Fréttablaðið - 09.06.2010, Blaðsíða 42
26 9. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
2 DAGAR Í HM
0 kr.
Eftirstöðvum dreift á
allt að 12 mánuði.*
1.000 kr. inneign á
mán. í 12 mán. fylgir.
Staðgreitt: 13.900 kr.
Símalán – útborgun:
HUAWEI U1251
Ódýrasti 3G síminn með öllu sem þú þarft.
Styður m.a. 3G langdrægt kerfi.
0 kr.
Eftirstöðvum dreift á
allt að 12 mánuði.*
1.000 kr. inneign á
mán. í 12 mán. fylgir.
Staðgreitt: 34.900 kr.
Símalán – útborgun:
NOKIA 5230
Frábær 3G sími með stóran snertiskjá og GPS
sem gerir gott ferðalag enn betra.
Báðum
símum fylgir
12.000 KR.
INNEIGN
yfir árið!
3G
Báðir símarnir
styðja 3GL
*
Ef
g
re
it
t
er
m
eð
k
re
di
tk
or
ti
e
r
hæ
gt
a
ð
dr
ei
fa
e
ft
ir
st
öð
vu
nu
m
v
ax
ta
la
us
t
á
al
lt
a
ð
12
m
án
uð
i.
G
re
ið
sl
ug
ja
ld
e
r
25
0
kr
./
m
án
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
2
2
11
Hollendingar fögnuðu örugglega vel þegar þeir lentu með
Íslandi í riðli í undankeppninni. Það hafði bara tvisvar gerst
áður og það eru jafnframt einu tvö skiptin (HM 1974 og
HM 1978) sem Hollendingar hafa komist alla leið í úrslita-
leikinn á HM. Engin þjóð sem hefur verið með
Íslandi í riðli hefur náð að vinna heimsmeist-
aratitilinn en auk silfranna hjá Hollendingum
þá enduðu Frakkar í 3. sæti á HM 1958.
Undanfarnar fimm HM-keppnir hefur engu
liði úr íslenska undanriðlinum tekist að
komast í átta liða úrslit.
FÓTBOLTI Topplið Vals gerði 1-
1 jafntefli við KR í Pepsi-deild
kvenna í gær. Liðið er enn á toppi
deildarinnar með fjórtán stig
eftir sex umferðir þrátt fyrir
tvö jafntefli í röð því Breiðablik
gerði markalaust jafntefli við
Grindavík á útivelli og er enn
þremur stigum á eftir Val. Þór/
KA kemur næst með tíu stig.
Hallbera Guðný Gísladóttir
kom Valsstúlkum yfir í byrjun
seinni hálfleiks með skoti utan
af kanti en Íslandsmeistararnir
voru í vandræðum á móti skipu-
lögðu og baráttuglöðu KR-liði
í gær. KR náði að jafna metin
verðskuldað. Þar var að verki
Katrín Ásbjörnsdóttir úr víta-
spyrnu sem hún fékk sjálf.
Stjarnan vann Fylki á heima-
velli sínum með marki undir
lok leiksins frá Katie McCoy.
Stjörnustúlkur eru þar með
komnar með tíu stig eins og Þór/
KA.
Þá vann Afturelding góðan
heimasigur á Haukum, 1-0. - hþh
Pepsi-deild kvenna í gærkvöldi:
KR jafnaði gegn
Val í Vesturbænum
ÓVÆNT STIG KR-stelpur fagna jöfnunar-
marki sínu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
„Þetta var klassískur Ísland-Danmörk, jafntefli hefur verið niðurstaðan
ansi oft,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands,
eftir jafnteflið gegn Danmörku í gær. „Það vantaði herslumuninn
að við kláruðum þetta.“
Hann segist þó vera sáttur við jafntefli þegar upp er staðið.
„Markvarslan var léleg og varnarleikurinn þarf að vera betri. Við
hlupum illa til baka og það þarf að fara yfir. Það voru töluverðar
breytingar á liðinu og það sást alveg á leik okkar. Þetta er bara
til að læra og við þurfum að yfirfara nokkra þætti til að koma
sterkari í seinni leikinn,“ sagði Guðmundur en liðin mætast
aftur í kvöld.
Danska liðið er með þessum leikjum að undirbúa sig fyrir
umspilsleiki fyrir HM í Svíþjóð en strákarnir okkar hafa þegar
tryggt sér farseðil þangað.
„Við viljum ná hagstæðum úrslitum en notum einnig
tækifærið til að prófa eitt og annað. Við prófuðum 5+1 vörn
og fengum ágætis kafla með henni. Við vorum þó að fá á
okkur of mörg mörk lengst utan af velli. Danmörk er með svakalega
öflugar skyttur. Við skoruðum samt 33 mörk og það á að duga í
flestum tilfellum en við gerðum okkur seka um slæm mistök á
mikilvægum augnablikum,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Það er þó ekki hægt að segja annað en að leikurinn í gær lofi
góðu fyrir seinni leikinn og áhorfendur eiga von á hörkuleik í
kvöld. „Þetta er bara spennandi og gaman,“ sagði Guðmundur.
Snorri Steinn Guðjónsson segir gæði leiksins hafa verið fín.
„Þetta var fínn leikur miðað við að bæði liðin voru bara að hittast
í gær. Það er margt sem við getum bætt og allt það . Sóknarleik-
urinn var lengstum allt í lagi en þetta var bara æfingaleikur til að
þróa okkur og bæta okkar leik. Jafntefli voru sanngjörn úrslit,“
sagði Snorri.
„Við förum í seinni leikinn af fullum krafti en ég vil klárlega sjá
miklu fleiri áhorfendur á hann og helst troðfulla höll. Mætingin
á þennan leik var alls ekki nægilega góð að mínu mati,“ sagði
Snorri Steinn.
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON LANDSLIÐSÞJÁLFARI: KLASSÍSKUR ÍSLAND-DANMÖRK LEIKUR
Markvarslan léleg og vörnin þarf að vera betri
HANDBOLTI „Við unnum þá á EM og þá fékk maður að
kynnast því að það er helvíti gaman að vinna Dani,“
sagði Aron Pálmarsson sem var besti leikmaður
Íslands í leiknum í gær. „Maður hefði viljað skora
einu marki meira og ná að vinna þennan leik. Við
fáum annað tækifæri á morgun [í kvöld].“
Aron segir að strákarnir þurfi að mæta aðeins
betur stemmdir í leikinn í kvöld. „Við þurfum að
setja 10-15% meiri alvöru í þetta og gera þetta af
meiri krafti. Þá eigum við alveg að vinna þetta lið,“
sagði Aron.
„Markvarslan og varnarleikurinn datt niður í
seinni hálfleiknum. Hreiðar varði ekki bolta og við
vorum mjög slakir í vörninni. Tempóið datt niður hjá
okkur og við vorum kannski ekki að rótera liðinu
eins mikið og þeir. Mér fannst þó að við ættum að
vinna og við ættum meiri möguleika á því.“
Það leynir sér ekki að Aron er fullur sjálfstrausts
eftir velgengnina með Kiel og fann hann sig vel.
Hann steig upp á mikilvægum augnablikum í seinni
hálfleiknum. „Maður notfærir sér þessa velgengni
og lætur hana ekki stíga sér til höfuðs. Það vantaði
skyttur hjá okkur og maður er í aðeins öðru hlut-
verki en úti. Maður fær að skjóta meira og það er
bara gaman,“ sagði Aron.
Hann var ekki sáttur við mætinguna á leikinn. „Við
verðum að fá fulla höll í svona leiki. Það var leiðinlegt
að syngja þjóðsönginn og það heyrðist lítið í Höllinni.
Fólk á að mæta á leiki sama þótt það séu æfingaleikir.
Eitt besta lið heims er í heimsókn.“ - egm
Aron Pálmarsson var ekki ánægður með mætinguna í gær:
Of lítið heyrðist í Höllinni
Á FLUGI Róbert Gunnarsson flýgur inn í danska teiginn og
skorar eitt af fimm mörkum sínum í leiknum, úr aðeins fimm
skotum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM