Fréttablaðið - 09.06.2010, Page 38
22 9. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Tónlistarmaðurinn KK spilar á
heimssýningunni í Sjanghæ í Kína
síðar í mánuðinum. Með honum
í för verður hljómsveit skip-
uð þeim Eyþóri Gunnarssyni,
Ásgeiri Óskarssyni, Guðmundi
Péturssyni og Sölva Kristjáns-
syni, syni KK.
„Það er mjög gaman að koma
þangað,“ segir KK sem hefur
tvívegis áður komið til Sjanghæ.
Þetta er jafnframt fjórða ferða-
lagið hans til Kína. Síðast kom
hann til Sjanghæ fyrir fimm árum
með Magga Eiríks og spiluðu
þeir á menningarhátíð í borginni
við mjög góðar undirtektir. „Við
urðum frægir í smátíma í Sjang-
hæ,“ segir hann og hlær.
KK og félagar fljúga út til Lond-
on á föstudaginn og fara þaðan til
Kína. „Þetta verða alla vega tvenn-
ir tónleikar. Við spilum 17. júní
inni á svæðinu og síðan verða litlir
tónleikar fyrir Íslendinga í litlum
klúbbi.“ Heimkoma er síðan áætluð
22. júní og mun hópurinn vafalítið
hafa frá mörgu skemmtilegu ævin-
týrinu í Sjanghæ að segja. - fb
KK til Sjanghæ í þriðja sinn
KK Tónlistarmaðurinn knái spilar á
heimssýningunni í Sjanghæ í Kína síðar
í mánuðinum.
Upp mín sál! er uppistandshópur á
vegum Listhópa Hins hússins sem
mun skemmta bæði borgarstarfs-
mönnum og gangandi vegfarendum í
sumar.
Hópurinn hyggst prófa sig áfram með annars
konar grín og má þar nefna söng og leikin
atriði. Í hópnum eru þau Gunnar Jónsson, nem-
andi í ritlist við Háskóla Íslands, Saga Garðars-
dóttir, leiklistarnemi við Listaháskóla Íslands,
Ugla Egilsdóttir, nemi í fræði og framkvæmd
við LHÍ, og Þórdís Nadia Óskarsdóttir, kvik-
myndafræðinemi við HÍ.
„Við Ugla kynntumst Gunnari á múslima-
ráðstefnu í Þýskalandi og fannst hann afskap-
lega fyndinn. Við erum öll mjög hrifin af
húmor hver annars og ákváðum því að sækja
um skapandi sumarstarf Hins hússins og
vera með grín og glens í allt sumar,“ segir
Saga Óskarsdóttir sem hefur séð um vinsælt
kvennauppistand á Næsta bar í vetur ásamt
Nadíu og Uglu.
Að sögn Sögu fer mikill tími í undirbúning
hjá hópnum en tekur fram að sá tími sé afskap-
lega skemmtilegur enda mikið hlegið. „Við sitj-
um bara og grínumst og eyðum miklum tíma í
að sigta einkahúmorinn úr svo allir geti hlegið
með okkur. Við erum oftast búin að ákveða um
hvað við ætlum að fjalla hverju sinni þó við
spinnum líka mikið í kringum það. Við Ugla
höfum einnig verið að gera gamanlög og ætlum
að reyna að þróa það svolítið meira í sumar auk
þess sem við verðum með sketsa á Facebook.“
Saga segir hópinn ekki feiminn enda ríki
sannur listandi innan hans og telja þau óhugs-
andi að fólk deili ekki skopskyni þeirra. „Það
gæti aldrei gerst að fólk hlægi ekki að okkur.
Og ef það gerðist væri það bara fyndið, við
gætum hlegið að því eftir á og jafnvel notað það
sem efnivið í næsta uppistand,“ segir hún að
lokum kampakát.
Hægt er að panta hópinn til að fara með uppi-
stand á vinnustöðum með því að senda fyrir-
spurn á vefpóstinn ragnar.isleifur@gmail.com.
- sm
Hrifin af húmor hver annars
GLAÐBEITTUR HÓPUR Uppistandshópurinn Upp mín
sál! mun skemmta borgarstarfsmönnum og gangandi
vegfarendum í sumar með skemmtilegu gríni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sjö ára gömul dóttir bandaríska
leikarans Dennis Hopper missti
af jarðarför föður síns.
Galen Hopper heldur
því fram að móðir henn-
ar, Victoria Duffy,
hafi meinað sér að
koma. „Þetta
er bara sjö ára
stelpa sem var
að missa pabba
sinn,“ segir
heimildarmað-
ur vefsíðunnar
The Daily Beas.
Því er jafnframt
haldið fram að
móðirin noti Galen
sem peð í barátt-
unni við fjölskyldu
Hoppers.
Missti af
jarðarförinni
> EKKI VELKOMINN
Bandaríski söngvarinn Chris Brown er
ekki velkominn til Bretlands. Fyrir
rúmu ári var Brown fundinn sekur
um gróft ofbeldi gegn þáver-
andi kærustu sinni, söngkon-
unni Rihönnu, og vilja bresk
yfirvöld því meina honum inn-
göngu inn í landið. Brown
hafði ætlað að halda tónleika
í landinu en ekkert verður úr
þeim áformum núna.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Hafðu samband