Fréttablaðið - 17.06.2010, Qupperneq 52
40 17. júní 2010 FIMMTUDAGUR
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU
STÓRMYND SUMARSINS!
SÍMI 564 0000
12
12
L
L
L
12
L
12 SÍMI 462 3500
12
12
14
L
THE A-TEAM kl. 5.45 - 8 - 10.15
GET HIM TO THE GREEK kl. 8
YOUTH IN REVOLT kl. 10
SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ 3 kl. 5.45
SÍMI 530 1919
12
L
12
16
THE A-TEAM kl. 2.40 - 5.20 - 8 - 10.40
THE A-TEAM LÚXUS kl. 2.40 - 5.20 - 8 - 10.40
LEIKFANGASAGA 3D íslenskt tal kl. 1 - 3.20 - 5.40
TOY STORY 3 3D enskt tal kl. 3.20 - 5.40 - 8
STREETDANCE 3D kl. 1 - 10.20
GET HIM TO THE GREEK kl. 5.30 - 8 - 10.25
SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ 3 kl. 1 - 2.30 - 4
ROBIN HOOD kl. 8
THE A-TEAM kl. 6 - 9
STREETDANCE 3D kl. 6 - 9
GET HIM TO THE GREEK kl. 6 - 9
SNABBA CASH kl. 6 - 9
.com/smarabio
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR
HEFNDIN ER ÞEIRRA!
NÝTT Í BÍÓ!
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
12
12
12
12
16
12
12
12
10
10
10
L
L
L
L
L L
L
L
L
L
L
L
LEIKFANGASAGA 3 - 3D ísl. 1(3D) - 3:20(3D) - 5:40(3D)
LEIKFANGASAGA 3 M/ ísl. Tali kl. 1 - 3:20 - 5:40
TOY STORY 3 M/ ensku Tali kl. 8(3D) - 10:20(3D)
SEX AND THE CITY 2 kl. 2:30-5:30-8 - 8:30 - 10:45
SEX AND THE CITY 2 kl. 2 - 5 - 8 - 10:45
THE LOSERS kl. 5:50 - 8 - 10:10
PRINCE OF PERSIA kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20
THE LAST SONG kl. 3:20
AÐ TEMJA DREKANN SINN M/ ísl. Tali kl. 1:20
LEIKFANGASAGA 3 - 3D ísl. Tali kl. 3:20(3D) - 5:40(3D)
TOY STORY 3 M/ ensku Tali kl. 8(3D) - 11(3D)
SEX AND THE CITY 2 kl. 5D - 8D - 10:20D
PRINCE OF PERSIA : SANDS OF TIME kl. 3 - 5:30 - 8
IRON MAN 2 kl. 10:30
OFURSTRÁKURINN M/ ísl. Tali kl. 3
LEIKFANGASAGA 3 M/ ísl. Tali kl. 5:50 - 8
BROOKLYN‘S FINEST kl. 10:10
SEX AND THE CITY 2 kl. 6 - 9
LEIKFANGASAGA 3 - 3D ísl tal kl. 3:20 - 5:40
TOY STORY 3 - 3D ensku tal kl. 8
THE LOSERS kl. 10:20
PRINCE OF PERSIA : SANDS OF TIME kl 6
SEX AND THE CITY 2 kl. 9
LAST SONG kl. 4
VIDDI, BÓSI LJÓSÁR OG HIN LEIKFÖNGIN ERU KOMIN AFTUR Í STÆRSTU OG BESTU TOY STORY MYND TIL ÞESSA.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÆRSTA LEIKFANGASAGA
FRÁ UPPHAFI!
EIN STÆRSTA MYND ÁRSINS!
- bara lúxus
Sími: 553 2075
A-TEAM 5.40, 8 og 10.20(POWER) 16
STREET DANCE 3-D 4(900 kr), 6 og 8 7
GET HIM TO THE GREEK 3.50(600kr), 5.50, 8 og 10.10 12
ROBIN HOOD 10 12
SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ 4(600 kr) L
TILBOÐ í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu!
Þ.Þ. -FBL
T.V. -Kvikmyndir.isÓ.H.T. -Rás 2
S.V. -MBL
T.V. -Kvikmyndir.is S.V. - MBL
POWERSÝNING
KL. 10.20
Bíó ★★★
The Losers
Aðalhlutverk: Jeffrey Dean Morg-
an, Zoe Saldana, Chris Evans
Leikstjóri: Sylvain White
The Losers er hrá, sveitt og á
köflum alveg hreint ferlega töff
hasarmynd.
Gallalaus er hún þó ekki og
líður einna helst fyrir lapþunnt
handrit, frekar slappa og klisju-
kennda sögu og leikarahóp sem
er vægast sagt misgóður. Mynd-
in rís hins vegar undir göllunum,
aðallega vegna þess að hún tekur
sig aldrei alvarlega og þykist ekki
vera neitt annað en það sem hún
nákvæmlega er. Spennumynd með
sprengingum, byssubardögum og
slagsmálum og þeir sem fara sjálf-
viljugir á myndir eins og The Los-
ers eru að sækjast eftir einmitt
þessu án þess að hafa of miklar
áhyggjur af umgjörðinni eða vit-
rænni framvindu sögunnar.
The Losers er byggð á sam-
nefndri myndasögu um harðsnúna
sérsveit hermanna sem tekur að
sér ýmis vafasöm leyniverkefni
en segir CIA stríð á hendur eftir
að stofnunin snýst gegn þessum
vösku útsendurum sínum.
Í bíó er nánast það sama í gangi.
Voðalega vondur og dularfullur
skúrkur, Max að nafni, sendir lús-
erana í drápsferð á vægast sagt
vafasömum forsendum og ætlar
sér svo að kála þeim þegar þeir
hafa lokið verki sínu.
Okkar menn sleppa þó með
skrekkinn en eru taldir af, og til
þess að bæta gráu ofan á svart
sitja þeir fastir í Bólivíu, félitlir og
ráðalausir, en láta sig dreyma um
að komast aftur heim til Banda-
ríkjanna og jafna metin við Max.
Skýtur þá upp kollinum ferlega
flott hasargella með fullar hend-
ur fjár sem vill endilega flytja þá
heim og fjármagna draum þeirra
um að drepa Max. Þá byrjar fjörið
fyrir alvöru. Lúserarnir, sem eru
einhvers konar sambland af geng-
inu og Mission Impossible og 12
ruddum, nota tölvutækni og vél-
byssur til þess að klekkja á Max.
En auðvitað er víða setið á svik-
ráðum og engum treystandi.
Jeffrey Dean Morgan leikur for-
ingja lúseranna og er jafn stirð-
ur, ótöff og ósannfærandi og hann
var frábær í hlutverki Grínistans
í The Watchmen.
Hinn jafnan ofmetni leikari
Jason Patric mætir nokkuð öfl-
ugur til leiks í hlutverki Max
þar sem hann skammast sín ekk-
ert fyrir að ofleika ýktan skúrk-
inn. Chris Evans er skemmtileg-
asti leikarinn í hópi lúseranna og
sýnir fín tilþrif í gríninu en að
öðru leyti á Zoe Saldana (Avat-
ar, Star Trek) þessa mynd skuld-
laust. Hún fer hamförum í hlut-
verki ofurskutlunnar Aisha sem
er jafningi lúseranna í vopnaburði
og slagsmálum en auðvitað miklu
kynþokkafyllri.
Bardagaatriðin eru flest fín
þar sem mikið er gert út á hrað-
ar klippingar og það eru fyrst og
fremst töffarastælar með tökuvél-
ina sem lyfta myndinni. Til dæmis
er óborganlegt að sjá glitta í rass-
inn á Saldana í fljúgandi speg-
ilbroti í miðri byssukúluhríð.
Ógleymanlegt atriði í mynd sem
líður annars fljótt úr minni.
Þórarinn Þórarinsson
Niðurstaða: Töff hasarmynd sem fer
langt á flottri gellu og smart atriðum
en líður fyrir lélegt handrit og ójafnan
hóp leikara.
Ósigrandi minnipokamenn
MISGÓÐUR LEIKARAHÓPUR The Losers tekur sig ekki of alvarlega og rís því undir
göllunum.
af 100 mögu-
legum er meðal-
eink unn myndar-
innar á vefsíðunni Metacritic,
sem tekur saman dóma
kvikmyndagagnrýnenda.
HEIMILD: METACRITIC.COM
44
Aðstoðarkona Lindsay Lohan
sagði upp stuttu fyrir helgi því
hún sagðist ekki orka lengur að
vinna fyrir leikkonuna. Sam-
kvæmt vefsíðunni TMZ.com
vann aðstoðarkonan oft marga
daga í röð án þess að fá frí auk
þess sem hún fékk illa greitt fyrir
langa vinnudaga. Vinir Lohan ótt-
ast að hún eigi eftir að missa tökin
á lífi sínu án aðstoðar konunnar
góðu. „Án aðstoðarkonu mun
hún aldrei geta mætt á þá fundi
sem hún þarf að mæta á. Lindsay
missti ökuréttindin fyrir nokkru
og aðstoðarkona hennar skutlaði
henni því hvert sem hún þurfti að
fara. Auk þess er Lindsay mjög
óskipulögð og hún mun ekki geta
séð um sig sjálf án aðstoðar. Hún
virðist algjörlega ófær um að
skipuleggja sig og það sem þarf
að gera,“ sagði áhyggjufullur
vinur leikkonunnar.
Óskipulögð Lohan
ÓSKIPULÖGÐ Lindsay Lohan á erfitt með að skipuleggja líf sitt. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan January Jones, sem
sló í gegn sem Bettie Draper í
sjónvarpsþáttunum Mad Men,
lenti í því leiðinlega atviki að
keyra á þrjá kyrrstæða bíla fyrir
helgi. Eftir áreksturinn flúði
stúlkan af vettvangi með þeim
orðum að hún þyldi ekki aðgangs-
harða ljósmyndara sem mættir
voru á svæðið. Eftir að
lögreglan var kölluð
til kom Jones til
baka og baðst afsök-
unar á að hafa
stungið af. Sam-
kvæmt lögregl-
unni var leikkon-
an allsgáð þegar
áreksturinn
átti sér stað en
bíllinn hennar
stórskemmdist og
varð að draga hann
á brott.
Stórskemmdi
bílinn sinn
ÓHEPPIN January
Jones keyrði á þrjá
kyrrstæða bíla.
NORDICPHOTOS/GETTY