Fréttablaðið - 08.07.2010, Side 28
28 8. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
Ingibjörg H. Bjarnason (1867-1941)
var fyrst íslenskra kvenna kjörin á
þing á þessum degi árið 1822.
Ingibjörg var fædd í Dýrafirði, ein
fimm barna Hákonar Bjarnasonar og
Jóhönnu Kristínar Þorleifsdóttur sem
komust á legg. Að fermingu lokinni
fluttist hún til Reykjavíkur þar sem
hún hóf nám við Kvennaskólann í
Reykjavík. Þaðan lauk hún kvenna-
skólaprófi árið 1882 og stundaði nám í teikn-
ingu, dönsku og ensku hjá Þóru Pétursdóttur
árin 1882-1884. Ingibjörg stundaði framhalds-
nám meðal annars í greinum sem tengdust upp-
eldis- og menntamálum í Kaupmannahöfn árin
1884-1885 og 1886-93 og lauk fyrst Íslendinga
leikfimiprófi. Eftir það starfaði hún meðal annars
við kennslu og varð nánasti sam-
starfsmaður Þóru Melsted, skólastjóra
Kvennaskólans í Reykjavík, 1903-06
og síðar arftaki hennar, en eitt fyrsta
verk hennar var að útvega húsnæði
fyrir skólann við Fríkirkjuveg. Gegndi
Ingibjörg stöðu skólastjóra allt til
dauðadags.
Ingibjörg barðist alla tíð fyrir
réttindum kvenna, var meðal annars
einn stofnenda Lestrarfélags kvenna í Reykjavík
og varð fyrst íslenskra kvenna til að taka sæti á
Alþingi, 15. febrúar 1923, þar sem hún komst á
þing fyrir sérstakan kvennalista. Síðar gekk hún
til liðs við Íhaldsflokkinn, sem varð Sjálfstæðis-
flokkurinn, og sat á þingi fyrir hann til ársins
1930.timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
ÞETTA GERÐIST: 8. JÚLÍ 1922
Ingibjörg fyrst kvenna á þing
MERKISATBURÐIR
1362 Grundarbardagi á Grund
í Eyjafirði. Þar drepa Ey-
firðingar Smið Andrésson
hirðstjóra og menn hans.
1497 Vasco da Gama heldur
upp í fyrsta leiðangur sinn
til Indlands umhverfis Afr-
íku.
1853 Koma Matthew Perry og
svörtu skipanna til Japans.
1903 Upphaf síldarsöltunar á
Siglufirði. Síldarævintýrið
sem þarna hefst stendur í
65 ár.
1922 Ingibjörg H. Bjarnason
kjörin á þing fyrst kvenna
og tekur hún sæti á Al-
þingi 15. febrúar 1923.
1926 Ríkisstjórn undir forsæti
Jóns Þorlákssonar sest að
völdum og situr í rúmt ár.
Haraldur Þórarinsson
Kvistási
andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga sunnudaginn
4. júlí. Útförin fer fram frá Garðskirkju, Kelduhverfi
laugardaginn 10. júlí kl. 13.00.
Björg M. Indriðadóttir
Indriði Vignir Haraldsson
Margrét Þórarinsdóttir
Sigurður Þórarinsson Hildur Helgadóttir
Emma Hansen
fyrrverandi prófastsfrú á Hólum í
Hjaltadal
er látin. Útförin fer fram frá Hóladómkirkju föstu-
daginn 9. júlí kl. 14.00.
Björn Friðrik Björnsson Oddný Finnbogadóttir
Ragnar Björnsson
Sigurður J. Björnsson Thuy Thu Thi Nguyen
Gunnhildur Björnsdóttir Sveinn Agnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær bróðir okkar, mágur og
frændi,
Sigurbjörn Björnsson
Skútagili 2, 603 Akureyri,
lést á heimili sínu 18. júní. Útför hefur farið fram í
kyrrþey.
Stefán Björnsson Ragnhildur Sigfúsdóttir
Árný Björnsdóttir
Elsa Björnsdóttir Jóhannes Magnússon
og systkinabörn.
BECK ER FERTUGUR.
„Reynslan hefur kennt mér, að
útgáfufyrirtæki eru eins og stór-
ir hraðbankar.“
Bek David Campbell er bandarískur
tónlistarmaður, sem gengur undir
sviðsnafninu Beck. Hann á að baki
ýmsa smelli, meðal annars Looser,
sem vakti heimsathygli á honum
um miðjan tíunda áratuginn,
Where It´s at og Devil´s Haircut.
AFMÆLI
Ragnar Arnalds rit-
höfundur er 72 ára.
Jayden Smith leikari
er 12 ára.
Tom Egeland rithöf-
undur er 51 árs.
Ólöf Pétursdóttir dómstjóri hefði orðið
sextíu og tveggja ára í dag hefði hún
lifað en hún lést langt fyrir aldur fram
hinn 20. mars árið 2008. Hún sinnti
listmálun í mörg ár, meðal annars
eftir að hún lamaðist við fall af hest-
baki átján mánuðum áður en hún dó.
Þá málaði hún með munninum. Er hún
lést ákvað fjölskylda hennar að stofna
sjóð sem heitir Listasjóður Ólafar og að
sögn manns hennar, Friðriks Pálsson-
ar framkvæmdastjóra Hótels Rangár,
gáfu margir í sjóðinn í hennar minn-
ingu. Í dag verður veitt úr honum í
fyrsta skipti.
„Listasjóðurinn starfar á þröngu
sviði,“ tekur Friðrik fram í byrjun.
„Hlutverk hans er að auðvelda hreyfi-
hömluðum einstaklingum að sinna list-
sköpun, með hvaða hætti sem það má
vera, eða í hvernig formi sem er,“ bætir
hann við. Hann telur býsna algengt
í heiminum að fólk máli með munni
og fótum. „Það eru meira að segja til
alþjóðleg samtök um þess háttar list-
sköpun,“ upplýsir hann.
Upphæðin sem veitt er að þessu sinni
er 750 þúsund og Friðrik upplýsir að
hana hljóti Sigþrúður Loftsdóttir, iðju-
þjálfi á endurhæfingardeild Landspít-
alans á Grensási. „Hún fær styrkinn til
að mennta sig í því að veita hreyfihöml-
uðu fólki tilsögn við listsköpun,“ segir
hann en hvar læra menn slíkar aðferð-
ir? „Fyrst og fremst erlendis en jafn-
framt hefur Sigþrúður að undanförnu
tekið þátt í námskeiðum hér heima á
listasviðinu til að vera betur í stakk
búin að takast á við þetta verkefni.“
Friðrik segir Sigþrúði hafa ann-
ast Ólöfu mikið á Grensásdeildinni á
sínum tíma. „Hún fylgdist þar mjög vel
með samvinnu Ólafar og vinar henn-
ar Derek Mundell sem aðstoðaði hana
við að ná mikilli færni í listmálun með
munninum. Sigþrúði var vel kunnugt
hvernig það gekk allt fyrir sig og hefur
hug á að sérhæfa sig í slíkri þjálfun.“
Styrkurinn úr Listasjóði Ólafar var
fyrr á þessu ári auglýstur hjá iðju-
þjálfum og myndlistarkennurum. „Við
ákváðum í þetta fyrsta skipti að leita
eftir styrkþega sem vildi sérhæfa sig í
þessari tegund af þjálfun því þeir eru
ekki margir sem hafa lagt sig eftir því
hér á landi. Það breytir því ekki að við
höfum leyfi til þess, samkvæmt stofn-
skránni, að styrkja hvern sem er sem
getur með einhverjum hætti eflt sína
listsköpun, þrátt fyrir hreyfihömlun.
Reynsla hérlendis sem erlendis hefur
sýnt að það eykur lífsgæði.“
Að lokum er Friðrik spurður hvort
afmælisdagur Ólafar verði úthlutun-
ardagur styrkja úr sjóðnum í fram-
tíðinni. „Það hefur reyndar ekki verið
ákveðið,“ svarar hann. „En við skulum
gera ráð fyrir því.“ gun@frettabladid.is
LISTASJÓÐUR ÓLAFAR: VEITIR FJÁRSTYRK Í FYRSTA SINN
Tilgangurinn er að auðvelda
hreyfihömluðum listsköpun
FRAMKVÆMDASTJÓRI „Við ákváðum í þetta fyrsta skipti að leita eftir styrkþega sem vildi sér-
hæfa sig í þessari tegund af þjálfun,“ segir Friðrik, hér með mynd eftir Ólöfu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Stjórn Listahátíðar í Reykja-
vík hefur ráðið Guðrúnu
Norðfjörð í stöðu fram-
kvæmdastjóra Listahátíð-
ar í Reykjavík úr hópi 24
umsækjenda.
Guðrún Norðfjörð hefur
MA-próf í menningarstjórn-
un frá Goldsmiths College í
London, BA-próf í frönsku
frá Háskóla Íslands og auk
þess próf í markaðs- og
útflutningsfræðum og hag-
nýtri fjölmiðlun frá sama
skóla. Guðrún hefur verið
verkefnisstjóri hjá Listahá-
tíð síðastliðin fimm ár.
Framkvæmdastjóri Lista-
hátíðar sér um almennan
undirbúning Listahátíðar og
rekstur og er næstráðandi á
eftir listrænum stjórnanda,
Hrefnu Haraldsdóttur.
Tekur við stöðu
framkvæmdastjóra
GUÐRÚN NORÐFJÖRÐ Tekur við
stöðunni í haust.