Fréttablaðið - 17.06.2010, Side 25
FIMMTUDAGUR 17. júní 2010 25
Undirrituð birtu grein í mars-hefti Læknablaðsins um auka-
verkanir af Herbalife og í maí-
hefti blaðsins birtust athugasemdir
framleiðandans og svör okkar við
þeim. Þar sem nokkuð hefur borið
á röngum frásögnum af efni þess-
arar greinar viljum við árétta fáein
atriði. Bent er á vefsíðu Lækna-
blaðsins, www.laeknabladid.is, sem
er öllum opin.
Notkun fæðubótarefna hefur
vaxið gríðarlega á undanförn-
um árum og eru þau notuð í ýmis
konar tilgangi. Þar sem um náttúru-
legar afurðir er að ræða er nokk-
uð almenn trú að þær séu skað-
lausar og svo er reyndar í flestum
tilvikum. Hins vegar er vel þekkt
að ýmsar jurtir og fæðubótarefni
geta valdið aukaverkunum m.a. lifr-
arskaða.
Við könnun meðal lækna í landinu
sem var birt í Læknablaðinu 2002
komu fram sterkar vísbendingar
um að Herbalife kynni að tengjast
lifrarskaða. Síðan fengum við smám
saman vitneskju um fleiri tilfelli
af þessum toga og það var skylda
okkar að skoða þessi tilfelli nánar
og birta niðurstöðurnar.
Mikilvægt er að hafa í huga að hér
er ekki um fyrstu tilfellin að ræða.
Á árunum 2007-9 birtust fjórar rit-
gerðir í virtum erlendum læknis-
fræðitímaritum þar sem samtals
var lýst 28 sjúklingum, í þremur
löndum, með lifrarskaða sem talinn
er tengjast notkun Herbalife.
Í inngangi greinar okkar í
Læknablaðinu er almenn umfjöllun
um jurtir sem eru þekktar að því
að geta valdið lifrarskaða eins og
kava, grænt te, ma-huang (inniheld-
ur efedrín), aloe vera en krossfífill
og hóffífill eru nefndir sem dæmi
um íslenskar jurtir. Þetta er almenn
umfjöllun um slíkar jurtir og það er
ekki fyrr en í síðasta kafla ritgerð-
arinnar, umræðukaflanum, sem að
fjallað er um innihald í vörum frá
Herbalife.
Langflestar vörur frá Herbalife
innihalda engin efni sem tengjast
lifrarskaða en sumar Herbalife-
vörur innihalda grænt te (útdrátt),
aloe vera eða negul.
Í grein okkar er einnig skýrt
tekið fram að ekki sé vitað hvaða
efni í Herbalife-vörum gætu vald-
ið lifrarskaða, einungis er hægt að
geta sér til að þar sé um að ræða
einhverjar varasamar jurtir og
síðan eru nefnd grænt te (útdráttur)
og negull sem hugsanlegir orsaka-
valdar vegna þess að þau eru í vör-
unum sem okkar sjúklingar tóku.
Lítill sem enginn vafi leikur á því
að útdráttur (e. extract) úr grænu
tei getur valdið lifrarskaða. Vörur
með þessu innihaldi eru oftast töfl-
ur, hylki eða duft og í innihaldslýs-
ingu stendur: útdráttur úr grænu tei
(e. green tea extract). Málið snýst
um magn og með því að taka inn
útdrátt er verið að innbyrða mikið
magn af innihaldsefnum tesins.
Stundum hafa vörur með þessu inni-
haldi valdið lifrarskaða í svo mikl-
um mæli að þær hafa verið teknar
af markaði (t.d. vörurnar CUUR og
Exolise í nokkrum Evrópulöndum).
Ekki er vitað með vissu hvaða efni í
grænu tei gætu gert gagn eða vald-
ið skaða en helst er horft til nokk-
urra efna af flokki katekína. Grænt
te sem bruggað er á venjulegan hátt
og drukkið í hóflegu magni er talið
alveg hættulaust.
Safinn úr stönglum Aloe vera
jurtarinnar á sér langa sögu við
meðferð alls kyns húðkvilla og
verður ekki fjölyrt um það hér. Það
er líka talsverð reynsla af því að
taka þennan safa inn á formi taflna,
hylkja, hlaups eða vökva. Nokkur
tilfelli af lifrarskaða sem tengjast
notkun Aloe vera til inntöku hafa
komið fram á undanförnum árum í
Evrópu, Ameríku og Asíu. Ekki eru
þekkt þau innihaldsefni í Aloe vera
sem gætu valdið lifrarskaða.
Talið er að negull sé meinlaus
þegar hann er notaður sem krydd.
Í fæðubótarefnum er hins vegar oft-
ast um mun meira magn að ræða og
stundum er notuð tiltölulega hrein
negulolía (evgenól). Negull inni-
heldur negulolíu sem er eitruð fyrir
lifrina og getur valdið lifrarskaða
ef magnið fer yfir ákveðin mörk.
Í Bandaríkjunum og víðar er fólk
með lifrarsjúkdóma varað við að
nota negul og fæðubótarefni sem
innihalda negul. Ef haft er í huga
hversu útbreidd notkun Herba-
life og fæðubótarefna almennt er,
er ljóst að lifrarskaði er sárasjald-
gæfur. Eigi að síður er mikilvægt að
heilbrigðisstarfsfólk og almenning-
ur sé meðvitaður um þessa alvar-
legu aukaverkun. Við mælum ekki
gegn notkun fæðubótarefna sem
innihalda umrædd náttúruefni en
finnst mikilvægt að almenningur
sé upplýstur um aukaverkanir sem
fylgt geta notkun þeirra, þó að þær
séu vissulega sjaldgæfar.
Á vef Lyfjastofnunar, www.lyfja-
stofnun.is, er vefeyðublað til til-
kynninga á aukaverkunum lyfja og
fæðubótarefna. Þetta er opið fyrir
lækna, annað heilbrigðisstarfsfólk
og almenning.
Höfundar hafa engin hagsmuna-
tengsl sem gætu haft áhrif á niður-
stöður okkar.
Herbalife og jurtir sem geta valdið lifrarskaða
Fæðubótarefni
Magnús
Jóhannsson
læknir og prófessor við
Háskóla Íslands
Sif Ormarsdóttir
meltingarlæknir á
Lyfjastofnun
Sigurður Ólafsson
meltingarlæknir á
Landspítala
Við mælum ekki gegn notkun fæðu-
bótarefna sem innihalda umrædd
náttúruefni en finnst mikilvægt að
almenningur sé upplýstur um auka-
verkanir sem fylgt geta notkun þeirra.
Fréttir bárust af því nýlega að Birgir Ármannsson hefði hald-
ið langa tölu í umræðum um stjórn-
lagaþing, sem meirihluti á Alþingi
vill koma á, sem og meirihluti þjóð-
arinnar. Birgir þingmaður brást
þannig ekki skyldu sinni til þess
að stuðla að því að sú virðing sem
Alþingi nýtur meðal almennings
héldist óbreytt enn um sinn, en alltaf
er sú hætta fyrir hendi að það breyt-
ist ef enginn sinnir þessu verkefni.
Birgir fór nákvæmlega yfir stjórn-
arskrár a.m.k. tveggja þjóða. Mik-
ilvægi þess að ræða í þaula stjórn-
arskrár annarra ríkja hlýtur öllum
að vera augljós og skal Birgi bent á
að það eru hátt í 200 ríki á jörðinni,
sem sjálfsagt eru flest með stjórnar-
skrá, og því er honum ærið verkefni
fyrir höndum. Honum skal líka bent
á að framsóknarþingmaður að norð-
an talaði fyrir ári síðan alls 229 sinn-
um í einu og sama málinu og varla
nema eðlilegt markmið fyrir Birgi
að slá það met, til þess að viðhalda
enn frekar þeim virðingarsessi, sem
Alþingi hlýtur að vera full þörf á að
standa vörð um. Svo tíðar göngur í
ræðustól bera að vísu ekki vott um
lýðræðisást og sennilega ber það
líka vott um óskýrleika í frásögn –
og kannski vöntun á hæfileika á því
sviði – og því viðkomandi til minnk-
unar, en einhverju verður að fórna
þegar mikið liggur við.
Áfram Birgir. Þú átt mikið verk
fyrir höndum en þér er að takast
ætlunarverk þitt.
Vei Birgir
Stjórnmál
Pétur Bjarnason
sjávarútvegsfræðingur
Starfsfólk Eignastýringar Arion banka bý
r yfir áralangri reynslu í að leiða
saman markmið og ávöxtunarkosti. Okk
ur er ljóst að langtímasamband og
langtímaárangur fara saman. Hvort sem
um er að ræða uppbyggingu
á eignasafni, eignastýringu eða lífeyrissp
arnað getum við frætt
þig um kostina í stöðunni og hjálpað þé
r að taka vel upplýstar ákvarðanir.
Við ætlum að gera betur