Fréttablaðið - 09.06.2010, Side 36
20 9. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég varð vitni að sorglegum atburði ekki alls fyrir löngu. Hann minnti mig á að
stundum gefur mannlífið stjórnmálum og
viðskiptalífi ekkert eftir hvað vitleysisgang
varðar. Það virðist vera sama á hvaða vett-
vangi mannveran þvælist, ef hún veldur
skaða er eins og hún geti ekki hætt fyrr en
sá sem síst skyldi er orðinn skaddaður líka.
ÞANNIG vildi til að ég var að koma af
fjöllum. Ég var ekkert utan við mig,
heldur var ég að koma frá skrúðgöngu
í spænska þorpinu Zújar. Á þorpshátíð-
inni er nefnilega haldið fylktu liði upp
á Jabalcon-fjall með líkneski mikið.
Upp á fjallstoppi er etið og drukkið
þannig að ég var hýr í bragði á röltinu
niður. Í hlíðinni liggur hverfi eitt sem
heitir Ódýru húsin. Þar eru götur afar
þröngar.
ÞEGAR ég er þar á vappi kemur
maður akandi, en einnig var
kona hans og 12 ára dóttir í
bílnum. Í þröngum strætunum
tókst honum ekki betur til
en svo að hann rakst utan
í kyrrstæðan bíl. Var
það afar óheppilegt þar
sem mannmergð var á
götum úti og allir sáu
óhappið.
STÍGUR ökumaður því út úr bílnum eins
og kúreki í vígahug og æpir: „Hver legg-
ur eiginlega bílnum sínum svona eins og
hálfviti?“ Hafði hann ekki heppnina með
sér því sá sem það hafði gert var beljaki
mikill með kveikiþráð í styttra lagi. Steig
sá sterki fram, horfði fyrst á rispuna á
bílnum sínum en æðir síðan að ökumanni.
Æptu þeir nokkra stund með nefin framan
í hvor öðrum.
SVO heyri ég kvenmannsóp en þá hafði
beljakinn fengið nóg af þessum málatil-
búnaði og látið hnefa tala. Hófust þá slags-
mál nokkur en eiginkona bílstjórans sem
og hágrátandi dóttir hans reyndu að hafa
sinn mann af vettvangi. Undir lokin tókst
það en þá voru menn orðnir móðir og
blóðugir.
EN HVAÐ er svona sorglegt við þennan
atburð? Ég veit ekki betur en báðir þessir
menn séu farnir að gera úr honum hina
mestu hetjusögu þó töluvert skáldaleyfi
þurfi til. Búið er að skola blóðið af götunni,
sárin gróin og eiginkona ökumannsins
örugglega hætt að skammast yfir þessu.
Það er meira að segja búið að gera við
rispuna á bíl beljakans.
HINS vegar veit enginn hvenær rispurnar
á sálartetri stúlkunnar mást út.
Sorglegur atburður
Maraþon
bygg ingaverktaka
Endalína
Sérðu einhvern? Það
er næstum komið
myrkur!
Náum við því að
horfa á myndina í
kvöld, eða hvað?
Sýndu smá
þolinmæði
kona góð, ég
þarf bara að ná
plastinu af!
Ég er með
lengri neglur
en þú, ég
skal bara gera
þetta!
Ég get
þetta!
Í
alvörunni,
ég get...
Ég get
þetta!
Hvað er
nú þetta? Þetta er hjarta-
mælitæki.
Ég spenni þessa teygju
undan um bringuna
á mér og á meðan ég
æfi mig sendir teygjan
merki í úrið hérna.
Þá veit ég nákvæmlega
hvenær ég næ hinni
fullkomnu brennslu.
Miðað við ástandið á
þér núna þá eru sirka
þrjátíu ár síðan þú
gerðir þetta síðast.
Solla, getur þú
litið eftir litlu syst-
ur á meðan ég fer
og næ í póstinn?
Hvað fæ ég í
staðinn?
Hefurðu tekið eftir
því að hlutir sem eru
sagðir í sjónvarp-
inu þykja ekki jafn
fyndnir heimafyrir?
Ég hef tekið
eftir því hjá
þér.
*Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum 11. júní.
Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum, Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 149 kr/SMS-ið.
Þú færð 5.mín til að svara spurningu. Leik líkur 11.juni 2010