Fréttablaðið - 08.07.2010, Side 32
8. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
SÝNDU
ÞÍNAR
BESTU
HLIÐAR
Ljósmyndasamkeppni
Panasonic og Vísis
Taktu þátt í ljósmyndasamkeppni. Deildu þínum
bestu myndum með okkur og þú átt möguleika
á glæsilegum verðlaunum. Að auki er þráðlaus
Panasonic KXTG1311 sími dreginn út í hverri viku.
Skilafrestur til 21. ágúst 2010.
Allar nánari upplýsingar á visir.is.
1. VERÐLAUN
2. VERÐLAUN
3. VERÐLAUN
PANASONIC BD65
Vandaður Blu-ray spilari með minniskortarauf
til að skoða ljósmyndirnar úr myndavélinni.
PANASONIC G2
Glæný og byltingarkennd myndavél með
útskiptanlegum linsum og snertiskjá.
PANASONIC TZ10
Hágæða myndavél með 12x aðdrætti,
GPS og fjölmörgum möguleikum.
...ég sá það á Vísi
Tískuvikan í Berlín stendur nú
sem hæst. Þar mátti sjá haust-
línu Lala Berlin á pöllunum.
Bak við Lala Berlin stendur Leyla
Piedayesh, en hún hóf að hanna
prjónaflíkur árið 2003 þegar
hún hætti sem dagskrár-
stjóri á tónlistarstöðinni
MTV.
Leyla Piedayesh kunni
varla að prjóna sjálf og
fyrstu handstúkurnar sem
hún gerði þóttu lélegar.
Hún gafst þó ekki upp
og í dag eru flíkur undir
merkinu Lala Berlin seld-
ar í yfir 60 verslunum um
allan heim og stjörnur
eins og Claudia Schiffer
ganga í Lala Berlin.
Á sýningunni í gær
mátti sjá gróft prjónað-
ar peysur, sem eru ein-
kennandi fyrir Lala Berlin
og silkikjóla. - rat
Lala Berlin á tískuviku í Berlín
Grófar prjónapeysur úr eðalgarni frá Lala
Berlin. MYND/AFPNORDICPHOTOS
Sýningarstúlkurnar
svifu um í silkikjól-
um.
Svart, gegnsætt
og gróft.
„Við ætlum að gera Limitless-
kjólinn fyrir brúðarmeyjar Anitu
Briem,“ segir Brynjar Ingólfsson,
framkvæmdastjóri tískufyrir-
tækisins Emami, sem hefur boðið
leikkonunni Anitu Briem að hanna
kjóla á brúðarmeyjar hennar frítt.
„Þetta er að byrja í vinnslu,“ bætir
hann við.
Brynjar segir Emami hafa
fengið þá hugmynd að bjóð-
ast til að hanna brúðar-
meyjakjóla handa
Anitu í framhaldi
af grein sem
birtist í Frétta-
blaðinu um miðj-
an júní um fyrir-
hugað brúðkaup
hennar og unn-
ustans Dean
Paraskevop-
oulos á grísku
eyjunni Sant-
orini í sumar,
en eyjan var
sögusvið kvik-
myndarinnar
Mamma mia!
Haft var eftir
Anitu að gaman
gæti verið að láta
brúðarmeyjarnar
klæðast íslenskri
hönnun.
Brynjar segir
ekki enn ákveðið í
hvernig lit eða úr
hvaða efni kjólarnir verða en sex
brúðarmeyjar verða í brúðkaupinu.
„Anita hefur sent okkur þá liti sem
hún hefur áhuga á,“ segir Brynj-
ar og bætir við að ekki sé heldur
ákveðið hvort kjólarnir verði í eins
eða mismunandi lit. „Það sem við
gerum núna er að fá efnisprufu
sem við sendum svo á hana og hún
velur úr.“
Emami er að hanna brúðar-
meyjakjóla í fyrsta sinn. „Það er
bara frábært að fá að gera þetta
með henni Anitu,“ segir Brynj-
ar og getur þess að hugmyndin að
kjólum á brúðarmeyjar sé þó ekki
ný af nálinni hjá fyrirtækinu. „Við
fengum hugmyndina í nóvember
í fyrra þegar við vorum að horfa
á einhverja væmna bíómynd. Þá
byrjuðum við að tala um þetta og
okkur þótti þetta sniðug hugmynd,
brúðarmeyjar allar í sama kjólnum
en samt öðruvísi.“
Fyrirtækið horfir fyrst og
fremst til Ameríkumarkaðs fyrir
brúðarmeyjakjóla. Hjá Emami er
litið á þetta sem ákveðna prófraun
meðal annars vegna þess að notast
er við annars konar efni en venja
er að sögn Brynjars. „Okkur finnst
líka svo sniðugt að brúðarmeyj-
arnar þurfi ekki allar að vera eins
heldur geti lagað kjólana að þeirra
líkama, hvernig þeim líður best og
líta best út. Okkur þótt þetta þess
vegna óttalega sniðugt.“
martaf@frettabladid.is
Brúðarmeyjar Anitu
Briem klæðast Emami
Tískufyrirtækið Emami hefur boðið leikkonunni Anitu Briem að hanna fyrir hana kjóla á sex brúðarmeyj-
ar, en hún gengur í það heilaga með unnusta sínum Dean Paraskevopoulos á eyjunni Santorini í sumar.
Brynjar Ingólfsson segir hugmyndina að kjól á brúðarmeyjar hafa orðið til yfir væminni bíómynd. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Limitless-kjóllinn
er vinsælasti kjóll
Emami. FRÉTTABLAÐ-
IÐ/ARNÞÓR
Anita Briem og
Dean Paraske-
vopoulos hafa
þekkst boð Emami
um að hanna kjóla
á brúðarmeyjar
þeirra.
NORDICPHOTOS/GETTY