KAMPAKÁTUR FORSTJÓRI Stofnandi og forstjóri bresku verslunarinnar Iceland Foods er ánægður með afkomuna. BRUSSEL Fjármálaráðherrar Evr- ópusambandsins hafa komið sér saman um nýtt fyrirkomulag, sem á að tryggja að fjárlög einstakra ríkja á evrusvæðinu ógni ekki fjármálastöðugleika alls evru- svæðisins. Eitt helsta nýmælið er að hvert ríki þarf á hverju vori að kynna megindrög fjárlaga næsta árs fyrir bæði framkvæmdastjórn sambandsins og ráði aðildarríkj- anna, sem fá þá öll tækifæri til að gagnrýna fjárlög hvers annars áður en endanleg útgáfa þeirra er samþykkt heima fyrir í hverju ríki að hausti. „Ríkisstjórn sem kynnir fjár- lagaáætlun með miklum halla þarf þá að réttlæta það gagnvart samherjum sínum, í hópi fjármála- ráðherranna,“ segir Herman van Rompuy, forseti ráðsins, í yfirlýs- ingu sem hann sendi frá sér að loknum fundi fjármálaráðherr- anna á mánudagskvöld. Ráðherrarnir samþykktu einnig að tekið verði fyrr í taumana þegar fjármál einstakra ríkja stefna í óefni, en ekki látið duga, eins og hingað til hefur tíðkast, að grípa til aðgerða þegar viðmiðunarmörkin hafa þegar verið rofin. Áður en nýja fyrirkomulagið tekur gildi þarf leiðtogaráð sam- bandsins að veita samþykki sitt. Næsti fundur leiðtogaráðsins verð- ur haldinn 17. júní. - gb Evrópusambandið samþykkir gagnkvæmt eftirlit með fjárlögum evruríkjanna: Drög fjárlaga kynnt fyrirfram SAMGÖNGUR Vegatollar verða inn- heimtir til að kosta tvöföldun Suð- urlandsvegar, Vesturlandsveg- ar og Reykjanesbrautar á næstu fjórum árum verði frumvarp sem samgönguráðherra mælti fyrir á Alþingi í fyrrakvöld að lögum. Lífeyrissjóðirnir munu lána fyrir framkvæmdum sem nema um sex til sjö milljörðum króna á ári næstu fjögur ár. Stofnað verð- ur opinbert hlutafélag til að halda utan um framkvæmdirnar, sem á að ljúka 2014. Þessi aðferð er nauðsynleg þar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) fellst ekki á að lán vegna skuldbindinga við þessar fram- kvæmdir verði færðar í bækur ríkissjóðs, sagði Ásbjörn Óttars- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, við umræð- urnar. Fyrsta umræða um málið fór fram á ellefta tíman- um á mánudags- kvöld. Í fram- sögu Kristjáns L. Möller sam- gönguráðherra kom fram að í ár væri búið að ákveða vegaframkvæmdir fyrir 11,5 milljarða króna en aðeins fyrir 1,5 milljarða á næsta ári og 500 milljónir árið 2012. Með stofnun opinbers hlutafélags, sem tæki til starfa í október í haust, mætti auka framkvæmdir og örva atvinnulífið. Þrír þingmenn Sjálfstæðis- flokks og einn frá Samfylkingu ræddu málið við ráðherrann. Einar K. Guðfinnsson, Sjálfstæð- isflokki, taldi að það hefðu ein- hvern tímann þótt mikil pólitísk tíðindi að ríkisstjórn með aðild VG, legði fyrir Alþingi frum- varp um að innheimta veggjöld af almenningi. Anna Margrét Guðjónsdótt- ir, Samfylkingu, og Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki, gerðu athugasemdir við að reisa ætti „tollmúra umhverfis höfuð- borgina en láta aðra landshluta njóta góðs af því að framkvæmd- ir þar eru kostaðar af ríkissjóði,“ eins og Anna Margrét komst að orði. Ragnheiður Elín nefndi að kanna ætti möguleika á að inn- heimta jafnframt veggjöld í Héð- insfjarðargöngum og Bolungar- víkurgöngum. Framkvæmdum þar er að ljúka á kostnað ríkis- sjóðs og án ráðgerðra veggjalda. „Í mínum huga er það grund- vallaratriði að gæta jafnræð- is í þessum efnum,“ sagði Anna Margrét, sem þó lýsti stuðningi við frumvarp flokksbróður síns, samgönguráðherrans: „Aðstæð- ur eru nú með með þeim hætti að við þurfum að styðjast við bjarg- ráð sem eru ekki endilega efst á óskalistanum.“ peturg@frettabladid.is AGS bannar ríkinu að taka lán í vegagerð Stofnun opinbers hlutafélags sem tekur lán frá lífeyrissjóðum og innheimtir síðan vegtolla er eina leiðin til að ráðast í vegaframkvæmdir á næstu árum. Rætt um „tollmúra umhverfis höfuðborgarsvæðið“ á Alþingi í fyrrakvöld. SUÐURLANDSVEGUR Ríkið mun leggja fram 20 milljónir í hlutafélag sem á að stofna 1. október og síðan á að ráðast í framkvæmdir fyrir 6-7 milljarða á ári næstu ár með lánsfé frá lífeyrissjóðunum. Önnur leið er ekki fær vegna skilyrða Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, segir þingmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KRISTJÁN L. MÖLLER ÁKVÖRÐUN KYNNT Olli Rehn, fram- kvæmdastjóri efnahags- og peninga- mála, ásamt Elenu Salgado, fjármála- ráðherra Spánar, og Michel Barnier, framkvæmdastjóra innri markaðs og þjónustu. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.