Fréttablaðið - 22.07.2010, Page 4
4 22. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
31°
31°
33°
23°
24°
30°
24°
24°
23°
20°
24°
32°
35°
24°
24°
21°
26°Á MORGUN
8-13 m/s SV-til
annars hægari.
LAUGARDAGUR
Fremur hæg SV-átt en
hæglætis veður NA-til.
13
13
14
14
14
12
12
16
17
10
13
5
6
7
7
6
4
3
2
6
2
4
19
18
14
13
15 18
20
14
15
16
SÓL OG SUMAR
FYRIR NORÐAN
Veðurspáin fyrir
Norðausturland
er hreint frábær
næstu daga en
það er útlit fyrir
hæglætis veður,
sól og 17-22°C.
Mesta blíðan verð-
ur líklega í Ásbyrgi
á laugardag og á
veðrið efl aust eftir
að laða að mikinn
fjölda þátttakenda í
Jökulsárhlaupið.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Tillögur að nýju
skattkerfi verða lagðar fram um
áramót, ef allt gengur eftir. Um
síðustu áramót var kerfinu breytt
og tekið upp þrepaskipt kerfi.
Þær breytingar voru kynntar
til eins árs á meðan heildarend-
urskoðun færi fram. Sú vinna
stendur yfir.
Fjármálaráðherra skipaði
nefnd til að end-
urskoða kerfið.
Þar eru ýmsar
hugmyndir
uppi á borðum:
þrepaskipting
skatta og upp-
stokkun bóta-
kerfis.
Á r n i P á l l
Árnason, félags-
og trygginga-
málaráðherra, segir góða sam-
vinnu milli stjórnarflokkanna um
málið og það sé á forræði fjár-
málaráðherra. Ráðuneyti hans
á fulltrúa í nefndinni. Árni Páll
segir að það hversu mörg skatt-
þrepin verði þurfi að skoðast í
samhengi við skerðinguna bóta-
megin. Ekki gangi að tekjutengja
bæði skatta og bætur.
Árni Páll segir það í samræmi
við kerfið á Norðurlöndunum,
þar sé tekjutengingin skattameg-
in, en ekki bóta. Horfa verði til
þess að tekjutenging sé ein teg-
und skattlagningar.
„Þá er grunnvinna í gangi
varðandi nýtt barnatrygginga-
kerfi sem tæki við af barna-
bótakerfi. Það ætti að mæta
betur hag barnmargra lágtekju-
fjölskyldna og hvetja fólk til
atvinnuþátttöku og auðvelda
þannig leið út úr atvinnuleysi,“
segir Árni Páll.
Þá er til skoðunar að koma á
fót nýju húsnæðisbótakerfi, sem
leysti af vaxtabætur og húsa-
leigubætur. Þá yrði komið á fót
einu húsnæðisbótakerfi óháð því
hvort menn kaupa eða leigja.
„Það lá alltaf fyrir að um næstu
áramót yrði lagt fram nýtt kerfi
sem yrði endurskoðað í heild
sinni og við stefnum að því.
Við viljum kerfi sem styður enn
frekar en nú við þær fjölskyld-
ur sem eiga á hættu að lenda í
fátæktargildrum og mæti betur
framfærsluþörf vegna barna og
húsnæðis.“ - kóp
Skattkerfið dragi úr
tekjutengingu bóta
Unnið er að tillögum um nýtt skattkerfi sem verði tilbúnar um áramót. Skoðað
er að tekjutengja skatta áfram en draga á móti úr tekjutengingu bóta og stokka
kerfið upp. Leigubætur og vaxtabætur sameinaðar í húsnæðisbætur.
FÓLK Unnið er að breytingum á skattkerfinu og gert er ráð fyrir að þær liggi fyrir um
áramót. Skattar verða tekjutengdir en dregið verður úr tekjutengingum bóta.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
SJÁVARÚTVEGUR Í lög um fiskveiðistjórnun vant-
ar ákvæði sem gera ráðherra kleift að endur-
skoða grundvöll upphaflegrar kvótaúthlutunar,
svo sem vegna breytinga á útbreiðslusvæði teg-
unda, breyttra útgerðarhátta, vistkerfisbreyt-
inga eða breyttra veiðiaðferða. Þetta kemur
fram í áliti sem Ástráður Haraldsson hæsta-
réttarlögmaður vann fyrir landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðuneytið í júlí í fyrra.
Óskað hafði verið eftir áliti á því hvaða leið-
ir væru færar í afnámi kvótaúthlutunar vegna
úthafsrækju og skötusels. Niðurstaða Ástráðs
er að lögin bindi hendur ráðherra í því að sé
ákveðinn heildarafli, þá beri að ráðstafa honum
með úthlutun veiðiheimilda. „Séu veiðar hins
vegar gerðar frjálsar er ráðherra ekki heimilt
að takmarka þær að öðru leyti,“ segir í álitinu.
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra kynnti
fyrir helgi ákvörðun sína um að gefa rækju-
veiðarnar frjálsar næsta fiskveiðiár. Í áliti Ást-
ráðs segir að það verði að óbreyttum lögum þó
tæpast gert nema Hafrannsóknastofnunin geri
tillögu um slíkt. Hún leggur hins vegar til sjö
þúsund tonna aflamark á næsta fiskveiðiári.
„Ráðherra þyrfti að undirbyggja slíka ákvörð-
un vel og því skemur sem tegund yrði hald-
ið utan kvóta því viðkvæmari yrði ákvörðunin
fyrir gagnrýni,“ segir í álitinu. - óká
Veiðar má ekki gefa frjálsar nema Hafrannsóknastofnunin leggi það til:
Endurskoðunarákvæði vantar í fiskveiðistjórnarlögin
RÆKJUVINNSLA Í lögum um fiskveiðistjórnun segir
að ákvörðun um kvótaafnám þurfi stuðning Hafrann-
sóknastofnunar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EVRÓPUMÁL Tölvupósturinn sem
Nigel Farage, Evrópuþingmaður
og formaður Breska sjálfstæðis-
flokksins, sendi á kollega sína að
beiðni Heimssýnar, samtaka and-
stæðinga Evrópusambandsaðild-
ar Íslendinga, var hugsaður í því
skyni að gefa
fólki rétta mynd
af stöðu mála
hér á landi.
Þetta segir
Páll Vilhjálms-
son, fram-
kvæmdastjóri
Heimssýnar og
höfundur bréfs-
ins, sem bendir
á að utanríkis-
ráðuneytið hafi
einungis haldið á lofti afstöðu ráð-
herrans í málinu.
„Ég sendi þennan texta vítt og
breitt með ósk um frekari dreif-
ingu,“ segir Páll. „Utanríkisráðu-
neytið hefur ekki endurspeglað
aðra afstöðu en Össurar Skarphéð-
inssonar utanríkisráðherra sem er
aðildarsinni. Þar með er hætta á að
umheimurinn fái brenglaða mynd
af vilja þjóðarinnar.“ - sh
Fjöldapóstur um Evrópumál:
Heimssýn vill
rétta myndina
PÁLL
VILHJÁLMSSON
KJARAMÁL Launavísitala hækkaði
um 2,2 prósent í júní og var hún
378,3 stig. Síðastliðna 12 mánuði
hefur launavísitalan hækkað um
6,1 prósent. Þetta kemur fram á
vef Hagstofu Íslands.
Laun hækkuðu um 6.500 krón-
ur, eða að lágmarki 2,5 prósent,
1. júní, samkvæmt kjarasamn-
ingum aðildarfélaga Alþýðu-
sambands Íslands og Samtaka
atvinnulífsins. Sambærilegar
hækkanir voru hjá aðildarfé-
lögum Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja. Vísitala kaupmátt-
ar hækkaði einnig í júní, eða um
2,6 prósent, og er nú 106,6 stig.
Hún hefur hækkað um 0,3 pró-
sent síðastliðna tólf mánuði.
- kóp
Kaupmáttarvísitala hækkar:
Launavísitala
hækkar í júní
FÓLK Launavísitala og kaupmáttarvísi-
tala hækkuðu báðar í júní og má því
gera því skóna að fólk hafi eilítið meira
milli handanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gunnsteinn nýr sveitarstjóri
Gunnsteinn R. Ómarsson hefur verið
ráðinn sveitarstjóri Rangárþings ytra.
Hann hefur störf 1. september. Alls
sóttu 36 um sveitarstjórastöðuna.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Sendinefnd til Sádi-Arabíu
Íslandsstofa kannar nú áhuga
hérlendra fyrirtækja á þátttöku í
viðskiptasendinefnd til Jedda í Sádi-
Arabíu í október. Sendinefndin er
skipulögð í tengslum við þátttöku
íslenskra vatnsútflytjenda í sýning-
unni Saudi Water and Power. Þátttaka
í nefndinni er ekki bundin þátttöku á
sýningunni.
VIÐSKIPTIGeta sent tillögur netleiðis
Kópavogsbúar geta nú komið
ábendingum og tillögum á framfæri
við stjórnendur bæjarins í gegnum
ábendingakerfi á vef Kópavogs, kopa-
vogur.is. Sendandi þarf að gefa upp
nafn, heimilisfang og netfang og fær
fljótlega upplýsingar um það hver fær
ábendingu hans til úrvinnslu. Hann
getur þannig fylgst með framgangi
málsins hjá stjórnsýslu bæjarins.
KÓPAVOGUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 21.07.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
201,7201
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,03 123,61
187,86 188,78
157,55 158,43
21,14 21,264
19,636 19,752
16,648 16,746
1,4127 1,4209
185,24 186,34
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Sprengfull búð af frábærum tilboðum!
SUMAR-
MARKAÐUR
ellingsen.is
ALLT A
Ð
70%
AFSLÁ
TTUR
REYKJAVÍK
AKUREYRI