Fréttablaðið - 09.06.2010, Side 8
8 9. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
ALÞINGI Ríkisstjórnin er að tryggja
að allur herkostnaður við útrásina
og efnahagshrunið lendi á íslensk-
um almenningi, sagði Eygló Harð-
ardóttir, Framsóknarflokki, í
umræðum um skuldavanda heim-
ilanna á Alþingi í gær: „Þetta er
ríkisstjórn alþjóðlegs auðmagns,
ekki norrænnar velferðar.“
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis-
ráðherra, var annarrar skoðunar
og sagði aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar vega upp hrun heils efnahags-
kerfis. Ágætur árangur hafi náðst
á alla mælikvarða, þótt betur megi
ef duga skuli. Í janúar 2008 hefðu
20 prósent íslenskra heimila átt í
vanda, nú sé hlutfallið 23 prósent.
Í stað þess að hrunið hefði fjölg-
að fjölskyldum í fjárhagserfið-
leikum um 9.000 sé fjölgunin lítil
sem engin. „Frá hruninu hefur
verið gripið til fimmtíu mismun-
andi úrræða,“ sagði Jóhanna og að
ríkið hefði varið tugum milljarða í
þágu skuldugra heimila.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknar, sagði
að í tölum Jóhönnu væri ekki horft
til kostnaðar heimilanna við trygg-
ingar, fasteignagjöld, námslán,
síma, skólagöngu barna og margt
fleira. Um helmingur fjölskyldna
sé í vanda. Þörf fyrir almenna
skuldaleiðréttingu blasi við og
svigrúm sé til slíkra aðgerða.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
Samfylkingu, sagði að almennar
leiðréttingar væru freistandi en
myndu kosta Íbúðalánasjóð, Lána-
sjóð íslenskra námsmanna og tvo
stærstu lífeyrissjóði landsins 150
milljarða króna. Það væri of mikið
og hefði þýtt hærri skatta, minni
samfélagsþjónustu og lægri líf-
eyri fyrir íslensk heimili. Vanskil
séu nú ekki meiri en voru á árinu
2004.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði þá
framtíð blasa við mörgu ungu fólki
að tekjur dygðu rétt til að greiða
afborganir af íbúðaláni sem er
hærra en verðmæti fasteignar-
innar. Nú þyrfti að hætta að ríf-
ast um hver ætti bestu hugmynd-
ina og grípa til aðgerða.
„Tregða til að taka á skulda-
vandanum dýpkar fjármálakrepp-
una,“ sagði Lilja Mósesdóttir, VG.
Stór hluti heimila sjái ekki aðra
leið en gjaldþrot. Jóhanna Sigurð-
ardóttir gerði athugasemdir við
þau orð Lilju að boðaðar aðgerð-
ir um sértæka skuldaaðlögun,
umboðsmann skuldara og bílalán
hefðu lítið að segja. Jóhanna sagði
ótrúlegt að heyra stjórnarþing-
mann tala með þeim hætti.
peturg@frettabladid.is
Almenningur ber
allan herkostnaðinn
Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi náð að vega upp hrun efnahags-
kerfisins. Fjöldi heimila í vanda sé svipaður og fyrir hrun. Allur herkostnaður
vegna útrásar og hrunsins lendir á almenningi, segir Eygló Harðardóttir.
SEGIR ÁRANGUR HAFA NÁÐST „Hér var ekki forsætisráðherra að vekja von í brjóstum
þeirra þúsunda Íslendinga sem eiga í miklum skuldavanda,“ sagði Unnur Brá Kon-
ráðsdóttir, Sjálfstæðisflokki, að lokinni ræðu forsætisráðherra á Alþingi í gær. Unnur
Brá sagðist sakna framtíðarsýnar frá forsætisráðherra um hvernig heimilin eigi að
byggja sig upp eftir hrunið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ósykrað
Hollur barnamatur fyrir 6 mánaða og eldri
www.barnamatur.is
Fjölbreytt og gott
veganesti fyrir lífið
HJÓL FYR
IR ALLA F
JÖLSKYLD
UNA
TÖKUM N
OTUÐ VE
L MEÐ
FARIN HJÓ
L UPPÍ NÝ
SKIPTIMA
RKAÐUR
MEÐ NOTU
Ð REIÐHJÓ
L
20% AFSL
ÁTTUR AF
AUKABÚN
AÐI Á HJÓ
L
DÝRALÍF Hnúfubakskýr hittast
árlega í St. Lawrence flóa undan
Kanada til að synda um og leita
að fæðu saman. Þetta kemur fram
í nýrri rannsókn sem birt var í
Journal of Behavioral Ecology
and Sociobiology. Lengi hefur
verið vitað að tannhvalir svo sem
búrhvalir hafa samband sín í milli
en hingað til hefur verið talið að
skíðishvalir, sem eru stærri, væru
ekki eins félagslyndir.
Hnúfubakarnir verja stærstum
hluta ársins í að ferðast um í leit að
maka en þegar sumarið hefst hafa
kýrnar einhvern veginn hver uppi
á annarri og verja síðan árstíðinni
saman í leit að fæðu. Lengsta vin-
áttusambandið sem rannsóknar-
teymið varð vitni að varði í sex ár
en vinatengslin voru alltaf á milli
hnúfubakskúa á svipuðum aldri.
Dr. Christian Ramp leiðir rann-
sóknarteymið en í samtali við
BBC sagði hann að niðurstöðurn-
ar hefðu komið sér verulega á
óvart. Hann telur líklegt að kýrn-
ar myndi þessi tengsl til að auka
skilvirkni fæðuöflunar en rann-
sóknin bendir til þess að þær kýr
sem mynda flest og lengst tengsl
eignist flesta kálfa. - mþl
Ný rannsókn um hegðun skíðishvala:
Hnúfubakar mynda vinatengsl
EISTLAND Ákveðið hefur verið að
Eistland taki upp evruna í byrj-
un næsta árs, þrátt fyrir vaxandi
áhyggjur af framtíð evrunnar.
Fjármálaráðherrar Evrópusam-
bandsins samþykktu þetta á
fundi sínum í Brussel.
„Auðvitað höfum við áhyggj-
ur,“ segir Kalev Vapper, talsmað-
ur eistnesku stjórnarinnar, þegar
Fréttablaðið náði tali af honum í
gær. „En við gáfum loforð okkar
um að ganga í evrubandalag-
ið, og getum ekki gengið á bak
þeirra orða núna. Heiðarlegt fólk
stendur við orð sín.“
Vapper segir
Eista eigi að
síður sannfærða
um að evran
ráði við erfið-
leikana sem nú
steðja að, sem
me ð a l a n n -
ars eru vegna
ástandsins í
Grikklandi.
Eistland
fékk aðild að
Evrópusambandinu árið 2004,
en hefur verið með mynt sína
tengda evrunni allar götur síðan
1999. Aðildinni fylgir að evran
verður mynt landsins um leið og
öllum skilyrðum evrusvæðisins
um ríkisskuldir, fjárlagahalla,
verðbólgu og fleira er fullnægt.
Upphaflega gerði Eistland sér
vonir um að taka upp evruna árið
2007, en það hefur dregist vegna
hárrar verðbólgu í Eistlandi.
Samdráttur í Eistlandi í kjöl-
far heimskreppunnar 2008 varð
hins vegar til þess að mjög dró
úr verðbólgu í landinu, svo hún
er nú komin vel niður fyrir við-
miðunarmörk evrusvæðisins.
- gb
Eistar taka upp evru um næstu áramót þrátt fyrir áhyggjur af stöðu evrunnar:
Ganga ekki á bak orða sinna
TOOMAS HENDRIK
ILVES
FÉLAGSVERUR Ekki er vitað hvernig hnúfubakarnir finna hver annan.
SAMFÉLAGSMÁL Rúmlega fjögur af
hverjum fimm börnum lutu sam-
eiginlegri forsjá foreldra sinna
á síðasta ári. Þetta kemur fram í
nýjum tölum frá Hagstofunni.
Árið 2009 var forsjá barna eftir
skilnað þannig fyrir komið að 487
börn nutu sameiginlegrar forsjár
foreldra sinna, 74 börn nutu ein-
ungis forsjár móður en níu börn
einungis forsjár föður.
Frá árinu 2002 hefur sameigin-
leg forsjá verið algengust hér á
landi eftir skilnað foreldra en það
varð fyrst mögulegt árið 1992. - mþl
Nýjar tölur um skilnaðarbörn:
Flest í sameig-
inlegri forsjá
1 Vilhjálmur Þór Davíðsson er
nýkrýndur Hr. Hinsegin. Hvað-
an er hann?
2 Hvað hefur KR sigrað í mörg-
um leikjum í Pepsi-deild karla?
3 Þingmenn hvaða stjórnmála-
flokks mæta best á nefndar-
fundi?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
VEISTU SVARIÐ?