Fréttablaðið - 22.07.2010, Blaðsíða 40
28 22. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Charlotte
Böving
Heitasta golfmót
ársins
Bylgjan Open
Fer fram hjá GKG
helgina 24. og 25. júlí
Tveggja daga punktakeppni með
niðurskurði - 70 bestu komast áfram
og leika til úrslita á sunnudeginum.
Flott teiggjöf, nándarverðlaun á öllum Par 3 holum og
sleggja dagsins fær verðlaun fyrir lengsta teighöggið.
Veglegir vinningar!
Allir fá drykki frá Coke og Poweraid
og Prince Polo í pokann!
Farðu á golf.is og skráðu þig
strax í þetta vinsæla mót
áður en það verður of seint.
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þrátt fyrir góð
laun þá er ég
alltaf með
nagandi
samviskubit í
vinnunni.
Í alvöru talað, strákar!
Komið ykkur út og
takið ruslið með ykkur!
Hvað
nú?
Er þetta
ritgerðin þín?
Já.
Og?
Hún lítur virkilega
vel út. Hún er miklu
flottari en það sem
þú skilar vanalega
frá þér.
Takk. En
hún er
ekkert
spes.
Þegar maður hefur
lélegt viðmið er auð-
velt að toppa það.
Ættum við að hringja í
systur mína og spyrja
hvernig gengur?
Nei.
Ef við hringjum og það
er eitthvað að fáum við
samviskubit sem eyði-
leggur kvöldið okkar.
Og ef við hringjum og það
er allt í sómanum þurfum
við ekkert að gera og það
eyðileggur kvöldið.
Þannig að fáviska er sæla?
Nei, en tímabundin
alsæla getur látið
manni líða vel.
Verandi útlendingur sem býr hér á Íslandi hef ég oft velt fyrir mér mikilli
notkun hugtaksins að vera DUGLEG(UR).
Mig langar jafnvel að leyfa mér að fullyrða
að hér á landi sé útbreiddur „duglegur-fas-
ismi“.
HVAÐ þýðir það að vera dugleg(ur)? – Að
maður hafi staðið sig vel? En við myndum
aldrei segja heimsþekktum lista- eða fræði-
manni að hann eða hún væri dugleg; Mikið
ertu dugleg, Björk! Þá værum við að tala
niður til viðkomandi. En við hvern segjum
við það þá?
VIÐ HEILAÞVOUM börn með þessu hug-
taki frá unga aldri: „Mikið ertu duglegur
að labba“ segjum við því, en hvernig getur
það staðist. Það er nokkuð náttúrulegur
hluti af þroskaferlinu að stíga sín fyrstu
skref. Rétt eins og það er að læra að
tala. Annars skriðum við enn öll um og
böbluðum eins og ungabörn!
„EN HVAÐ þú varst dugleg að
borða“ er sagt við barnið. En barn-
ið borðar til að seðja hungur sitt og
ef það gerði það ekki dæi það úr
hungri.
„SJÁÐU mamma, ég er að róla!“
æpti barnið á mömmu sína. „Já,
þú ert svo dugleg að róla!“ svaraði
mamman. Við erum svo vön þessu svari,
en ef við veltum því aðeins fyrir okkur? Ef
barnið til dæmis dytti úr rólunni, væri það
þá ekki lengur duglegt að róla sér? Myndi
það þá skammast sín, því það væri ekki
lengur duglegt? Barnið var ekki að biðja
um að vera duglegt, það bað um athygli.
Það bað um að mamman sæi það: „Sjáðu
mamma, ég er að róla!“ Hvernig væri að
mamma þess í staðinn svaraði: „Já, ég sé
þig, en skemmtilegt!“
ÞAÐ ER gaman að róla og ef ég dett úr
rólunni rís ég bara á fætur og stekk aftur
á róluna. Annað er eins og að hrósa barni
fyrir að vera duglegt að leika sér. Börn
leika sér vegna þess að þau vita ekkert
betra. Það er gaman, lærdómsríkt og
spennandi að hverfa inn í leikinn, rétt eins
og það trúlega er fyrir lista- eða fræði-
manninn að sinna störfum sínum. Þau eru
því ekki dugleg, heldur snilldarleg!
ÉG HEYRI þennan „duglegur-fasisma“ allt
í kring um mig og held því fram að hann
loði við. Það að vera dugleg er stór hluti af
sjálfsmynd okkar sem fullorðið fólk. Svo
þegar við erum ekki dugleg, hvað erum við
þá? Slöpp? Löt? Lúserar?
Í ÞESSARI dásamlegu sumarblíðu langar
mig að hvetja okkur öll til þess að vera
minna dugleg og leika okkur meira!
Duglegur-fasismi